Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 53
8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Dagskrá hinnar vinsælu Ljósanætur í Keflavík nær hámarki á laugardag. Ætti enginn að vera svikinn af heimsókn þangað, að skoða sýningar eða hlusta á tónlist, t.d. Dr. Gunna eða Ásgeir Trausta. 2 Leiksýningunni Englum al- heimsins var afar vel tekið á síðasta leikári í Þjóðleikhús- inu. Sýningar eru nú hafnar að nýju og segja rýnar að um sé að ræða sýningu sem áhugafólk um leik- hús megi ekki missa af. „… frábært nýtt leikverk,“ skrifaði rýnir Morg- unblaðsins og gefur fimm stjörnur. 4 Ragnar Þórisson sýnir þessa dagana í Kling & bang, Hverfisgötu 42. Ragnar er eft- irtektarverður málari sem áhugafólk um myndlist ætti að kynna sér. Verkin byggjast á dempaðri litapal- lettu og sýna óræðar mannsmyndir. 5 Á sunnudaginn kl. 14 býður Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona börnum upp á spennandi leiðangur um sýninguna „Vísar – húsin í húsinu“ sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Ilmur mun spinna ýmiss konar leiki með þeim út frá verkum listamann- anna, en flest verkin eru einhvers konar hús eða vísar að húsum. 3 Undir hatti „Meistarahanda“ í Ásmundarsafni, í tilefni þess að 120 ár eru liðin frá fæðingu Ásmundar Sveinssonar, mun Guðrún Erla Geirsdóttir, GERLA, fjalla um konur í verkum Ás- mundar á sunnudag kl. 15. MÆLT MEÐ 1 Anthony J. Hardy hefur safnað allra-handa list gegnum árin en það varekki fyrr en á síðustu árum sem hann hóf að safna íslenskri myndlist,“ segir Jóhann Ágúst Hansen. Hann er annar sýn- ingarstjóra sýningar á rúmlega 80 verkum eftir íslenska myndlistarmenn sem verður opnuð í The University Museum and Art Gallery í Hong Kong á þriðjudaginn kemur, 10. september. Verkin eru öll í eigu safn- arans Anthonys J. Hardys, sem Jóhann, sem er eigandi og framkvæmdastjóri Gallerís Foldar, hefur haft góð kynni af. Hardy hefur haft talsverð tengsl við Ís- land, var heiðurskonsúll okkar í Hong Kong um nær þriggja áratuga skeið og þá tengist margt í listsöfnun hans hafinu, en hann er stjórnarformaður sjóminjasafnsins í heima- borg sinni. „Hann hefur í raun komið upp þessu sjóminjasafni í fimmtán sýning- arsölum,“ segir Jóhann. „Hann byrjaði að kaupa íslenska myndlist fyrir nokkrum ár- um, fyrst á uppboðum í Danmörku. Fyrsta verkið var eftir Brynjólf Þórðarson, en síðan tók hann að kaupa hjá okkur í Gallerí Fold, og hefur á síðustu árum komið sér upp mjög myndarlegu íslensku listaverkasafni, líklega einhverju því myndarlegasta í einkaeigu utan Íslands. Í því eru ýmsar perlur og skemmti- leg verk eftir flestalla helstu íslensku lista- mennina á 20. öld. Helst vantar þá sem hafa starfað á síðustu árum.“ Jóhann segir Hardy hafa gengið markvisst til verks við söfnunina. „Hann hefur safnað út frá því að geta sýnt íslenska listasögu, næstum því í tímaröð. Safnið hans telur í dag um 200 íslensk listaverk.“ Jóhann var fenginn til að vera annar sýn- ingarstjórinn og mun halda erindi í salnum eftir opnunina, um íslenska myndlist. Sýningin er kölluð „Ingenious Iceland: Twentieth-Century Icelandic Paintings from the Anthony J. Hardy Collection“ og er elsta verkið eftir Þórarin B. Þorláksson en meðal þeirra nýjustu eru verk eftir Karólínu Lár- usdóttur, Braga Ásgeirsson, Harald Bilson og Hall Karl Hinriksson. „Meðal lykilverkanna er stórt málverk eft- ir Gunnlaug Scheving af sjómönnum, sem við seldum í desember í fyrra á um tíu milljónir. Þá eru þarna fín verk eftir Gunnlaug Blön- dal, Kjarval, Jóhann Briem, og listinn er langur,“ segir Jóhann. „Gestir á sýningunni geta því rakið sig eftir sögu íslenskrar myndlistar.“ Samhliða sýningunni verður gefin út bók um hana með formálsorðum Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ritar einnig formála. Þá skrifar Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur um verkin á sýningunni. efi@mbl.is RÚMLEGA ÁTTATÍU ÍSLENSK MYNDVERK Í EIGU ANTHONYS J. HARDYS SÝND Í HONG KONG Gestir kynnast íslenskri listasögu ANTHONY J. HARDY HEFUR SAFN- AÐ ÍSLENSKUM LISTAVERKUM Í NOKKUR ÁR OG NÚ ER ÚRVAL VERKANNA SÝNT. Anthony Hardy hefur komið sér upp vönduðu safni íslenskra verka og sýnir í Hong Kong. ir hann um þykkt prentuð verkin. „Það var auðvelt að taka þetta skref í prentun verk- anna, því Dieter Roth var þegar búinn að taka þau … Á þessum tíma var ég í miklum vafa um hvað ég ætti að gera í listinni. Ég sá enga möguleika á að halda áfram með fléttuverkin og svo var póstmódernisminn að koma fram og fór í taugarnar á mér. Ég fór svo að gera bókverk með grínmyndum út frá póstmódern- ískum skúlptúr og ákvað í framhaldinu að vinna úr frá verkum Einars. Mér hafði þótt þau heillandi alveg frá því ég sá þau fyrst. Ég var alinn upp við að allt sem væri í germ- önskum stíl væri nasískt og ég þurfti að skilja að hér höfðu þessir hlutir þróast á allt annan hátt en hjá Þjóðverjum; hér hafði þessi menn- ing aldrei hörfað meðan nasistar fóru að rifja þetta upp og hengdu við sig.“ Árið 2008 var yfirlitssýning á verkum Kees í Matisse-safninu í Frakklandi. Þá var rætt um að sýningin kæmi í kjölfarið í Listasafn Íslands en um haustið hrundi allt og safninu var ekki lengur unnt að flytja sýninguna inn. „Við þurftum að hugsa þetta upp á nýtt og ár- ið 2010 var ákveðið að sýna aðeins verk sem ég hafði gert hér á landi, og tengdust sjálf- krafa tímanum þegar ég bjó hér. En sýning- unni var síðan frestað í tvígang og ég hafði því tíma til að undirbúa hana betur og betur. Þá tók ég upp samstarf við Crymogeu og ákveðið var að gefa út bók. Öll þessi töf hefur því bara gert sýningunni gott,“ segir Kees. Kees mátar nýlegt málverk á vegg Lista- safnisns. Það var unnið út frá fléttuverk- um úr síðum tveggja bóka. „Fyrirmyndin er bók sem ég fléttaði á Varmalandi á sínum tíma, 1978, og kallaði Hjónaband íslensku og hollensku,“ segir hann. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.