Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaBest er að skilja gullúrið og sparifötin eftir heima ef ætlunin er að prútta um verð Nýtt starfsár er að hefjast hjá Sinfón- íuhljómsveit Íslands og í mörg horn að líta hjá Margréti Reynisdóttur, mark- aðs- og kynningarstjóra. Spennandi dagskrá er framundan þar sem koma m.a. fram Víkingur heiðar, Midori, Ashkenazy, Dmitri Kitajenko og Skálm- öld. Hvað eruð þið mörg í heimili? Við erum fimm á heimilinu. Ég og Sverrir og þrjú börn: Ragnar Steinn, Erla og Dagur. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Það verður að verða til ostur og smjör – má ekki klikka. Og mjólk fyrir Dag og djús fyrir Ragnar. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Ég er ein þeirra sem hafa eiginlega ekki hugmynd um hvað fer í hvað í heim- ilisbókhaldinu – það fer allavega! Hvar kaupirðu helst inn? Við erum með reikning í Melabúðinni sem er á næsta horni og svo förum við stundum í stærri innkaup í Krónuna eða Víði í Vesturbænum. En það er allt- af skemmtilegast að fara í Melabúðina vegna þess að þar fæst allt og maður hittir alla. Hvað freistar helst í matvörubúðinni? Ferskar kryddjurtir freista! – og fallegt grænmeti og ávextir. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Það er helst með því að fara ekki út í búð og elda úr því sem til er í ísskápn- um. Það geta orðið úr því hinar bestu smáréttaveislur. Hvað vantar helst á heimilið? Það vantar alltaf teskeiðar. Eyðir þú í sparnað? Nei – ekki beint. Skothelt sparnaðarráð? Við nærumst ekki bara á mat – þannig að ég mæli með áskriftarkorti á Sinfón- íuna og í leikhúsið. Maður missir ekki af því sem maður ætlar sér að sjá og svo er það líka góður sparnaður. MARGRÉT REYNISDÓTTIR ÞARF ALLTAF AÐ EIGA TIL DJÚS Sparar með smáréttaveislum Margrét reynir að spara með því að elda úr því sem til er og galdrar þá oft fram smáréttaveislur. Skólaárið er að hefjast og margir í þeim sporum að vega og meta hvort taka eigi námslán hjá LÍN. Aurapúkinn veit að það er fátt betra en að vera skuldlaus, en um leið skilur Púkinn að það er nánast óhjákvæmilegt að stofna til skulda þegar lagt er af stað út í lífið, með öllum sínum skyldum. Púkinn veit líka að leitun er að hagstæðari lánum en þeim sem Lánasjóðurinn veitir. Vextir eru mun lægri en bjóðast annars staðar og afborgunarkjörin þægi- leg og tekjutengd. Þeir sem sjá fram á að þurfa að taka fasteignakaupalán, bílalán eða hreinlega fjármagna kaupin á fyrsta hjónarúminu eftir útskrift, en þurfa ekki endilega námslán til að lifa af, ættu að skoða vand- lega þann möguleika að taka lán samt sem áður og leggja fyrir sem sparnað. Þar gæti t.d. verið komin innborg- unin inn á fyrstu íbúðina. púkinn Aura- Fullnýttu lánaréttindinF yrr í sumar komst sú frétt í hámæli að fjölmiðladrottningin og milljarðamæring- urinn Oprah Winfrey hefði verið snuðuð í fínni töskubúð í Zürich. Lesendur muna að Winfrey vildi skoða dýra tösku en starfsmaður búðarinar þvertók fyrir það, og sagði töskuna of dýra, ekki vitandi að við- skiptavinurinn er sjónvarpsstjarna sem veit ekki aura sinna tal. Var málið allt hið undarlegasta og ekki ljóst af frásögn Winfrey annars vegar og sölukon- unnar hins vegar hvort um misskilning eða mismunun var að ræða. Þó tók Winfrey fram að hún var ekki neitt sérstaklega vel til höfð í búðarferðinni og kannski af þeim sökum að búðarkonan hélt að þar væri á ferð lág- tekjukona. Sölufólk með augun hjá sér Sagan af Winfrey í Sviss ætti að minna á þann veruleika að hvernig fólk klæðir sig og ber sig getur haft mikil áhrif á þá þjónustu og kjör sem þeim standa til boða. Blaðamaður Wall Street Journal skrifaði grein í tilefni af uppákomunni í töskubúðinni og benti þar á að það er ekki bara í atvinnu- viðtölunum sem huga þarf að hverju smáatriði í klæðaburði. Stundum geta réttu fötin sparað töluverðar fjárhæðir, en í öðrum tilvikum er rétti klæðnaðurinn einfaldlega til þess fallinn að laða fram betri þjónustulund hjá sölufólki. Klæðnaðurinn getur t.d. haft áhrif á verðið í þeim tilvikum þar sem mögulegt er að prútta. Bendir blaðamaður WSJ á að þetta eigi m.a. við þegar kemur að kaupum á notuðum bíl eða ferð á flóamarkaðinn. Ef á að reyna að knýja verðið á bílnum nið- ur sé vissara að skilja glerfínu jakkafötin og gullúrið eftir heima því sölumaðurinn mælir viðskiptavininn út eftir klæðaburðinum. Dýr merkjavara og taska frá frönsku tískuhúsi er heldur ekki rétti búningurinn þegar haldið er í Kolaportið. „Sölumenn á flóamarkaði koma auga á Christian Louboutin-stígvél úr órafjar- lægð,“ segir einn viðmælandi WSJ og bætir við að seljandinn sé vís til að hækka verðið ef hann heldur að viðskiptavinurinn vaði í seðlum. Demantar og glóandi gull Ferð í skartgripavöruverslunina kallar hins vegar á að vera ögn fínni til fara, en tjalda samt ekki öllu til ef verslað er í búð þar sem mögulegt er að fá í gegn smáafslátt. Ef leiðin liggur aftur á móti í fínustu og glæsilegustu búðirnar þar sem verð á hverjum hring og steini er vandlega niðurnjörvað er best að klæða sig í samræmi við gæði verslunarinnar og tryggja þannig óskipta athygli sölumannanna.“ Annar viðmælandi blaðamanns WSJ bendir á að skórnir séu með því fyrsta sem sölufólk notar til að meta kaup- getu viðskiptavinarins. Fallegir, vand- aðir og rækilega pússaðir skór er það sem segir seljandanum að þar sé á ferð viðskiptavinur með getuna og viljann til að kaupa dýra gæðavöru. HVERNIG FÓLK KLÆÐIR SIG GETUR BREYTT SAMNINGSSTÖÐUNNI Betri kjör í réttu fötunum SAGT ER AÐ FÖTIN SKAPI MANNINN, EN MEÐ ÞVÍ AÐ VELJA RÉTTA KLÆÐNAÐINN ER LÍKA HÆGT AÐ SKAPA RÉTTU ÍMYNDINA TIL AÐ FÁ GÓÐA ÚTKOMU ÚT ÚR VIÐSKIPTUM. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hvort sem fólki líkar betur eða verr þá hættir afgreiðslu- og sölufólki til að meta viðskiptavinnn eftir útlitinu. Fatavalið getur haft mikið að segja með þjónustustigið og getuna til að prútta. Morgunblaðið/Frikki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.