Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 60
Leikmenn númer
11 hjá Real
Paco Gento Vængmaðurinn
var númer 11 átján tímabil og
vann tólf deildartitla og sex
evrópubikara.
Martin Vasquez Vasques lék
252 leiki fyrir Real og vann sex
deildartitla og tvo UEFA-
bikara.
Ronaldo Hinn upprunalegi Ro-
naldo var númer 11 fyrsta árið
sitt með Real Madrid og skoraði
þrjátíu mörk í treyjunni.
Arjen Robben Robben kom til
Real frá Chelsea árið 2007 og var
tvö ár á Bernabeu. Fór þegar Ro-
naldo og Kaka komu til FC Bayern.
G
areth Bale er nýjasti Galactico-inn í liði
Real Madríd eða nýjasta ofurstjarnan.
Real hefur þar með eytt milljarði
punda síðan félagið vann Meist-
aradeildina síðast árið 2002. Sam-
kvæmt fréttum frá Spáni skuldar Real 500 milljónir
punda og er undir rannsóknarauga spænskra yfir-
valda vegna lóðamála. Er þar sagt hafa svikið einn
og annan í stjórnarkerfinu og skuldi skatta. En ekki
er allt sem sýnist því ef allt er tekið með skuldar
Real vissulega 500 milljónir en samkvæmt skilgrein-
ingu UEFA á skuldum fótboltaliða skuldar Manchest-
er United þannig milljónir punda og Arsenal sömu-
leiðis. Barcelona, AC Milan og fleiri stórlið eru einnig
undir smásjá UEFA vegna skulda. Real er lang-
stærsta félagið þegar kemur að tekjum og þénaði
Arsenal þannig 191 milljón punda minna en Real á
síðasta fjármagnstekjuári og Manchesterliðið þénaði
100 milljónum minna en risarnir frá Madríd.
Bankaskuldir Real eru sagðar vera 125 milljónir en
liðið á 84 milljónir punda í lausafé (spurning hvort
það hafi farið allt til Tottenham).
Fjögur ár í röð hefur Real verið á toppnum á lista
Deloitte og þénaði félagið 513 milljónir evra á síðasta
ári. Var það í fyrsta sinn sem lið fer yfir 500 millj-
óna evra markið. Tekjur Real hafa aukist um 10% á
hverju ári síðustu fjögur ár.
Borgar sig á skömmum tíma
Trú Florentinos Perez er að stjörnurnar borgi sig
sjálfar með sölu varnings tengds þeim og hefur það
gengið upp hingað til. Ronaldo kostaði 80 milljónir
punda en ári síðar hafði hann skilað 90 milljónum í
kassa Real. Treyjur með nafninu hans seldust eins og
heitar lummur og þannig seldust 1,2 milljónir treyja
bara í Madríd með nafni hans aftan á.
En fótbolta- og markaðssérfræðingar hafa ekki
jafnmikla trú á Bale og Real Madríd. Hann verður
trúlega aldrei á HM með Wales, hann hefur aðeins
einu sinni spilað í Meistaraeildinni og er frekar hæg-
látur maður. Fáir þekkja hann utan Bretlandseyja.
Hann er t.a.m. aðeins með milljón fylgjendur á
Twitter á meðan Ronaldo er með tuttugu milljónir.
En markaðsöfl Madrídborgar munu nú fara á fullt
að kynna Bale fyrir heimsbyggðinni.
Fjölskyldumaðurinn
Bale ók eitt sinn 200 mílur frá Lundúnum til
Whitchurch í Wales, þar sem foreldrar hans
búa og hann ólst upp, með þvottinn sinn þeg-
ar þvottavélin hans bilaði. Hann fékk einnig
góðan mömmumat hjá Debbie, móður sinni, í
leiðinni. Bale er fjölskyldumaður. Hann er
ekki úti klukkan fjögur að drekka og verða
sér til skammar. Ferill hans er nánast flekk-
Gareth Bale ásamt fjölskyldu sinni, sem var að sjálfsögðu mætt. Rhys Jones stendur vinstra megin.
AFP
Bale veifar til áhorfenda sem komu að
taka á móti honum. 20 þúsund manns
komu á Santiago Bernabeu.
AFP
Kostar álíka og
Héðinsfjarðar-
göng
KAUP Á GARETH BALE FRÁ TOTTENHAM KOSTA REAL MADRID 100 MILLJ-
ÓNIR EVRA, SEM GERIR HANN AÐ DÝRASTA KNATTSPYRNUMANNI ALLRA
TÍMA. 56% ATVINNULEYSI ER MEÐAL UNGS FÓLKS Á SPÁNI OG SKILJA FÁIR
HVERNIG REAL GETUR KEYPT OG KEYPT OG KEYPT ÞEGAR KREPPAN HEF-
UR BITIÐ SPÁNVERJA EINS FAST OG RAUN BER VITNI.
Bale hitti sir Alex Ferguson eitt sinn.Skólamynd.
Byrjunarlið Real Madrid
eins og stuðningsmenn þess
sjá það. Kosning fór fram á
realmadrid.com
* Harry Redknapp sagðiBale að fara í frí.Hann væri 21 árs og ætti
verðskuldað fimm daga frí.
Flestallir fótboltamenn hefðu
farið til Dúbaí eða sleikt sól-
ina á einhverri lúxusströnd
en ekki Bale. Hann keyrði til
mömmu og pabba.
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
*„Tölurnar eru móðgun við þann heim sem við lifum í.“Gerardo Martino, þjálfari Barcelona.BoltinnBENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is
1893 var Willie Groves
fyrsti leikmaðurinn til að
vera seldur á 100 pund.
Fór frá WBA til Aston
Villa.
1961 fór Denis Law frá
Manchester City til Tór-
ínó á 100 þúsund pund.
1979 kostaði Trevor
Francis milljón pund þeg-
ar Nottingham Forest
keypti hann.
1996 kostaði Alan Shea-
rer 15 milljónir punda
sem þá var heimsmet.
MENN TENGDIR
VIÐ 100