Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013 Fleiri hafa að undanförnu tekið í sama streng og Þorbjörn Jónsson gerir hér í samtali við Morgunblaðið. Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins segir Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum og yfirlæknir á Landspítalanum, að léleg laun séu meginástæða óánægju lækna á spítalanum. „Það hefur verið orðað þannig að við værum komin fram af bjargbrúninni og þá væntanlega í frjálsu falli niður. Það er kannski ekki besta samlíkingin. Mín tilfinn- ing er að við séum að renna niður bratta og hála brekku. Það er erfitt að snúa við, en kannski mögulegt,“ segir Einar um ástand í mönnun á Landspítala og framtíðarhorfur ís- lenskrar læknastéttar í samtali við Hávar Sigurjónsson í Lækna- blaðinu. „Meginástæðan fyrir óánægju lækna er launin. […] Þetta er ákveð- inn vítahringur. Landspítali er ekki aðeins ósamkeppnisfær í launum við útlönd heldur einnig við kjör lækna á Íslandi utan spítalans. Það segir náttúrlega allt sem segja þarf að 1% unglækna var ánægt með starfs- aðstöðu á Landspítalanum. Leitin að þessum ánægða einstaklingi stendur enn yfir.“ Klárað eins og Harpa? Þórarinn Ingólfsson, formaður Fé- lags íslenskra heimilislækna, er á svipuðum nótum í ritstjórnargrein í Læknablaðinu. „Heimilislæknar fóru bjartsýnir inn í haustið 2008 og töldu að fram- undan væri upp- gangur í heim- ilislækningum og nú myndi skapast rými til að sinna öllum vel og bjóða þeim sem þess óskuðu fastan heimilislækni sem væri vel menntaður og aðgengilegur sínum sjúklingum. En allir vita jú hvað haustið 2008 bar í skauti sínu og voru allar áætlanir um samninga við heimilislækna slegnar út af borð- inu og hafa ekki komið inn á það borð síðan. Færa má þó fyrir því rök að það hefði átt að klára þetta mál eins og Harpa var kláruð, þegar við lítum til læknismönnunar og ástandsins í heilsugæslunni í dag.“ Morgunblaðið/Eggert Erfitt að snúa við Þórarinn Ingólfsson Einar Stefánsson Þorbjörn Jónsson er ekki í vafa um að innspýting þurfi að koma í heilbrigðiskerfið. Kjarasamningar lækna eru lausir í febrúar á næsta ári og hann telur nauðsynlegt að læknar fái þá umtalsverðar kjarabætur. „Íslenskt heil- brigðiskerfi getur ekki búið við það til lengdar að kjör lækna séu umtalsvert lakari hér en annars staðar,“ segir hann. „Samfelldur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur staðið í um áratug. Verulega byrjaði að kreppa að eftir efnahags- hrunið.“ Þorbjörn segir enn ekki hafa reynt á nýja ríkisstjórn. Stefnu- yfirlýsing hennar hafi verið ágæt en mjög almenns eðlis. „Vonandi fara einhver skilaboð að koma frá ríkisstjórninni, ekki seinna en með nýju fjár- lagafrumvarpi. Pen- ingar eru dráttarklárinn í þessu eins og svo mörgu öðru.“ V ið erum ekki með al- veg glænýjar tölur en vitum að læknum hef- ur verið að fækka hér á landi,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, en mikil ólga hefur verið meðal lækna á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi að undanförnu vegna óánægju með kjör og mikið vinnuálag. Lyf- lækningasvið LSH hefur sér- staklega verið í brennidepli vegna slæms ástands. Þorbjörn veit til þess að læknar hafi í auknum mæli verið að minnka við sig starfshlutfall til þess að vinna annars staðar en á íslenskum spítölum. Það þýðir að enda þótt höfðatalan sé ef til vill svipuð og áður þá eru ársverkin færri. Þegar síðasta könnun var gerð, fyrir um einu og hálfu ári, kom í ljós að um 20% sérfræði- lækna vinna eitthvað erlendis að staðaldri. Eru sumsé milli landa. „Þessi læknar búa flestir hér heima en vinnuframlagið skilar sér ekki að fullu eins og það gerði fyrir fáum árum. Þetta er klárlega vaxandi vandamál,“ segir Þor- björn. Um 1.060 læknar eru starfandi hér heima og stór hluti þeirra starfar að einhverju leyti erlendis. 550 íslenskir læknar vinna alfarið í öðrum löndum. Þorbjörn segir þetta fyrst og fremst skýrast af óánægju með laun og kjör og starfsumhverfið hér heima en læknum þykir vinnuálag hafa aukist á síðustu ár- um. Að sögn Þorbjörns er þetta álag meira en þekkist hjá læknum í sambærilegum stöðum í ná- grannalöndunum. Fleiri íbúar eru á bak við hvern lækni hér á landi en í þeim lönd- um sem við berum okkur venju- lega saman við. Þeir eru 300 hér á landi, 240 í Danmörku og 220 í Noregi. Alvarleg kreppa Þorbjörn notar orðalagið „alvarleg kreppa“ um ástandið á lyflækn- ingasviði LSH. „Læknar í Félagi almennra lækna eru ekki tilbúnir að ráða sig í vinnu þarna, sem er bagalegt þar sem sjúklingum fækkar ekki. Það þýðir að meiri vinna lendir á þeim læknum sem eftir eru, það er sérfræðilækn- unum. Nú er þeim farið að fækka líka sem þýðir að ófremdarástand er í uppsiglingu.“ Að dómi Þorbjörns ríkir ákveðið vantraust á milli lækna og stjórn- enda á Landspítalanum sem stafi af því að efndir hafi ekki verið í samræmi við gefin loforð. Þetta þýði að yngri læknar velji fremur aðra kosti en að ráða sig til starfa á spítalanum, svo sem að fara beint í framhaldsnám erlendis eða ráða sig í lausar heilsugæslustöður úti á landi sem eru hlutfallslega betur launaðar fyrir þá. „Þetta skýrir vandann að hluta. Það tek- ur tíma að byggja upp traust á ný og til þess að það megi verða þurfa læknar og stjórnendur að verða sammála um lausnir.“ Hér áður fyrr var það eftirsótt hjá heimilislæknum að komast í fastar stöður á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta virðist vera að breytast, alltént tókst ekki að manna allar stöður sem auglýstar voru á Heilsugæslustöðinni í Mjódd fyrir skemmstu. Í tíð síðustu ríkisstjórnar var reynt að spyrna við fótum með því að breyta sumum heim- ilislæknastöðum í námsstöður. Ekki tókst að manna þær með sérfræðilæknum. Þorbjörn lítur ekki á það sem valkost að útskrifa fleiri nýja lækna. „Það mun ekki leysa vand- ann, því ef kerfið er óbreytt munu ungu læknarnir bara fara utan eins fljótt og þeir geta. Þeir eru eftirsóttur starfskraftur erlendis enda menntun þeirra vel metin. Þvert á móti þurfum við að búa þannig um hnúta að sérfræðilækn- ar sem aflað hafa sér menntunar erlendis geti komið heim til að starfa.“ Hann er ekki í vafa um að langflestir íslenskir læknar vilji frekar starfa hér heima en erlend- is, sé þess nokkur kostur. „Þá er- um við að tala um venjulegt ár- ferði. Ættjarðarástin er ágæt en hún dugir ekki ein og sér.“ Landspítalinn stendur á krossgötum. Morgunblaðið/Golli Ættjarðarástin dugir ekki ein og sér SLÆMT ÁSTAND Á LYFLÆKNINGASVIÐI LSH OG VAXANDI ÓÁNÆGJA LÆKNA MEÐ KJÖR SÍN OG VINNUSKILYRÐI ERU MIKIÐ ÁHYGGJUEFNI, AÐ DÓMI FORMANNS LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS. HANN ÓTTAST AÐ LÆKNAR MUNI Í AUKNUM MÆLI FARA ÚR LANDI, NEMA STIGIÐ VERÐI AF ÞUNGA INN Í ATBURÐARÁSINA MEÐ BOÐLEGUM KJARABÓTUM. PENINGAR ERU DRÁTTARKLÁRINN * Það er full ástæða til þess að gefa gaum þeim viðvörunar-orðum og áhyggjum sem læknar hafa af starfsemi spítalans.Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherraÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.