Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Side 23
8.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 V atn veitir mótstöðu við hverja hreyfingu, sem gerir líkamsrækt í vatni krefjandi. Það reynir á þol og hefur auk þess líkamsmót- andi áhrif. Vegna mótstöðu vatns- ins verða hreyfingarnar hægari sem dregur úr álagi á liði og vöðva auk þess sem mýkingaráhrif vatnsins minnka álag á hjartað. Í vatninu er hægt að dansa, hoppa og skoppa án mikils álags á líkam- ann. Aqua Zumba er því örugg og hressandi líkamsrækt sem hentar mjög breiðum hópi fólks. „Þetta er nýtt af nálinni hér á landi, búið að vera í tæpt ár í gangi og er að slá í gegn núna. Það er uppselt hjá mér á nám- skeiðið og kominn biðlisti og því bættum við í Klifinu við öðru námskeiði sem hefst 12. sept- ember,“ segir Kristbjörg Ágústs- dóttir sem kennir vatns-zumba í Klifinu, skapandi fræðslusetri í Garðabæ. Hentar fyrir breiðan hóp Zumba er leikfimi þar sem bland- að er saman þolþjálfun og lat- ínsporum. Zumba er í raun fjör, dans og skemmtun í takt við suð- urameríska tónlist. Í vatns-zumba er þetta allt gert, nema í vatni. Þjálfarinn er uppi á bakkanum og þátttakendur ofan í lauginni. Suð- uramerísk tónlist er sett í græj- urnar og hækkað vel. „Við hoppum og leikum okkur í vatninu. Þetta hentar mjög víðum hópi fólks. Þeir sem eru í góðu formi taka vel á vegna mótstöð- unnar í vatninu og fólk sem er ekki í eins góðu formi getur gert allar æfingar því vatnið dregur úr álagi og hlífir liðum. Þeir sem geta ekki verið í venjulegum íþróttum vegna liðverkja, bak- verkja og svo framvegis geta einn- ig fundið sig í vatns-zumbanu vegna vatnsins. Maður er léttari í vatni og það er auðvelt að hoppa og skemmta sér. Fólk fær mikið út úr þessu.“ Lopez, Madonna og fjórtán milljónir Kristbjörg segir að zumba hafi orðið til fyrir rúmum áratug þegar upphafsmaðurinn, Beto Perez frá Kólumbíu, var að kenna hóptíma í leikfimi en gleymdi tónlistinni. „Hann hljóp út í bíl og sótti tón- listina sem hann var að hlusta á í bílnum. Setti hana í gang og fór að hreyfa sig í takt. Hann er með bakgrunn bæði sem dansari og einkaþjálfari og þróaði zumba, sem í dag er risavaxið batterí. Það er hægt að fara í alls konar zumbatíma í dag,“ segir Krist- björg en hún kennir einnig zumba fyrir krakka. Fjórtán milljónir manna stunda zumba í dag og er það orðið lífs- stíll hjá mörgum. Fjölmargar Hollywoodstjörnur eru í þeim flokki; Jennifer Lopez, Kirstie All- ey, Madonna og Vivica A. Fox meðal annars. „Zumba á Íslandi byrjaði í kringum 2010 en vatns- zumba er tiltölulega nýtt af nál- inni – vinsælt sem aldrei fyrr.“ Hressir, bætir og kætir enda fátt betra en að taka á því í vatni. GUSUGANGUR Í GARÐABÆ Það er mikill hamagangur í lauginni og fjörið mikið þegar vatns-zumba fer fram. Ekki skemmir útsýnið úr lauginni. Morgunblaðið/Styrmir Kári AQUA ZUMBA, EÐA VATNS- ZUMBA, SEM KENNT ER Í KLIFINU Í GARÐABÆ, LJÆR HRESSILEGRI LÍKAMS- ÞJÁLFUN NÝJA MERKINGU EN ÞAR SAMEINAST HUG- MYNDAFRÆÐI ZUMBA OG HEFÐBUNDIN VATNS- LEIKFIMI. GUSUGANGUR, TEYGJUR, SNÚNINGAR, HRÓP, GLEÐI, FLAUT, HLÁT- UR OG STUÐ OG STEMN- ING EINKENNA TÍMANA SEM HAFA SLEGIÐ Í GEGN HÉR Á LANDI. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Zumba í sundlauginni Vatn veitir mótstöðu við hverja hreyfingu, sem gerir líkamsrækt í vatni krefj- andi. Það reynir á þol og hefur auk þess líkamsmótandi áhrif. Kristbjörg Ágústsdóttir kennari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.