Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 34
*Græjur og tækniFjölmargar leiðir eru færar vilji fólk gera tilraun til að einfalda lífið með aðstoð síma og tölvu »36
Þ
að er fátt skemmtilegra en að finna barnið í sjálfum sér. Hafa ekki
áhyggjur af neinu nema dótinu sem maður er að leika sér með. Dót 21.
aldarinnar er þannig að snjallsíminn eða iPadinn er notaður sem fjar-
stýring. Fullorðnir geta orðið ungir á ný.
Hægt er að finna ótrúlegustu hluti fyrir snjallsímana. Fjarstýrða bíla,
þyrlur, kafbáta, venjulega báta, leiktæki fyrir gæludýrin og njósnavél. Þá
er gamla góða Legó komið til nútímans og farið að gefa út Legó fyr-
ir fullorðna. Eitthvað sem er bannað innan 16.
Verðbilið er ótrúlega breitt. Hægt er að fara í Toys’R Us
og fá fjarstýrðan bíl á 3.000 krónur en þyrlan kostar 70
þúsund. Þar er innbyggð myndavél og sér maður lands-
lagið í nýju ljósi. Á uppboðsvefnum Ebay má einnig finna
ótrúlegustu hluti. Kafbáta og fleira sem ekki fæst hér á
landi. Auðvelt er að stofna Ebay-reikning en tollarnir gætu
kostað skildinginn.
Ferrari Enzo
Fjarstýrður bíll fyrir iPhone, iPad og
Android. Fæst í Toys’R’us á sérstöku
tilboðsverði. 2.999 kr.
Sphero
Virkar fyrir Android og iPhone og er í
raun tölvuleikur með þínu eigin um-
hverfi. Ótrúlega hröð kúla og
skemmtileg - sérstaklega ef það er
köttur á heimilinu.
Fæst á http://store.gosphero.com/
99$.
Aquabotix Hydroview kafbátur
Það að mynda neðansjávar get-
ur verið erfitt og kostn-
aðarsamt. En með þessum kaf-
bát fylgir HD myndavél, 75 feta
kapall og fjögurra gígabæta
minniskort. Frábær skemmtun
hvar og hvenær sem er.
Fæst á Amazone.
5.395 dollarar.
AppTag
Breytir snjallsímanum þínum í
lasertagbyssu. Stórsnjallt
plasttæki sem kostar rúmlega
sjö þúsund krónur.
Fæst á Hex3.co. 60 dollarar.
Walkera W100S Myndavéla Quad
Ein nýjasta þyrlan sem kemur fyrir i iPhone,iPad, iPod og
Walkera Devo fjarstýringuna. Á Quadinum er myndavél
sem sýnir myndina í rauntíma á viðkomandi Apple skjá.
Flugtími er allt að 10 mínútum Drægni allt að 80 metrar
/ eftir skilyrðum. Fæst á tactical.is 24.900 kr.
BREYTTU SÍMANUM OG IPADINUM Í LEIKTÆKI
Leiktæki fyrir
fullorðna
FLESTIR EIGA SNJALLSÍMA EÐA IPAD SEM HÆGT ER AÐ BREYTA
Í FJARSTÝRINGU Á ÓTRÚLEGASTA DÓTI. DÓT SEM FÆST HÉR
Á LANDI EÐA Á EBAY. ÍRSKA LEIKRITASKÁLDIÐ GEORGE BERN-
ARD SHAW SAGÐI EITT SINN: VIÐ HÆTTUM EKKI AÐ LEIKA
OKKUR ÞÓ AÐ VIÐ VERÐUM FULLORÐIN. VIÐ HÆTTUM AÐ
VERA BÖRN ÞEGAR VIÐ HÆTTUM AÐ LEIKA OKKUR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Parrot Ar Drone 2.0
Þyrla sem er stýrt með Iphone/iPod Touch/iPad
tengist í gegnum Wifi. Þyrlan hefur 2 myndavélar
sem þú getur notað til að taka myndir í flugi.
Batterí ending í flugi í 12 mín.
Fæst í Símabæ, Mjódd. 64.990 kr.
Iphone dokka
Stundum langar manni bara
að setjast niður við gamla
skífusíman og tala með
snúru. Bara stundum.
Fæst á eBay. 40 doll-
arar.
Parrot Ar Drone
Án innanhús fylgihlutana. Fæst í Símabæ Mjódd. 64.990 kr.
Rover 2.0 njósnaskriðdreki
Rover App Spy Tank er fjarstýrður skriðdreki
sem er stýrt með iPhone/iPod Touch/iPad teng-
ist í gegnum Wifi. Myndavél með nætursjón og
innbyggður míkrafónn.
Fæst í iSíminn Skipholti. 24.990 kr.