Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Blaðsíða 36
Notaðu iPad
sem annan skjá
Fólk sem vinnur mikið við tölvu
þekkir vel kosti þess að hafa
fleiri en einn tölvuskjá tengdan
við tölvuna. Það tekur þó pláss
að hafa slíkt með heimilistölvunni.
Air Display er sniðugt forrit fyrir
iPad og iPhone, sem breytir skjá
spjaldtölvunnar/snjallsímans í
annan skjá með tölvunni og virk-
ar bæði með Apple- og Windows-
tölvum.
Sendu SMS úr tölvunni
SMS lifir góðu lífi þrátt fyrir að
það sé ekki jafn áberandi sam-
skiptamáti og það var fyrir
nokkrum árum síðan. Helsti gall-
inn við SMS er þó að það krefst
talsverðrar þolinmæði að stafsetja
á litum snjallsímaskjá. Mighty-
Text forritið fyrir Android gerir
þér kleift að nota tölvuna til að
senda og taka á móti SMS með
því að tengjast símanum yfir wifi.
Það ætti að gera samskiptin við
unglingana auðveldari.
Afturkallaðu aðganginn að
samfélagsmiðlunum
Mörg símaforrit og vefsíður fara
fram á leyfi til þess að skoða
notendaupplýsingarnar þínar á
samfélagsmiðlum, ýmist til að
gera þér auðveldara að tengjast
vinum, eða til að nota þá til að
deila upplýsingum í þínu nafni.
Það er erfitt að henda reiður á
því hvaða síða eða forrit hefur
fengið leyfi þitt til að nota hvaða
samfélagsmiðil. Þar kemur vefsíð-
an My Permissions til sögunnar,
en með henni er hægt að skoða
öll leyfi sem þú hefur veitt og
afturkalla þau ef svo ber undir.
Hættu að vera
hrædd/ur við Snapchat
Snapchat er á góðri leið með að
verða ráðandi samskiptamáti ungs
fólks, en þeir eldri hafa síður
verið ginnkeyptir fyrir því. Það
er þó engin ástæða til að óttast
Snapchat. Þetta sniðuga síma-
forrit sendir mynd eða myndband
með textaskilaboðum, sem ein-
ungis er hægt að sjá í skamma
stund, áður en þeim er sjálfkrafa
eytt. Þetta er ótrúlega þægilegur
og sniðugur samskiptamáti sem
getur hleypt lífi í tjáskipti þín.
Notaðu Trello til að
skipuleggja alla hluti
Það er fjöldinn allur til af verk-
efnastjórnunartólum og minn-
islistaforritum og öðrum smáum
viðbótum sem geta hjálpað þér
að halda utan um skipulagið í
dagsins önn. Fá tól sameina þó
einfaldleika, skalanleika og fjöl-
hæfni með sama hætti og Trello.
Það má nota til að halda utan
um smærri og stærri verkefni,
útbúa minnislista, útdeila verk-
efnum, setja upp skiladag og svo
framvegis. Notast beint úr vafra
á tölvum, en hægt er að fá smá-
forrit fyrir flestar gerðir snjall-
síma og spjaldtölva. Fullkomið
fyrir bæði heimilið og vinnustað-
inn.
LÁTTU TÆKNINA EINFALDA TILVERUNA
11 sniðug/ar forrit/vefsíður sem
gera lífið einfaldara/skemmtilegra
Morgunblaðið/Styrmir Kári
REGLULEGA FÆÐAST NÝJAR
VEFSÍÐUR OG FORRIT FYRIR
BÆÐI SÍMA OG TÖLVUR
SEM GETA HJÁLPAÐ OKKUR
AÐ EINFALDA LÍFIÐ EÐA
GERA ÞAÐ SKEMMTILEGRA
MEÐ EINUM EÐA ÖÐRUM
HÆTTI. VANDAMÁLIÐ ER
AÐ ÞAÐ GETUR VERIÐ ERF-
ITT AÐ FYLGJAST MEÐ ÞVÍ
SEM ER AÐ GERAST. HÉR
ERU ÞVÍ NOKKRAR ÁBEND-
INGAR UM SNIÐUG FORRIT
OG VEFSÍÐUR SEM GÆTU
VERIÐ ÞESS VIRÐI AÐ
SKOÐA NÁNAR.
Sveinn Birkir Björnsson
sveinnbirkir@gmail.com
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013
Græjur og tækni
Samsung lætur ekki deigan síga á spjaldtölvumarkaði og kynnti fyrir
stuttu þrjár nýjar gerðir af Galaxy Tab-seríunni, allar með tegund-
arheitinu Tab en mis-stórar, 7", 8" og 10.1". Nýjust í þessari útgáfuröð
er 8" græjan, sem má skoða sem beina samkeppni við iPad Mini, sem
er með 7,9" skjá (og reyndar við Samsung Galaxy Note 8 – meira um
það síðar).
Þó að það virðist ekki mikið á
pappírnum er umtalsverður
munur á 7" og 8" skjá og þó 7"
sé kappnóg alla jafna, þá er 8"
skjárinn á Tab 3 óneitanlega
sérdeilis glæsilegur. Upplausn á
honum er 1280x800 dílar (sam-
anborið við 1024x600 díla á 7"
Tab 3). Stærri skjár þýðir
stærri vél og fyrir vikið er hægt
að koma fyrir í henni 1,5 GHz
tveggja kjarna Samsung Exynos-örgjörva og 1,5 GB-
vinnsluminni. Geymsluminni í vélinni er ýmist 16 eða 32
GB, en hægt að stækka það með MicroSD-minniskorti.
Bakið á vélinni er úr plasti, líkt og Samsung er siður,
sem gerir vélina vissulega léttari, en, tja, plastlegri fyrir
vikið. Hún fer þó vel í hendi, en ég hefði kostið að hafa
plastið aðeins stamara. Það skiptir þó ekki máli þegar maður er búinn
að setja hana í spjaldtölvutösku, sem ég geri ráð fyrir að flestir geri
hvort eð er. Að þessu sögðu er rétt að taka fram að húsið á vélinni er
ekkert skæni; hún er mjög traust viðkomu og bakið vel stíft.
Vélinni fylgir Android 4.2.2, sem er ekki nýjasta útgáfa af Android,
það er 4.3, en sú nýjasta sem er í almennri notkun,
það eru ekki nema örfá tæki að nota 4.3.
Líkt og jafnan hefur Samsung bætt við sinni eigin
útgáfu af notendaskilum TouchWiz, sem er viðbót að
mestu leyti en kemur líka í stað ýmissa þjónustuþátta
Android. Það er og einn af kostum Galaxy-síma og
spjaldtölva að sitthvað góðgæti fylgir, sjá: Samsung
Apps og fleiri viðbætur, en öðrum finnst það ókostur
að vera ekki alltaf með nýbakað stýrikerfi á símanum
eða í spjaldtölvunni.
Eins og getið er í upphafi kynnti Samsung þrjár ný-
ar Tab 3-spjaldtölvur, en veldur eflaust ruglingi að
skammt er síðan á markað komu áþekkar tölvur sem
hétu annað – Galaxy Note 8.0, sem er með 8" skjá, og
Galaxy Note 10.1, sem er 10,1" skjá. Þær eru áþekkar
í útliti, en munurinn á þeim er sá helstur að Note-
línan er með sérstakan skjápenna, öflugari örgjörva og
betri rafhlöðuendingu – og kostar líka talsvert meira.
ÞRJÁR SPRÆKAR SPJALDTÖLVUR
MENN VERÐA AÐ HAFA SIG ALLA VIÐ TIL AÐ FYLGJAST MEÐ ÞEIM GRÚA TÆKJA SEM SAMSUNG SETUR Á MARKAÐ
Á HVERJU ÁRI. FYRIR STUTTU BIRTUST ÞRJÁR SPRÆKAR ANDROID-SPJALDTÖLVUR, 7", 8" OG 10,1" TAB 3.
* Rafhlaðan er fín, dugir í allt aðtíu tíma segir framleiðandi og entist
mér vel í blandaða vinnslu, vefnotk-
un, póst, leiki og vídeó. Það eru
tvær myndavélar á henni, 1,3 MP að
framan og 5 MP að aftan með sjáf-
virkum fólkus og LED-flassi. Hún
tekur fínar myndir í góðri birtu, en
ekki svo fínar þegar skyggja tekur.
Hún tekur 720 p vídeó, 30 ramma á
sekúndu.
* Á vélinni eru MicroUSB-tengifyrir straum og tölvu, hljóðútgangur,
rauf fyrir minniskort og innrauður
sendir og því hægt að nota hana
sem (dýra) fjarstýringu – sniðug við-
bót. Loftnet í tölvunni er mjög gott,
en sú sem ég prófaði var ekki með
stuðning við 3G eða 4G, sem er
eiginlega nauðsynleg viðbót núorðið.
* Ég nefni það hér til hliðar aðvélin er augljós keppinautur iPad Mini
og fer reyndar létt með að snýta
iPadnum – upplausnin í Tab 3 8 er
1280x800, en 1024×768 í iPadnum,
örgjörvinn íka hraðvirkari og vinnslu-
minnið meira. Ekki má þó gleyma því
að nýr iPad Mini er væntanlegur og
líklega talsvert endurbættur.
ÁRNI
MATTHÍASSON
Græja
vikunnar