Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Qupperneq 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013 röng og ekki í samræmi við rann- sóknir,“ segir Karl Steinar. Allar viðvörunarbjöllur hringja og nýverið upprætti lögregla sam- kvæmi nokkurra þrettán ára ung- linga sem voru staðnir að kanna- bisreykingum í bílskúr heima hjá einum þeirra. Unglingarnir höfðu skroppið heim í frímínútunum til að reykja. Dæmi eru um að börn allt niður í fjórtán ára sprauti sig með harð- ari efnum. Gríðarleg peningavelta Gríðarleg peningavelta er í fíkni- efnaheiminum og ekki minnkar það þegar steramarkaðurinn bætist við, en hann er síst sagður í rénun. Hliðarverkun þessara viðskipta sem virðist vera að færast í vöxt er fjárkúgun. Lengi hefur viðgengist að skuldendur og þeirra nánustu séu kúgaðir og gert að greiða hærri og hærri upphæðir. Bíræfn- ustu gerendurnir eru farnir að hugsa lengra. Þannig hefur heyrst af einstaklingum og fyrirtækjum sem kúguð hafa verið til að greiða fyrir „vernd“. Þeim er þá gert að greiða ákveðna upphæð gegn tryggingu fyrir því að ekkert komi fyrir þá eða starfsemi þeirra. Þetta er gert í krafti holdlegs atgervis og „geðveiki“, eins og einn viðmælandi blaðsins orðaði það. Ekki er óalgengt að menn séu þvingaðir til að skrifa undir skulda- yfirlýsingu í þessu sambandi. Við- skiptin séu því, þannig lagað séð, uppi á borðinu. Þá hefur vaknað grunur um að starfsmenn í fyrirtækjum, með að- gang að fjármunum, hafi verið kúgaðir til að draga sér fé og af- henda síðan brotamönnum, ellegar sæta barsmíðum. Þetta fékk Morg- unblaðið þó ekki staðfest. Líka eru dæmi um að menn hafi verið „sektaðir“ fyrir gjörðir sem falla mönnum í undirheimunum ekki í geð, jafnvel bláókunnugir menn. Lífseig er til dæmis sagan af því að maður hafi verið „sekt- aður“ um hálfa milljón króna fyrir það eitt að deila leigubíl með „rangri“ konu. Skilaboðin voru skýr: „Annaðhvort borgarðu eða sætir limlestingum!“ Hann mun hafa borgað. Fjárkúgunum fjölgar Þetta bendir til þess að sífellt fleiri séu farnir að gera sér grein fyrir þessum möguleika, fjárkúgun af litlu sem engu tilefni. Og hug- myndafluginu er gefinn laus taum- urinn. Skákað er í skjóli hræðslu þolandans. Komi mál af þessu tagi upp hvetur Karl Steinar fólk eindregið til að hafa samband við lögreglu. Út frá þessu vaknar sú spurning hvort hinum almenna löghlýðna borgara sé hætta búin af skipu- lagðri glæpastarfsemi hérlendis. Karl Steinar segir svo ekki vera. Langalgengast sé að snertiflötur venjulegs fólks við undirheimana sé fíkniefnaneysla og meintar skuldir fjölskyldumeðlims eða ann- ars nákomins aðila. Heldur megi ekki útiloka gömlu góðu af- brýðisemina. Hún geti knúið menn til ólíklegustu verka. Því miður hafi saklausir og vel meinandi menn og jafnvel konur brennt sig á því að leggja lag sitt við mann- eskju sem stendur eða hefur stað- ið ofbeldishneigðu undirheimafólki nærri. „Enda þótt venjulegu fólki stafi ekki bein hætta af skipu- lagðri glæpastarfsemi er það veru- leiki að hún hefur meiri áhrif á líf þess en áður. Það má heldur ekki gleyma því að óöryggið er gjarnan mest hjá þeim sem síst skyldi, til dæmis eldra fólkinu,“ segir Karl Steinar. Ísland hefur alltaf verið lítið land og á seinni öldum hefur það líka verið friðsælt land. Fólk hefur getað farið sinna ferða óáreitt og vill án efa gera það áfram. Í ljósi þess sem hér hefur verið sagt er það alls ekki sjálfgefið og Karl Steinar geldur varhug við „þetta reddast!“-viðhorfinu. Það geti ver- ið stórhættulegur hugsunarháttur. Vá er fyrir dyrum og tími stórra ákvarðana runninn upp. Ekki vonlaus barátta „Baráttan gegn skipulagðri glæpa- starfsemi á Íslandi er alls ekki vonlaus. Sem þjóð verðum við hins vegar að vera tilbúin til þess að halda uppi fórnarkostnaði og sofna ekki á verðinum, eins og Danir gerðu í sambandi við mót- Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið/Golli Skotvopn sem lögreglan lagði hald á í tengslum við rannsókn hennar á ráni og frelsissviptingu í Grafarvogi á þessu ári. Morgunblaðið/Eggert Sérafslættir (-10 kr. í fyrsta skipti, -10 kr. á afmælisdaginn og -15 kr. í 10. hvert skipti) koma ekki til viðbótar við aðra afslætti eða önnur viðskiptakjör. Nánar á ob.is. Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair, American Express vildarkorti eða Einstaklingskorti Olís. Nánari upplýsingar eru á ob.is/Vildarkerfi. -15kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.