Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Page 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2013, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2013 Viðamikil bókaþing hefjast í Reykjavík í næstu viku; Bókmenntahátíð í Reykjavík og alþjóðleg ráðstefna PEN-samtakanna. Prent- smiðjan Oddi, PEN á Íslandi og Bók- menntahátíðin hafa gert með sér samning sem felur í sér að prentsmiðjan styrkir þing- ið og hátíðina með því að prenta án endur- gjalds allt efni sem gefið verður út í kringum hina viðamiklu alþjóðalega ráðstefnu PEN International, og Bókmenntahátíð í Reykja- vík. Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri Odda, Sjón forseti PEN-samtakanna á Íslandi og Sigurður G. Valgeirsson, stjórnarformað- ur Bókmenntahátíðar í Reykjavík, undirrit- uðu samstarfssamninginn í Hörpu en þar fer PEN-þingið fram að hluta. ODDI STYRKIR BÓKAÞING HÁTÍÐIN STYRKT Sigurður G. Valgeirsson, Jón Ómar Erlingsson og Sjón undirtituðu styrktarsamninginn. Morgunblaðið/Rósa Braga Hluti eins verka Kristjáns á sýningunni. Mynd- efnin eru oft uppstillingar en einnig landslag. Morgunblaðið/Einar Falur Þessa dagana stendur yfir í Gallerí Fold við Rauðarárstíg sýning á málverkum eftir Krist- ján Davíðsson (1917-2013). Kristján var einn þekktasti listmálari þjóðarinnar og merkur brautryðjandi, þekktur fyrir persónuleg ljóð- ræn abstraktverk. Á sýningunni gefur hins vegar að líta á annan tug verka sem hann málaði áður en hann hélt til Bandaríkjanna í nám árið 1945. Verkin eru fígúratíf að mestu og sýna vel formtilraunir og glímu hins unga listamanns. Verkin voru í eigu Sigríðar Sveinsdóttur og við lát hennar eignuðust börn hennar tvö þau. Einnig eru nokkur nýrri verk á sýningunni. MÁLVERK FRUMKVÖÐULS Í FOLD VERK KRISTJÁNS Tónleikaröðin Klassík í Salnum hefur göngu sína á sunnudag klukkan 16. Þá kemur Edda Erlendsdóttir píanóleikari fram á útgáfu- tónleikum. Fagnað verður útgáfu nýs geisladisks Eddu, þar sem hún leikur einleiksverk eftir Schu- bert, Liszt, Schönberg og Berg. Diskurinn er sá sjö- undi sem Edda gefur út. Edda Erlendsdóttir er einn fremsti píanó- leikari þjóðarinnar og hefur haldið fjölda tónleika og tekið þátt í tónlistarhátíðum víða erlendis, í Evrópu, Rússlandi, Bandaríkjunum og Kína. Hún er búsett í París og starfar sem prófessor í píanóleik við Tónlistarskólann í Versölum. Tíu tónleikar verða í tónleikaröð Salarins í vetur, með mörgum okkar þekktustu tónlist- armönnum auk erlendra listamanna. ÚTGÁFUTÓNLEIKAR EDDA Í SALNUM Edda Erlendsdóttir Leiðangur er heiti sýningar þýsku listamannanna Thomasar Hu-bers og Wolfgangs Aichners sem opnuð var í sal 2 í ListasafniÍslands á föstudagskvöldið. Sýningin fjallar um þriggja vikna þraut þeirra fyrir tveimur árum, þar sem þeir drógu rauðan bát yfir ríflega þrjú þúsund metra hátt fjallaskarð í Ölpunum. Ásamt farkost- inum fylgja heimildir um þessa raun, sem endaði sem sýning á Fen- eyjatvíæringnum. Verkið vekur spurningar um tengsl listar og nátt- úru og samanstendur m.a. af málverkum, ljósmyndum, grafíkverkum, bókverkum og vídeóinnsetningu. Sýningarstjóri er Christian Schoen, fyrrverandi fortöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar mynd- listar. „Verkefnið snerist að vissu leyti um myndhverfingu,“ segir Schoen. „Fyrst þurfti að smíða bátinn og leggja síðan í að draga hann yfir fjöllin. Sýningin á verkinu, eða um verkefnið, var opnuð án þess í Feneyjum; Huber og Aichner voru þá á leiðinni yfir fjöllin. Það var að vissu leyti höfnun á markaðsmaskínu tvíæringsins. Til að byrja með sýndum við fjarveru verksins en vorum með daglegar upp- færslur á dagbókinni, þar til kom að lokaþættinum þegar verkið birt- ist loks.“ Og hvert var markmiðið með verkinu? „Eins og í klassísku drama var tvenns konar mögulegur endir. Annars vegar þar sem allt færi í vitleysu, og hinn, sá rómantíski, þar sem hetjurnar komast í guða tölu. Við vissum að verkið yrði að enda illa! Ef leiðangurinn hefði endað vel hefðu skilaboðin verið þau að menningin drottnaði yfir náttúrunni. En skilaboðin gátu ekki verið slík, heldur að náttúran myndi alltaf hafa betur. Þetta er ákveðin gagnrýni á þann draum manna að brjóta náttúruna undir sig.“ Hér á landi mun leiðangurinn nú halda áfram, undir nýjum for- merkjum, Powerwalk 2013, þegar Huber og Aichner hefja vikulanga kraftgöngu á Vatnajökli. Munu þeir bera vindmyllu sem hleður raf- magni á batterí. Að leiðangrinum loknum verður fatnaður listamann- anna þveginn með uppsafnaðri vindorkunni sem notuð verður til að knýja tvær þvottavélar úti í Þýskalandi. Heimild um gjörninginn verður til í formi kvikmynda og ljósmynda sem verða síðan grunnur að innsetningu á nýrri sýningu. efi@mbl.is LEIÐANGUR HUBERS OG AICHNERS YFIR ALPANA Drógu bátinn yfir fjöllin Listamennirnir Thomas Huber og Wolfgang Aichner, sem eru hér í Listasafni Íslands ásamt Schoen, munu nú safna raforku á Vatnajökli. Morgunblaðið/Kristinn „VIÐ VISSUM AÐ VERKIÐ YRÐI AÐ ENDA ILLA,“ SEGIR SÝNINGARSTJÓRINN, CHRISTIAN SCHOEN. Menning Þ etta er „Flatey Dream“, fyrsta verkið sem ég vann á Íslandi,“ segir Kees Visser og sýnir ljós- mynd þar sem hann sést standa upp fyrir mitti í köldum Breiða- firði og veifa til hafs. „Þetta var um versl- unarmannahelgina 1976 og ég vaknaði að morgni fyrsta ágúst og hafði dreymt afa minn. Hann kom og tilkynnti mér að þennan dag væri öld frá fæðingu hans, hann væri að fara út á sjó og spurði hvort ég vildi ekki koma og kveðja hann. Þarna er ég að kveðja afa,“ segir Kees, brosir og fer með ljóð sem hann samdi einnig þennan dag. „Mér finnst gaman að hafa þetta verk með á sýningunni, það fyrsta sem ég gerði hér,“ bætir hann svo við. Á föstudagskvöldið var opnuð í tveimur söl- um Listasafns Íslands sýningin Ups and Downs, á verkum þessa hollenska listamanns sem bjó á Íslandi um árabil og tengdist náið þróun íslenskrar myndlistar á áttunda og ní- unda áratug liðinnar aldar. Þótt Kees hafi ekki verið jafnáberandi hér síðan hann flutti til Parísar árið 1993, þar sem hann hefur átt blómlegan feril á meginlandinu sem kennari og listamaður, finnst okkur mörgum hann vera íslenskur listamaður. Hann talar fljúg- andi íslensku og þekkir landið betur en flestir, eftir að hafa starfað sem leiðsögumaður og dvalið á fjöllum í mörg sumur. Samhliða opnun sýningarinnar gefur Crymogea út bók um listsköpun Kees. „Flest verkin á sýningunni eru gömul og tengjast þeim tíma þegar ég bjó hér; ég var einn vetur á Varmalandi, tvö og hálft ár á Stórutjörnum og sjö og hálft ár í Reykjavík,“ sagði Kees þar sem hann var önnum kafinn við uppsetningu verkanna. Þvert gegnum ann- an salinn er búið að smíða létta grind og á hana hefur verið raðað verkum sem hann hef- ur fléttað saman úr skornum síðum bóka um tvo listamenn, Piet Mondrian og Roy Lichten- stein. „Fyrirmyndin að þessu verki er bók sem ég fléttaði á Varmalandi á sínum tíma, 1978, og kallaði Hjónaband íslensku og hollensku,“ seg- ir hann. „Það er í raun grunnverk þessarar sýningar því mín hollensk-íslensku tengsl mynduðust þennan fyrsta vetur hér.“ Fjallabak, Klaustur, Rauðaá … Í þessum sal gefur líka að líta skúlptúra, stórt verk úr litaflötum sem Kees sýndi á eft- irminnilegri sýningu í SÚM-sal Nýlistasafns- ins árið 1992 og á löngum borða eru samhliða raðir ljósmynda; sú neðri sýnir jörðina við fætur ljosmyndarans en hin upp í himininn. Þetta er verkið Ups and Downs. „Þessi er frá Fjallabaki, þetta er í Lund- arreykjadal, þarna horfi ég niður af brúnni við Kirkjubæjarklaustur, þetta er Rauðaá við Hellu …“ þylur listamaðurinn upp þar sem hann bendir á myndirnar af jörðinni. Þar sem Kees ferðaðist um Ísland ár eftir ár uppgötv- aði hann að hann var alltaf að mynda jörð og himin. Og verk tók að mótast í huga hans, verk með 3.200 myndrömmum sem sýna ætti í 40 slædssýningavélum; 20 beindust upp í loft og sýndu himin en hinar 20 héngju í loftinu og vörpuðu jarðarmyndum á gólfið. Aldrei tókst þó, sökum kostnaðar og tækniörð- ugleika, að sýna verkið í heild. Seinna fór hann að vinna að myndskreytingu fyrir hús Kennaraháskólans, þar sem í efri glugga átti að prenta myndir af himninum en af jörðinni á þá neðri; það gekk heldur ekki upp. En hér á sýningunni er þessi útgáfa verksins og önn- ur minni í bás með átta myndvörpum. „Nú er ég farinn að geta litið til baka yfir ferilinn og sé að margt sem ég gerði er blanda af innsæi og þörf til að greina allt og túlka,“ segir Kees. „Þetta tvennt birtist aftur og aftur í ferlinu en er þó ekki eitthvað sem ég þarf að halda mér í, ég þarf ekki að halda mér í einhvern stíl. Persónuleikinn kemur hins vegar í ljós í því sem maður gerir. Maður rúllar áfram gegnum lífið og það kemur í ljós að í ferðalaginu er eitthvert samhengi.“ Gestir á sýningunni sjá hvað listsköpun Kees þróaðist á athyglisverðan hátt. Eitt sinn hafði hann vinnustofu á Korpúlfsstöðum og var að smíða rimlarúm fyrir börnin sín þegar honum datt í hug að sníða fæturna af og setja rúmhliðarnar með máluðum rimlunum upp á vegg. Það var byrjun á röð áhugaverðra verka. Árið 1985 vann hann röð expressjón- ískra prenta út frá verkum eftir Einar Jóns- son myndhöggvara. „Ég tók þrjú þemu úr symbólisma hans, fæðingu, líf og dauða, og vann upplagsverk í möppu auk þessara ellefu mónóþrykkja,“ seg- SÝNING Á VERKUM SEM KEES VISSER VANN Á ÍSLANDI Í LISTASAFNI ÍSLANDS „Ég þarf ekki að halda mér í einhvern stíl“ „FLEST VERKIN Á SÝNINGUNNI ERU GÖMUL OG TENGJAST ÞEIM TÍMA ÞEGAR ÉG BJÓ HÉR,“ SEGIR KEES VISSER. Á SÝNINGUNNI Í LISTASAFNINU FÁ GESTIR GÓÐA YFIRSÝN YFIR FJÖLBREYTILEGA SKÖPUN HANS. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is MondLicht, 2013. Verk fléttað úr síðum bóka um Mondrian og Lichtenstein.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.