Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013 Q igong er ekki íþrótt og ekki trúarbrögð heldur lífsmáti,“ seg- ir leikarinn Gunnar Eyjólfsson en ný- komin er út bókin Gunnarsæfing- arnar Qigong – Orka – Hug- leiðsla – Heilsa. Í bókinni eru kynnt grunnatriði í qigong en einnig eru svonefndar Gunn- arsæfingar kynntar með skýr- ingum, en þar er um að ræða qigong-æfingakerfi sem Gunnar þróaði og hópur fólks hefur stundað reglulega í tvo áratugi. Í bókinni er einnig að finna hug- leiðsluæfingar Gunnars. Sömuleið- is er sagt frá vaxandi áhuga á hugleiðslu í heiminum og vitnað í erlendar tímaritsgreinar því til staðfestingar. Qigong er ævaforn leið til að efla lífsorkuna, stuðla að vellíðan og auka heilbrigði. Aflinn, félag qigong-iðkenda á Ís- landi, gefur bókina út en það var stofnað árið 2002 til að stuðla að kynningu á qigong og efla samstöðu iðkenda á Íslandi. Gunnar er fyrst spurður hvernig hann hafi komist í kynni við qigong. „Einstakur maður, Clifford Turner, varð áhrifavald- ur í lífi mínu þegar ég var í leiklistarnámi í RADA í London á árunum eftir seinna stríð,“ segir hann. „Turner kenndi þar framsögn og taltækni og þjálfaði einnig ýmsa fréttamenn á BBC og breska þingmenn. Einn dag- inn kom ég í tíma til hans og þá hafði hann teiknað á töfluna mynd af manni sem stóð mjög hokinn. Turner sagði við okkur nemendurna: „Allavega einn ykk- ar en sennilega tveir eða þrír eiga föður sem leit svona út þegar hann varð miðaldra, þetta eru neikvæðar erfðir.“ Síðan leit hann á mig, háan og grannan Íslendinginn, og sagði: „Það ert örugglega þú, herra Eyjólfsson,“ og nefndi einnig tvo aðra. Þetta var rétt hjá honum, faðir minn varð afar hokinn með árunum. Þetta atvik hafði mikil áhrif á mig. Við erum erfðir og áhrif. Enn þann dag í dag er það þannig að um leið og ég geng út úr húsinu heima hjá mér rétti ég úr mér og segi: „Gunn- ar, þú ert strengjabrúða orkunn- ar og nú hjálpar hún þér yfir þröskuldinn. Þakkaðu orkunni og réttu úr þér!“ Síðan liðu nokkur ár og ég fór á leiklistarnámskeið í New York. Eftir nokkra daga kom einn kennarinn til mín og sagði: „Ég sé að þú hefur verið í RADA, kenndi Clilfford Turner þér?“ „Já, uppáhaldskennari minn,“ sagði ég. „Veistu að hann er qi- gong-maður?“ sagði hann. „Hvað er það?“ spurði ég. Hann tók mig með sér í heilsustöð þar sem menn komu saman, flestir af Asíukyni, og þar var æft qi- gong. Ég fór að æfa með þeim en hætti því síðan um skeið en eftir erfið bakveikindi árið 1972 fór ég að æfa qigong að nýju. Þar með var grunnurinn lagður að æfingunum sem kynntar eru í bókinni.“ Stjórn á sjálfum sér Segðu mér aðeins frá hugsuninni á bak við qigong? „Qi er frumafl sem skapar allt í veröldinni og við lifum jafn- lengi og við erum hlaðin qi. Það er mikilvægt að anda að sér lífi. Við grípum andann á lofti þegar við fæðumst og um leið grátum við – þetta er eina skiptið sem foreldrar gleðjast yfir því að heyra barn sitt gráta – svo geispum við golunni þegar við deyjum. En meðan við drögum andann eigum við að horfast í augu við okkur sjálf. Í qigong er stefnt að því að fullkomin sátt sé milli líkama og sálar, efnis og anda. Með því að stunda qigong losar fólk sig við spennu sem er enginn vandi ef fólk gengur orkunni á hönd. Qigong er þrí- þætt: Hugleiðslu-qigong, heilsu- qigong og bardaga- qigong. Und- irstaðan er agaður líkamsburður, öguð öndun og öguð hugsun.“ Hvað er átt við með bardaga- qigong? „Bardaginn snýst ekki um það að leggja aðra að velli heldur að hafa stjórn á sjálfum sér. Við látum stjórnast of mikið af nei- kvæðum áróðri, eins og því að við þurfum að eignast alls konar hluti. Maðurinn er barn, erfingi orkunnar, og á að fara vel með þann arf. Þegar maðurinn breyt- ir um lífsstíl gerir hann sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að vera manneskja sem er trúað fyrir gersemum eins og heilbrigðum skilningarvitum. Það er svo auðvelt að brengla skilningarvitin með alls konar drullu sem verið er að ýta að ungu fólki í dag. Ég skora á fólk sem reykir að drepa í sígar- ettunni og segja við sjálft sig: Þetta geri ég aldrei aftur. Ef viljinn er til staðar þá er hægt að hætta. Ég segi stundum við ungt fólk sem ég sé vera að reykja: „Kannt þú að búa til lungu?“ „Ha, kann ég hvað?“ er svarið. „Þú ert að eyðileggja lungun með því að reykja ofan í þau á þínum aldri,“ segi ég. Ungmenn- ið svarar stundum hortugt: „Þér kemur það ekkert við!“ Um dag- inn hringdi hins vegar ungur maður í mig og sagði: „Er þetta ekki Gunnar Eyjólfssson leikari, ég vildi láta þig vita að ég er hættur að reykja.“ Þetta er ekki eina símtalið sem ég hef fengið með sömu skilaboðum. Ég bið fólk um að viðurkenna að við höfum ekki leyfi til að eyðileggja það sem við kunnum ekki að búa til. Á meðan við kunnum ekki að búa til lungu eigum við ekki að reykja og meðan við kunnum ekki að búa til lifur eigum við ekki að demba í okkur brennivíni.“ Andartak eilífðarinnar Hversu mikilvæg finnst þér hug- leiðsla vera? „Qigong leysir úr læðingi hæfi- leika sem fólk hafði ekki hug- mynd um að það byggi yfir. Sá sem stundar qigong finnur fljót- lega styrkleika sinn í orkunni. En þá er það alveg eins og í trú, maður verður að fara alla leið og það gerir maður ein- göngu gegnum hugleiðslu og öndun. Við verðum að leggja rækt við öndunina meðan við lif- um. Sem leikari kynntist ég þessu vel. Að tala er að virkja orku og leikari vinnur fyrir sér með því að flytja texta og túlka og þá er eins gott að önd- unarfærin séu í lagi. Með hverjum andardrætti þiggjum við líf en í hugleiðslu hættum við að hugsa og um leið verður allt svo skýrt. Við teljum okkur vita allt en þekking okkar er mjög takmörkuð. Það er stöð- ugt verið að segja okkur að við þurfum að eignast þetta og hitt og þessi eftirsókn eftir efnis- legum gæðum skapar öfund. Við horfum yfir til nágrannans og hugsum: Jæja, það er aldeilis að sumir hafa það gott. Fólkið þarna hinum megin var að fá sér nýjan bíl eftir að vera ný- komið úr enn einni utanlands- ferðinni … Við stjórnumst um of af neikvæðum tilfinningum og áróðri. Að hugleiða er að hætta að hugsa. Á hverjum morgni stend ég fyrir framan spegilinn og horfist í augu við sjálfan mig og spyr: Hver ertu? Ég anda að mér og hætti svo að anda um stund. Það að hætta að anda er mjög þýðingarmikið og maður á ekki að óttast það. Ég anda svo rólega að mér. Þetta geri ég þrisvar sinnum. Andartak eilífð- arinnar nefnist það þegar maður hættir að anda. Það er öruggt að öll eigum við eftir að upplifa andartak eilífðarinnar þegar við kveðjum þennan heim.“ Langrækni skilar engu Hvert heldurðu að sé viðhorf heilbrigðisstétta til qigong? „Undanfarin ár hefur áhugi á qigong aukist á Vesturlöndum og heilbrigðisstarfsmenn eru að átta sig æ betur á því að hugleiðsla skilar árangri og frá þessu er sagt í bókinni. Frá árinu 2007 Að anda að sér lífi GUNNAR EYJÓLFSSON LEIKARI ER AÐ VERÐA 88 ÁRA GAMALL OG STUNDAR REGLULEGA QIGONG, EN NÝ- KOMIN ER ÚT BÓK MEÐ ÆFINGUM SEM HANN ÞRÓAÐI. Í VIÐTALI RÆÐIR GUNNAR UM ÞENNAN EINSTAKA LÍFSSTÍL OG ÞÁ MIKLU ÁBYRGÐ SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ VERA MANNESKJA. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * „Við grípum andann á lofti þegar viðfæðumst og um leið grátum við –þetta er eina skiptið sem foreldrar gleðjast yfir því að heyra barn sitt gráta – svo geispum við golunni þegar við deyjum. En meðan við drögum andann eigum við að horfast í augu við okkur sjálf.“ Svipmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.