Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013
Ferðalög og flakk
B
arcelona er höfuðborg Katalóníu á Spáni. Borgin er önnur stærsta
borg Spánar með íbúafjölda sem telur 1,6 milljónir manna en séu
íbúar aðliggjandi byggða teknir með fer fjöldinn upp í 4,5 millj-
ónir. Aðeins höfuðborgin Madríd er stærri. Þrátt fyrir að vera
ein af stórborgum Evrópu er stemningin í Barcelona mjög afslöppuð.
Árið 1992 hélt Barcelona sumarólympíuleikana og bjuggu borgar-
yfirvöld þá til strendur fyrir gesti og gangandi. Allar götur síðan hafa
strendurnar verið einn aðalviðkomustaður túrista en Barcelona er ein vin-
sælasta borgin til að heimsækja í Evrópu. Árið 2012 komu 14 milljónir
manna til borgarinnar en vinsælustu staðirnir til að skoða eru La Sagrada
Familia, L’aquarium de Barcelona og heimavöllur knattspyrnuliðsins í
Barcelona, Camp Nou.
Kirkja, söfn og Picasso
Verkfræðingurinn og arkitektinn Antoni Gaudí er einn dáðasti sonur
Barcelona borgar en nánast allt sem hann snerti varð að glæsilegum
byggingum og hefur Barcelona gert margt til að varðveita hans arfleið.
Borgin hefur einni alið af sér marga þekkta listamenn eins og Joan Miró.
Gaudí hannaði þekktasta kennileiti borgarinnar og þótt víðar væri leitað;
kirkjuna Sagrada Família (kirkja hinnar heilögu fjölskyldu) sem hefur
verið í stöðugri byggingu síðan á síðasta hluta 19 aldar. Þeir sem koma
þar inn vilja eiga nóg minni á símanum sínum því kirkjan er ótrúlega fal-
leg. Listasöfnin eru einnig mörg, en þau sem skemmtilegast er að njóta
eru listasöfn Mirós og Picassos. Veturinn er besti tíminn til að skoða
söfnin því sumartúristabiðröðin er þá horfin en hún getur verið ansi löng.
Á veitingastöðum Barcelona
er borinn fram matur nær
allan sólarhringinn sem ger-
ir miklu meira en að kitla
bragðlaukana. Hverfi borg-
arinnar hafa hvert sín sér-
kenni og það er gaman að
leigja hjól og hjóla til að
upplifa þessa fjölbreytni sem
borgin hefur upp á að bjóða.
Hvar sem maður er nið-
urkominn í borginni getur
maður verið viss um að það
er góður matur í næsta ná-
grenni.
Í Barcelona er auðvelt að njóta sín enda iðar þessi einstaka borg af lífi,
hvort sem er um hábjartan daginn eða um miðjar nætur.
Skemmtistaður í virki
Það er stíll yfir Barcelona. Fallegar og sérstæðar byggingar fanga athygli
manns á hverju götuhorni og gamli hluti borgarinnar, Barrio Gotico, þar
sem fyrstu byggingarnar risu á 13. öld, er einstakur. Næturlífið í Barce-
lona spannar allt litrófið og er kröftugt og fjörmikið. Það er meira að
segja útiskemmtistaður í gömlu virki. La Terrrazza heitir hann og er
stórskemmtilegur. Barcelona er borg til að skoða, þar er hægt að
skemmta sér, snæða góðan mat, kaupa hátískuvörur og njóta lífsins.
ÓLYMPÍUBORGIN BARCELONA
BARCELONA ER EIN FEGURSTA BORG EVRÓPU, UPPFULL
AF IÐANDI LÍFI OG EKKI SKEMMIR VEÐURFARIÐ. Í BARCE-
LONA ER HÆGT AÐ BLANDA SAMAN SÓLARLANDAFERÐ
OG BORGARFERÐ. BROSA ALLAN HRINGINN Á MEÐAN.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Allra þekktasta tákn Barcelona er kirkjan
La Sagrada Familia enda er hún vinsælasti
ferðamannastaður borgarinnar. Stendur í
Eixample-hverfinu. Enn er verið að byggja
kirkjuna þrátt fyrir að fyrsta skóflustunga
hafi verið tekin árið 1882.
Heillandi
heimsborg
Menningarlífið er gríðarlega mikið í
Barcelona, nánast með ólíkindum. Tón-
list finnur þú hvar sem er í borginni,
hvort sem er klassík, djass eða hinn
hefðbundni flamenkó. Liceu, óp-
eruhöllin, Palau de Musica með klassík
og óperur, listasöfn Picassos, Mirós og
Dalís, þjóðlistasafnið Museu Nacional
d’art de Catalunya eða MNAC hefur
að geyma minjar Katalóníu. Ný-
listasafnið – MACBA er nýjasta afrek
arkitektsins Richard Meyers. Safnið var
reist í miðju Raval-hverfinu og hýsir
sýningar nútímalistamanna.
MENNINGARLÍFIÐ
Barcelona hefur á að skipa frábærum
íþróttaliðum. Frægast er fótboltaliðið, FC
Barcelona, en Börsungar, eins og Bjarni Fel
kallaði þá fyrstur, hafa einnig frábært hand-
boltalið sem og körfuboltalið. Þá er Esp-
anyol einnig í borginni.
Borgin hélt Ólympíuleikana 1992 sem
þóttu takast gríðarlega vel í alla staði. Þá
voru nokkrir leikir á Heimsmeistara-
mótinu 1982 spilaðir í borginni. Þá var
Camp Nou sviðið á einum ótrúlegasta fót-
boltaleik sögunnar þegar Manchester Unit-
ed vann FC Bayern 2:1 í úrslitum Meist-
aradeildarinnar 1999.
Börsungar hafa verið með besta fót-
boltalið heims í áraraðir, spila fallegasta
fótboltann og eru með Lionel Messi, Xavi,
Iniesta, Busquets og Neymar innanborðs.
Þá er La Masia-unglingastarfið rómað um
allan heim.
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði með
Börsungum um tveggja ára skeið og vann
meðal annars Meistaradeildina.
Handboltinn skipar einnig stóran sess í
hugum Börsunga en þar er valinn maður í
hverju rúmi. Viggó Sigurðsson spilaði eitt
sinn með Barcelona í handboltanum.
Börsungar