Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 23
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Heilsa og hreyfing
Hýðið utan af ávöxtum og grænmeti getur verið stútfullt af hollumnæringarefnum. Það er hins vegar ofast ekki jafn bragðgott ogávöxturinn sjálfur og því henda flestir Vesturlandabúar hýðinu
beint í ruslið án þess að pæla í öllum þeim næringarefnum sem fara til
spillis. Breski næringarfræðingurinn dr. Marilyn Glenville hefur fjallað
mikið um hollustu hýðisins og hún getur gefið
okkur nokkuð góð ráð í þessum málum.
Kíví, epli, appelsínur, mandarínur og ban-
anar eru allt dæmi um ávexti sem hafa hollt
hýði. Hýðið utan af kíví inniheldur t.d. þrisvar
sinnum meira magn af andoxunarefnum heldur
en ávöxturinn sjálfur. Þá býr hýðið einnig yfir
eiginleikum sem vinna gegn matarsýkingum og
eitrunum. Vandamálið við kíví er hinsvegar það
að hýðið er loðið og mörgum finnst það vera of
framandi til að leggja sér það beint til munns.
Persónulega finnst mér það ekkert hræðilegt á
bragðið en ef þú ert ekki á sömu skoðun þá er
um að gera að skella ávextinum í blandarann án
þess að taka hýðið af. Þannig nýtist hýðið af kíví sem hluti af heilsudrykk
og þú tekur varla eftir loðinni áferð þess. Þú getur líka reynt að skera
hýðið niður í þunna strimla og bætt því saman við salatið.
Appelsínuhýðið býr einnig yfir ýmsum góðum kostum og er m.a. talið
hafa lækkandi áhrif á kólesteról. Ef þú treystir þér ekki til að henda hýð-
inu í blandarann þá er hægt að rífa það niður og dreifa því yfir allskonar
rétti og jafnvel nota það í kökur. Bananahýði er einnig meinhollt en það er
hins vegar ekki gott undir tönn. Ef þú ert ævintýragjörn/gjarn geturðu
reynt að borða það hrátt en flestir sjóða það í vatni í nokkrar mínútur og
drekka síðan vatnið.
Svona mætti lengi telja og ég hvet ykkur til að vera óhrædd við að nota
hugmyndaflugið í þessum málum. Mikilvægt er samt að þvo hýðið vel og
vandlega til að losna við leifar af skordýraeitri sem oft er úðað á matvælin
við nútímaræktun.
Það er mun hollara að borða allan ávöxtinn heldur en að drekka ein-
göngu safann. Mikilvægar trefjar má oft finna í hýðinu (t.d. í eplum og per-
um) og því er mjög mikilvægt að borða hýðið.
EKKI HENDA
HÝÐINU
Heilbrigt líf
JÓN HEIÐAR
GUNNARSSON
Liðsfélagarnir kalla hann „Bjögga“ og hann hefur vakið
athygli fyrir frábæra frammistöðu með íslenska landslið-
inu í handbolta síðustu ár. Hann hefur einnig farið ham-
förum í þýsku úrvalsdeildinni síðustu vikur.
Hversu oft æfir þú á viku?
Átta eða níu sinnum plús einn leikur.
Hvernig æfir þú?
Lyfti tvisvar eða þrisvar í viku, annars stend ég bara
milli stanga og reyni að vera fyrir.
Henta slíkar æfingar fyrir alla?
Já, fínt fyrir þá sem finnst gott að láta kasta í sig bolt-
um.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað?
Njóta leiksins.
Hver er lykillinn að góðum árangri?
Skipulag, ástríða fyrir leiknum og æfa betur en hinir
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Setja sér markmið og byrja hægt. Þetta er allt spurn-
ing um að breyta um lífsstíl en ekki taka á því í eina viku.
Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir
hreyfiþörfina?
Úff já …
Hvernig væri líf án æfinga?
Lenti í veikindum á síðasta ári sem
orsökuðu að ég þurfti að vera rúm-
liggjandi í svolítinn tíma og það var
það erfiðasta sem ég hef gert á æv-
inni. Ég náði þó að beina orkunni í
námið og fyrirtækið mitt í staðinn.
Hvernig heldurðu þér í formi þeg-
ar þú ferð í frí?
Geri allt annað en ég geri á
venjulegu keppnistímabili, reyni
t.d. að spila hnit, fer í hot yoga,
stunda öðruvísi lyftingar og margt
fleira.
Hvað borðarðu til að halda þér í
formi?
Hafragraut, ávexti og ruglaðasta
búst sem til er. Það er líka gríðarlega
mikilvægt fyrir mig að borða tvær holl-
ar heitar máltíðir á dag þar sem ég er
með gríðarlega hraða brennslu og ef ég
borða ekki hátt í 5.000 kaloríur á dag
léttist ég, sem ég má ekki mikið við.
Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir?
Súkkulaði.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta
mataræðið?
Byrja að kötta út gos, restin kemur
af sjálfu sér.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkams-
rækt fyrir þig?
Hún er mér allt þar sem ég fæ
borgað fyrir að vera í toppformi og í leiðinni er ég að
fjárfesta til framtíðar.
Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir?
Hef sem betur fer ekki ennþá lent í erfiðum meiðslum
en ég veiktist í fyrra af fylgigigt sem kom í kjölfar salm-
onellusýkingar. Sem betur fer náði ég að losna við þann
djöful á mettíma fyrir fullt og allt.
Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orð-
ið fyrir?
Hef einungis misst af einum leik á ferlinum vegna
meiðsla og það var eftir að ég var að leika mér í „rassa“,
sem er uppáhaldsleikurinn hans Gumma Gumm, en þar
var verið að skjóta boltanum í rassinn á mér (refsing
leiksins) en það endaði þannig að ég ætlaði að kíkja á
þann sem var að fara að skjóta og fékk þá boltann af öllu
afli beint í augað. Missti sjón í tæpan sólarhring og leist
ekki á blikuna en hún kom fyrir rest. Ég missti af æf-
ingaleik við Þjóðverja í Þýskalandi vegna þessa
skemmtilega atviks.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Í handboltanum er algengast að menn taki ekki á því
og þá ertu hreinlega að æfa þig í að vera lélegur. Í
gymminu eru mest pirrandi hlutir sem ég sé þegar fólk
er uppteknara af því sem er að gerast í kringum það en
sjálfu sér.
Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum?
Uwe Gensheimer, leikmaður Rhein Neckar-Löwen,
hefur verið mér erfiður en ég mun loka á hann í
næsta leik.
Hver er fyrirmynd þín?
David Beckham, Peter Schmeichel
og Tomas Svensson, hver á sinn hátt.
Hver er besti íþróttamaður allra
tíma?
Jordan er klassískt svar en mig
langar mikið til að segja David
Beckham og ekki endilega vegna
hæfileikanna bara heldur vegna
þess hvernig íþróttamaður hann var. Hann
gerði allt rétt á sínum ferli og lét gott af
sér leiða bæði í sportinu og með því að
leggja mikilvægum málefnum lið.
Beckham er ein besta fyrirmynd sem
ungir iðkendur geta litið til.
Skemmtileg saga/uppákoma frá
ferlinum?
Fólk hefur yfirleitt mest gaman af
mistökum annarra og þá er gaman að
nefna þegar ég ætlaði að vera töff í æf-
ingaleik sem skipti engu máli og sendi
boltann aftur fyrir bak og ætlaði að
senda fram völlinn en hann endaði í and-
liti samherja. Mig hefur aldrei langað eins
mikið til að hverfa á ævinni.
ÍÞRÓTTAKEMPA VIKUNNAR BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON
Missti sjónina í „rassa“
Björgvin Páll
Gústavsson
Fitur gegna lykilhlutverki fyrir alla líkamsstarfsemi og fita er ein af þremur
af meginorkugjöfum okkar, hinir eru kolvetni og prótín. Forðastu hertar
fitur og transfitur og veldu frekar einómettaðar og fjölómettaðar fitusýrur.
Transfitur auka m.a. hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum.
Borðaðu rétta fitu*Hamingja er ekkertannað en góð heilsaog lélegt minni.
Albert Schweitzer