Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Síða 27
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
MAX 10
STYKKI Í STÆRÐ
Á HVERN
KÚNNA
SÚPER-TILBOÐ
AFMÆLIS
AFSLÁTTUR
50%
Hvít, vönduð og mjúk handklæði
100% BÓMULL – ÞYNGD 450 GSM – ÞERRAÓTRÚLEGA VEL
AFMÆLISVERÐ
497
FULLTVERÐ KR.
995
50 X 100 CM
AFMÆLISVERÐ
997
FULLTVERÐ KR.
1.995
70 X 140 CM
udaginn 13. oktober kl. 13.00–16.00 • Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 • Húsgagnahöllinni, Reykjavík 558 1100
B
erglind Berndsen innanhúsarkitekt hefur búið
sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili á Sel-
tjarnarnesinu. Berglind hefur mikinn áhuga
á hönnun og öllu því sem henni tengist og
segir það forréttindi að geta starfað við áhugamál
sitt. Þegar kemur að innréttingu heimilisins segir
Berglind tímaleysi og einfaldleika hinn fullkomna
grunn og mikilvægt sé að huga að sambandi skipu-
lags og innra fyirkomulags. Notagildi og samspili
efnisáferðar og lita telur hún jafnframt þurfa að
huga að, enda skipta þessir eiginleikar miklu máli
fyrir upplifun og heildarmynd heimlilisins. „Ég að-
hyllist mínimalisma í grunninn, en ég myndi segja að
stíllinn minn væri frekar skandívavískur, tímalaus og
áreynslulaus.“ segir Berglind sem sækir innblástur
til umhverfisins, efniviðs og áferða í náttúrunni, en
segir jafnframt innblásturinn koma úr misjöfnum átt-
um, allan tíma sólarhringsins. Rýmið bauð upp á
mikla möguleika þegar kom að hönnun heimilisins
enda umgjörðin hrá með mikilli lofthæð. Berglindi
fannst þar af leiðandi mikilvægt að draga fram aðra
mýkri efniviði eins og dökkan við sem hún notar
mikið í hönnun sinni. Flest húsgögn heimilisins eru
úr versluninni Epal en ljósin voru keypt í ljósabúð-
inni Lúmex. Berglind segir góða lýsingu hafa áhrif á
líðan fólks og skipta miklu máli upp á heildar-
samhengið og mælir með því að fólk leiti ráða hjá
fagfólki vilji það sem besta lýsingu á heimilið.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Dökkt parket á móti hráum steinveggjum mynda skemmtilegar andstæður.
Hlýleg blanda af
gamalli og nýrri
hönnun
Á SELTJARNARNESI ER FALLEGA INNRÉTTAÐ HEIMILI MEÐ ÁHERSLU Á HRÁLEIKA Í BLAND
VIÐ MÝKRI EFNIVIÐ. RÝMIÐ ER SKEMMTILEGA HANNAÐ Í SKANDINAVÍSKUM, ÁREYNSLU-
LAUSUM OG TÍMALAUSUM STÍL.
Sigurborg Selma Karlsdótir sigurborg@mbl.is
Berglind Bernd-
sen innanhús-
arkitekt í vinnu-
rými sínu í
stofunni, en
rýmið skipulagði
hún út frá vinnu-
aðstöðunni.
EINFALDLEIKI OG TÍMALEYSI HINN FULLKOMNI GRUNNUR
* Heillastmikið afnáttúrulegum
efnum og demp-
uðum jarðlitum.