Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013
heima í eldhúsinu meðan Ronja og pabbi
hennar skreppa í sund og gera eitthvað
skemmtilegt meðan fólk lærir indverska
matargerð.
Yesmine „Í ljósi þess að ég er ekki fædd
og uppalin Íslendingur og íslenskan mín er
ekki nógu góð var ég afar stolt og ánægð
með hugrekki pródúsentsins míns, Helga Jó-
hannessonar, að þróa þessa hugmynd að
þáttunum með mér. En ég trúi því að þrátt
fyrir að ég tali ekki fullkomna íslensku þá
skilji fólk mig vel.“
Addi „Þetta var í raun líka mjög kjörkuð
ákvörðun hjá dagskrárstjóra, flott að gera
þetta.“
Yesmine „Mér hafði líka þótt það mjög
flott og djarft hjá Einari Bárðar að fá mig
með annarri dökkri stelpu til að keppa í
Eurovision fyrir Íslands hönd árið 2001. Mér
finnst afar mikilvægt að við séum sýnileg,
við sem erum af öðrum uppruna en hinn
dæmigerði Íslendingur. Það er svo mikið af
blönduðum börnum hér á landi, þar sem
annað foreldrið er ekki íslenskt að uppruna
og ég tel það afar mikilvægt að þau geti
samsamað sig fólki sem kemur fram í ís-
lensku sjónvarpi. Þegar ég kom hingað fyrst
sá ég afar fáa sem voru dökkir á hörund en
það er breytt og sjónvarpið þarf líka að end-
urspegla þennan fjölbreytileika. Ég fékk
mikil viðbrögð við þáttunum og nefni sér-
staklega að eldra fólk hefur verið einkar
elskulegt við mig. En jú, það kemur alveg
fyrir að fólk er að skrifa á Facebook um ís-
lenskuna mína og slíkt en ég reyni bara að
taka því öllu á jákvæðan hátt og reyni að
læra af. Mig langar að verða betri í íslensku
og er að læra með dóttur minni núna til
dæmis.“
Addi „Ég held að Yesmine hafi verið að
brjóta blað í sögu sjónvarps því ég man ekki
til þess að nokkur sem hafði ekki búið leng-
ur en þetta á landinu né var íslenskur að
uppruna hafi fengið að vera með sinn eigin
sjónvarpsþátt á RÚV. Þegar þessi hugmynd
kom fyrst upp hugsaði ég með mér að fyrst
mér þætti svona skemmtilegt að horfa á
hana elda hlyti það að vera að öðrum ætti
eftir að finnast það líka.“
Eiginmaðurinn var minna með fingurna í
hinni nýju matreiðslubók Yesmine enda er
starfið í Hörpu annasamt. Yesmine segir að
það sé allt í lagi enda sjái hún að Addi
Fannar njóti starfsins í botn, enda sé þetta
fag sem hann þekki út og inn. Og Skítamór-
all er í fríi eða hvað? Saknar hann ekkert
þeirra ára?
Addi „Hljómsveitin er akkúrat núna í
pásu en við höfum haldið saman í gegnum
árin. En í rauninni eigum við inni almenni-
lega endurkomu. Hljómsveitin á 25 ára af-
mæli á næsta ári sem hljómar kannski
furðulega þar sem fyrsta platan okkar kom
ekki út fyrr en 1996 en engu að síður stofn-
uðum við hljómsveitina árið 1989, 13 ára
gamlir. Þegar við urðum þekktir vorum við
ennþá bara strákar af Selfossi og þótti allt
mjög merkilegt sem var að gerast í borginni
og vorum fremur feimnir við hana og svolítið
til baka. Hljómsveitin var til dæmis orðin
mjög fræg áður en nokkur vissi hver var í
henni. Þegar við hljómsveitarmeðlimir flutt-
um til borgarinnar bjuggum við fyrst í eins
konar kommúnu á Ingólfsstræti. Þetta var
mjög skemmtilegt en mér þótti oft óþægilegt
að vera þekktur. Ég segi stundum: „Ég var
einu sinni frægur“ og er mjög feginn að
þetta er ekki lengur svona. En hver veit
nema hljómsveitin komi saman í tilefni af-
mælisins, það er að minnsta kosti fundur hjá
„Þegar við hljómsveitar-
meðlimir fluttum til borgarinnar
bjuggum við fyrst í eins konar
kommúnu á Ingólfsstræti. Þetta
var mjög skemmtilegt en mér
þótti oft óþægilegt að vera
þekktur. Ég segi stundum: „Ég
var einu sinni frægur.“
Morgunblaðið/Golli
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
3
2
9
5
9
Full búð af vönduðum vetrarúlpum
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
ÚLPUM
DIDRIKSONS SUTTON KULDAGALLI
4 litir.
Stærðir: 80–130
11.992 KR.
Verð áður 14.990 kr.
ÚLPUDAGAR