Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 64
Bjarki Karlsson, doktorsnemi á Stofnun Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum, hefur hafið störf í hinu nýja
húsi íslenskra fræða, eða svona nokkurnveginn. Líkt og
myndin sýnir framdi hann nokkurs konar gjörning í vik-
unni sem ádeilu á það að byggingu Stofnun íslenskra
fræða við Suðurgötu hafi verið frestað.
„Ég fékk þessa hugmynd eftir að ég hafði samið
ádeilukvæði um að framkvæmdirnar frestuðust. Það var
talsvert mál að komast þarna niður með borðið og stól-
inn. Það var djúpt meðfram bökkunum og stórgrýtt en
þegar ég komst inn á miðju var þetta tiltölulega auðvelt,“
segir Bjarki kátur.
Ádeiluljóð Bjarka sem fylgir gjörningnum er í anda
ljóðabókarinnar Árleysi alda. Bjarki hlaut verðlaun
Tómasar Guðmundssonar fyrir bókina 10. október síð-
astliðinn. „Bragarhátturinn og orðfærið kallast á við
kvæði Jóns Helgasonar, Í Árnasafni, og síðustu tvær lín-
urnar eru fengnar að láni þaðan óbreyttar,“ segir Bjarki.
Bjarki Karlsson, dokt-
orsnemi og ljóðskáld,
mótmælir frestun á
framkvæmdum við
Stofnun íslenskra
fræða. Hér má sjá nýju
skrifstofuna hans.
Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir
ÁDEILUKVÆÐI BJARKA KARLSSONAR
Skrifstofa í Árnapytti
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2013
Internetið
gleymir engu
Veit barnið þitt að stafræn spor þess á
netinu munu mögulega aldrei mást út?
Byrjum að tala um örugg samskipti.
Þú finnur góð ráð og leiðir
á vodafone.is/godsamskipti
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Indverskur lögreglumaður, sem
týndist sex ára, hafði uppi á fjöl-
skyldu sinni á dögunum eftir 24
ára leit. Ganesh Raghunath Dhan-
gade varð viðskila við foreldra sína
1989 þegar fjölskyldan tók lest, en
drengurinn varð eftir á pallinum.
Ganesh sá um sig sjálfur í fyrstu
og bjó síðar á tveimur heimilum
fyrir munaðarlausa. Eftir að hann
lenti í bílslysi lá Ganesh meðvit-
undarlaus í fjóra mánuði og mundi
að því loknu lítið sem ekkert um
fjölskyldu sína. Árum saman rýndi
hann í lista yfir týnt fólk á lög-
reglustöðvum og lifði alltaf í von-
inni, ekki síst vegna þess að nafn
móðurinnar, Manda, hafði verið
húðflúrað á handlegg drengsins í
æsku. Í skjölum frá fyrra mun-
aðarleysingjahælinu fundust ný-
verið upplýsingar um að hann
hefði nefnt „Mama Bhanja“ sem
heimili; skógarsvæði í nágrenni
Mumbai. Þar fann Ganesh Dhan-
gade móður sína, og þrjú systkini.
Móðirin kannaðist strax við húð-
flúrið. „Við þögðum um stund en
föðmuðumst svo innilega og grét-
um,“ segir Ganesh. Þetta var aug-
ljóslega Guðs vilji. Kraftaverk.“
FURÐUR VERALDAR
Gagnlegt
húðflúr
Indverjinn Ganesh Raghunath Dhangade sýnir fjölskyldu sinni húðflúrið.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Lína Langsokkur.Annie úr söngleiknum Annie.Vera Illugadóttir, fréttakona.
Ofan í holunni ætlað mér kannski var stæði
arfinn að varðveita, rannsaka og skrásetja fræði,
hálfvegis þegjandi, hálfvegis ómar þó kliður
heyri ég þungann í sveðjum að skera þau niður.
Híbýli vegleg úr holunni áttu að rísa
horfinna kynslóða bergmáli að miðla og lýsa,
horfinn er vélagnýr, hljótt er í ríkinu þvísa,
heyri ég burðarjálk andlegrar stöðnunar frýsa.
Kvæði mig fýsir að lesa og ljóðsandann hvessa,
leirspýjur Hjarranda finn þar í drulluvessa,
stuðlanna þrískiptu grein lít ég bögglast í brotum,
baknöguð þjóðmenning komin að niðurlotum.
Lónir í melsári pyttur úr ginnungagapi
gras dafnar hvergi, þjóðin er rekin með tapi,
sé ég hér Konungs- og Flateyjarbækurnar fljóta
fúna og gleymast – svo sægreifar arðs megi njóta.
Bókfellið velkist og þránar og þorrinn er kraftur,
þeir ætla að moka í holuna jarðvegi aftur,
„legsteinninn springur og letur hans máist í vindum,
losnar og raknar sá hnútur sem traustast vér bindum.“