Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 1
L A U G A R D A G U R 3 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 3
279. tölublað 101. árgangur
STEFNAN SETT
Á ÓLYMPÍULEIK-
ANA Í SOCHI
YESMINE OG
ARNGRÍMUR
BJÓÐA Í MAT
SPENNA UM
OFSÓKNIR OG
GRÁ SVÆÐI
SUNNUDAGUR NÝ BÓK SINDRA 70SNJÓBRETTI ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Sjálfstæðisfl. 44,6%
Samfylkingin 16,4%
Framsóknarfl. 11,8%
Píratar 11,3%
Björt framtíð 10,3%
Vinstri - græn 4,6%
Annar fl. eða listi 1,0%
Fylgi flokka í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ
fyrir Morgunblaðið 6.-28. nóvember 2013
44,6%
16,4%
11,8%
11,3%
10,3%
4,6%
1,0%
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjanesbæ héldi velli ef
sveitarstjórnarkosningar færu fram
núna, samkvæmt könnun Félags-
vísindastofnunar Háskóla Íslands
fyrir Morgunblaðið. Flokkurinn
fengi 44,6% atkvæða og sex fulltrúa
kjörna, einum færri en í kosning-
unum 2010. Þá kusu 52,8% Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjanesbæ en
flokkurinn fékk einnig sjö fulltrúa í
kosningunum 2006.
Samfylkingin myndi missa tölu-
vert fylgi, eða fara úr 28,4% í kosn-
ingunum 2010 í 16,4% nú. Myndi
flokkurinn missa einn mann og fá
tvo bæjarfulltrúa. Framsóknar-
flokkurinn héldi sínum eina manni
með 11,8% fylgi. Píratar myndu fá
11,3% og einn mann og sömuleiðis
Björt framtíð, sem fengi 10,3% at-
kvæða. Úrtak í könnuninni var 682
manns og svarhlutfall 54%. »14
Meirihlut-
inn héldi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það þarf að vinna nokkur frumvörp út frá til-
lögum hópsins. Einhver geta komið fram til-
tölulega fljótlega en önnur mun taka einhverja
mánuði að vinna,“ segir Sigurður Hannesson,
formaður sérfræð-
ingahóps um höfuð-
stólslækkun verð-
tryggðra lána.
Áhrifin af boðuðum
aðgerðum komi því
ekki að fullu fram
fyrr en á næsta ári.
„Það var ekki
verkefni hópsins að
velta fyrir sér tekju-
öflun ríkissjóðs í
þessu máli. Við gáf-
um okkur tilteknar
forsendur um fjár-
mögnun verkefn-
isins, þannig að það
væri þá fullfjármagnað. Það kemur aðeins ein
tillaga frá hópnum. Við skoðuðum tugi sviðs-
mynda. Fimm voru skoðaðar alla leið,“ segir
Sigurður en endanleg ákvörðun var tekin
klukkan fimm í gærmorgun undir lok 15
klukkustunda lokafundar sérfræðingahópsins.
Tillögurnar voru samþykktar á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær og verða kynntar á þing-
flokksfundum stjórnarflokka í dag og á blaða-
mannafundi í Hörpu. Skv. heimildum Morgun-
blaðsins hafa þær verið kynntar nokkrum
starfsmönnum Seðlabankans lauslega síðustu
daga. Starfsmenn SÍ vildu ekki tjá sig um það.
Verður
gert í
skrefum
Útfærsla skulda-
tillagna mun taka tíma
Tveir fundir
» Þingmenn
Framsóknar fá að
sjá tillögurnar í
Ráðherra-
bústaðnum kl. 11.
» Þingmenn
Sjálfstæðis-
flokksins hittast í
Valhöll kl. 12.
DAGA
HRINGFERÐ
Morgunblaðið og mbl.is leggja á morgun upp í 100
daga hringferð um landið sem stendur út nóvember
næstkomandi. Til umfjöllunar verða flestir þéttbýlis-
kjarnar landsins og fjöldi annarra áhugaverðra staða.
Hringferð Hefur verið farin undan-
farna 100 daga á síðum blaðsins.
Anna Lilja Þórisdóttir
Stefán Gunnar Sveinsson
Um helgina lýkur 100 daga
hringferð Morgunblaðsins sem farin
var í tilefni 100 ára afmælis blaðsins.
Í ferðinni, sem hófst á Akranesi 23.
ágúst, voru flestir þéttbýlisstaðir á
landinu sóttir heim. Lokaáfanga-
staðurinn og umfjöllunarefni blaðsins
í dag er Reykjavík.
Tilgangur ferðarinnar var að fá
innsýn í daglegt líf og störf fólksins í
landinu árið 2013.
Hvar sem komið var voru viðtök-
urnar góðar. Ósjaldan höfðu heima-
menn kynnt sér hvenær umfjöllunar
um byggðarlag þeirra væri að vænta
og sendu ábendingar um efni.
Fjallað hefur verið um fólk og
fyrirtæki, menningu, landslag, sögu
og viðburði. Fjöldi viðmælenda skipt-
ir hundruðum, rætt hefur verið við
fólk á öllum aldri og í fjölmörgum
starfsstéttum; börn, íbúa á elliheim-
ilum, menntaskólanema, sjómenn,
forstjóra, bændur, listafólk, frum-
kvöðla og iðnaðarmenn, svo fátt eitt
sé nefnt.
Í tengslum við umfjöllunina hafa
birst um 550 greinar á 243 síðum í
Morgunblaðinu. Á mbl.is hafa birst um
150 fréttir og myndskeið úr ferðinni.
100 daga hringferð Morgunblaðs-
ins um landið lýkur á fullveldisdaginn,
sunnudaginn 1. desember, á því að
Haraldur Johannessen ritstjóri ræðir
við Sigmund Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra og Bjarna Benedikts-
son fjármálaráðherra í beinni útsend-
ingu á mbl.is fyrir framan áhorfendur í
sal í Hörpu.
Umræður Haraldar, Sigmundar
og Bjarna munu byggjast á því sem
komið hefur fram í hringborðs-
umræðum hringferðarinnar og nið-
urstöðum viðhorfskönnunar meðal
300 forystumanna úr atvinnulífinu og
sveitarstjórnum um land allt sem
birtist í Morgunblaðinu í dag.
Landsmönnum gefst einnig
tækifæri til að hafa áhrif á um-
ræðuna, en hægt er að senda spurn-
ingar á netfangið hringlok@mbl.is, á
facebook-síðu mbl.is og í gegnum
twitter með því að nota #hringlok.
Líf og starf í 550 fréttum á 100 dögum
Hundrað daga hringferð Morgunblaðsins hófst á Akranesi 23. ágúst og lýkur í Reykjavík um helgina
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
MReykjavík »32-43
Um 480 ökumenn voru stöðvaðir í ölvunar- og
fíkniefnaaksturseftirliti lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra á Hring-
braut í Reykjavík í gærkvöldi. Tveir ökumenn
reyndust vera undir áhrifum áfengis og voru þeir
handteknir. Þeir mega búast við ökuleyfissvipt-
ingu. Ökumaður og farþegar bílsins á myndinni
voru hins vegar allsgáðir en í gleðivímu.
Allsgáðir vegfarendur en í gleðivímu
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan kannaði ástand ökumanna á Hringbraut
Stóraukin umsvif í ferðaþjónustu
ásamt uppgangi í sjávarútvegi,
góð áhrif samgönguframkvæmda,
efling skólahalds og rannsókna
og gróska í menningarlífi er það
sem helst hefur gerst til batnaðar
í atvinnu- og byggðamálum hér á
landi á undanförnum árum. Horf-
ur eru bjartar ef landsmenn ná
að nýta sér þau tækifæri sem
bjóðast.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í könnun Morgunblaðsins
meðal tæplega 200 forystu-
mannna í atvinnulífi og sveit-
arstjórnum um land allt. »28-31
Mörg vandamál
en bjartar horfur