Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sólin verður æ sjaldséðari gestur í daglegu lífi
landsmanna nú þegar aðeins tæpur mánuður er í
vetrarsólstöður. Í Reykjavík, þar sem þessi
mynd var tekin af Vífilsfelli og nærfjöllum, líða
nú aðeins rúmar fimm klukkustundir frá sól-
arupprás til sólseturs.
Oft hefur verið lagt til að breyta klukkunni til
að nýta sólarstundirnar betur. Nú liggur fyrir
Alþingi frumvarp Bjartrar framtíðar sem geng-
ur út á að seinka klukkunni um eina klukkustund
þannig að morgunninn verði bjartari. Heildar-
fjöldi sólarstunda verður þó óbreyttur.
Dimmasti tími ársins gengur í garð
Morgunblaðið/Kristinn
Sólarstundirnar verða æ styttri þessi dægrin á Íslandi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mjólkursamsalan mun greiða fullt
verð fyrir alla þá mjólk sem kúa-
bændur geta framleitt á næsta ári.
Vonast formaður stjórnar til þess að
það skili 4-5 milljónum lítra til við-
bótar þegar ákveðnum kvóta næsta
árs. Samkvæmt því gæti framleiðslan
orðið 127-128 milljónir lítra á árinu.
„Við þurfum að styrkja birgðastöð-
una og svo gerum við ráð fyrir því að
sú aukning sölu á mjólk og mjólkur-
vörum sem verið hefur á þessu ári
haldi áfram. Þetta er okkar svar, til
að tryggja neytendum fullt framboð
af hágæðavörum,“ segir Egill Sig-
urðsson, bóndi á Berustöðum og for-
maður stjórnar Mjólkursamsölunn-
ar.
Tækifæri fyrir duglega bændur
Vegna mikillar aukningar í sölu á
seinni hluta ársins, sérstaklega á fitu-
ríkum vörum, tilkynnti MS í vetur að
öll mjólk sem framleidd er á árinu
yrði greidd fullu verði. Stefnir í að
heildarframleiðsla ársins verði lið-
lega 122 milljónir lítra. Greiðslu-
markið var hækkað fyrir næsta ár
um 7 milljónir lítra og verður alls 123
milljónir lítra. Það dugar ekki miðað
við þróunina á innanlandsmarkaði
svo stjórn Mjólkursamsölunnar taldi
þörf á frekari hvatningu til fram-
leiðsluaukningar. Því verður greitt
fullt verð fyrir alla mjólk á næsta ári,
hvort sem hún er framleidd innan eða
utan kvóta.
Egill reiknar ekki með kúvendingu
í framleiðslu hjá hverjum og einum.
„Þetta skapar ákveðin tækifæri fyrir
duglega bændur. Þeir geta nýtt betur
þá gripi sem þeir eiga,“ segir Egill.
Ákvörðunin var tilkynnt á haust-
fundi fulltrúaráðs Auðhumlu, aðal-
eiganda Mjólkursamsölunnar, í gær.
Egill segir að hún hafi mælst vel fyr-
ir. „Það er alltaf gott að fá jákvæðar
fréttir í skammdeginu.“ »24
Fullt verð fyrir alla mjólk
Mjólkursamsalan hvetur bændur til að auka framleiðsluna enn frekar vegna
söluaukningar Vill kaupa 4-5 milljónir lítra umfram úthlutaðan kvóta
Morgunblaðið/Eggert
Afurðir Aukin sala á mjólkurvörum
skapar tækifæri fyrir bændur.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Við kærastan mín vorum að kaupa
okkur íbúð í Þingholtunum fyrir
stuttu og vorum búin að vera að
dunda okkur við það að gera hana
fína. Svo sá ég að það var komið eitt-
hvert graffití á vegginn við inngang-
inn hjá okkur,“ segir Arnar Sigurðs-
son kvikmyndagerðarmaður.
Honum gramdist þessi gjörningur
skemmdarvargsins og hóf aðgerðir
til þess að hafa uppi á þeim sem bar
ábyrgð á krotinu.
Gúglaði manninn
Hann segir að hann hafi haft uppi
á manninum með því að gúgla titil
sem ritaður var inn í merkið fyrir
utan innganginn. „Ég komst inn á
einhverja bloggsíðu og það sást aug-
ljóslega að um réttan einstakling
var að ræða þar sem hann var á ferð
um Reykjavík,“ segir Arnar. Hann
segir að um hafi verið að ræða ung-
an bandarískan ferðalang. ,,Ég
skrifaði til hans bréf sem var að
mínu mati kurteist og vinsamlegt en
samt með þeirri vinsamlegu hótun
að ég myndi gera heyrinkunnugt
hvernig hann kæmi fram á þeim
stöðum sem hann heimsækir,“ segir
Arnar.
Ekki leið á löngu þar til Arnar
fékk orðsendingu frá ferðalangnum
sem baðst afsökunar á hátterni sínu.
Ennfremur gerði hann sér ferð að
húsi Arnars og Arnhildar Lilý Karls-
dóttur konu hans þar sem hann mál-
aði yfir það sem hann hafði gert.
„Svo skildi hann eftir krumpaðan
sígarettupakka með íslenskum og
bandarískum seðlum til þess að bæta
fyrir ónæðið,“ segir Arnar sem var
afar ánægður með þessi viðbrögð
mannsins.
Hann hefur nú boðið veggjakrot-
aranum í kaffi og hann og kærasta
hans hafa þegið boðið. „Við eig-
inkonan höfum fullan skilning á
skapandi þörfum mannsins og erum
ekki að setja okkur á háan hest,“
segir Arnar.
Krotarinn baðst afsökunar
Ljósmynd/Arnar Sigurðsson
Bætur Krotarinn skildi eftir seðla.
Hafði uppi á manni sem hafði spreyjað merki á hús hans
Íslenskur karlmaður á miðjum aldri
lét lífið í bílslysi í Taílandi um síð-
ustu helgi. Maðurinn var á ferð með
erlendri konu sem slasaðist.
Borgaraþjónusta utanríkisráðu-
neytisins hefur haft aðkomu að mál-
inu og verið í sambandi við aðstand-
endur.
Ekki er hægt að greina frá nafni
hins látna að svo stöddu.
Þá er ekki hægt að greina frá því
hvar slysið varð, né fengust upplýs-
ingar um líðan konunnar sem var
með manninum í bílnum.
Íslendingur
lést í bílslysi
í Taílandi
Kópavogsbær
hefur bætt að-
stöðu til skíða-
göngu í aust-
anverðum
Fossvogsdal.
Þetta kemur
fram á vef bæj-
arins en þar seg-
ir að skíðagöngu-
félagið Ullur hafi
átt frumkvæðið
með erindi til bæjarins í fyrra.
Svæðið nær frá Fagralundi,
íþróttasvæði HK, austur að Kjarr-
hólma og Víkingssvæðinu. Skíða-
göngumenn gætu nýtt sér aðstöð-
una strax í næstu viku en að sögn
Veðurstofunnar kann að vera
skíðafært á höfuðborgarsvæðinu
eftir éljagang í vikubyrjun. Er svo
spáð úrkomulausu, köldu veðri.
Allt til reiðu og bara
beðið eftir snjónum
Skíðaganga Holl
og góð hreyfing.
Karamella:
175 g Ljóma
2 dl sykur
3 dl rjómi
0,5 dl síróp
Botn:
125 g mjúkt Ljóma
4 dl hveiti
0,5 dl sykur
Twix-bitar
Yfir:
200 g rjómasúkkulaði
Hnoðið hráefnunum í botninn á formi
sem er ca. 20 x 30 cm. Bakið við
175°C í 20 mínútur.
Setjið öll hráefnin í karamelluna í pott
og látið suðuna koma upp. Sjóðið við
vægan hita í 45–50 mínútur. Til að
sjá hvort karamellan er tilbúin er gott
að setja smá af henni í glas með
ísköldu vatni. Ef það gengur að hnoða
karamelluna í kúlu er hún tilbúin.
Karamellan á að vera mjúk en hægt
að rúlla henni saman. Hellið
karamellunni yfir botninn og setjið í
ísskáp í ca. 15 mínútur.
Bræðið súkkulaðið og hellið því yfir
karamelluna. Látið kólna í ísskáp og
skerið síðan í bita.
Tilraunir til
smygls á LSD
hafa stóraukist
milli ára og hafa
tollverðir lagt
hald á 700
skammta af efn-
inu það sem af
er ári, borið
saman við 10 allt
árið í fyrra. Þá
hafa tollverðir
stöðvað smygl á rúmlega 14.000 e-
töflum það sem af er þessu ári.
Fram kemur í tilkynningu frá
embætti tollstjóra að það sé mun
meira magn en árið 2012, þegar lagt
var hald á 1.500 e-töflur. Þá hefur
verið lagt hald á metmagn af am-
fetamíni það sem af er þessu ári, eða
rúm 30 kíló, eins og áður hefur kom-
ið fram.
Reynt að smygla
mun meira af LSD
Eitur E-töflur kom-
ast ekki alla leið.