Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Páll Magnússon útvarpsstjóri gerir
ekki ráð fyrir að sú 500 milljóna
króna sparnaðarkrafa, sem gerð hef-
ur verið á Ríkis-
útvarpið (RÚV),
verði dregin til
baka. Hann bind-
ur þó vonir við að
Illugi Gunnars-
son, menningar-
og menntamála-
ráðherra, taki
ekki 215 milljónir
króna til viðbótar
af útvarpsgjald-
inu, eins og rætt hefur verið um.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Páll að fækka þurfi starfsmönnum
hjá RÚV um sextíu og að þar af verði
beinar uppsagnir 39 talsins. „Í 21 til-
viki er um að ræða samninga um
starfslok. Í einhverjum tilvikum er
eftirlaunatöku flýtt, tímabundnir
samningar, sem renna út, verða ekki
endurnýjaðir og þar fram eftir göt-
unum. Þess vegna er munur gerður á
þessum 39 og 21,“ segir hann.
Starfsfólki fækkað um 100
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að um síðustu áramót hefðu starfs-
menn RÚV verið 37 færri en þeir
voru árið 2007, samkvæmt árs-
skýrslum stofnunarinnar. Hins veg-
ar hafi allt að 114 starfsmönnum ver-
ið sagt upp störfum í fjölda-
uppsögnum frá sumrinu 2008, að
undanskildum uppsögnunum á mið-
vikudag.
Páll segir mikilvægt að rugla ekki
meðaltalsfjölda stöðugilda, sem fram
kemur í ársskýrslum, saman við
fjölda starfsmanna á einhverjum til-
teknum tímapunkti. „Þegar starfs-
menn voru flestir voru þeir 342 á ár-
unum 2007 til 2008. Sambærileg tala
í dag er 305. Ef maður dregur þessa
sextíu starfsmenn frá, þá er talan
komin niður í rúmlega 240. Hvað
hefur þá fækkað um marga starfs-
menn frá 2008? Þeim hefur fækkað
um 100. Það er sú tala sem er rétt.
Þetta eru engin kjarnorkuvísindi.
Starfsmönnum Ríkisútvarpsins hef-
ur fækkað um 100 með aðgerðunum
sem gripið var til á miðvikudag.“
„Engin afgerandi áhrif“
Árið 2011 fór ESA, Eftirlitsstofn-
un EFTA, fram á að íslensk yfirvöld
breyttu fyrirkomulagi á fjármögnun
RÚV. Var RÚV gert að skilja á milli
þeirrar starfsemi sem snýr að al-
mannaþjónustu og þeirra þátta í
starfi RÚV sem lúta markaðslögmál-
um. Aðspurður hvort þær aðgerðir
hafi falið í sér kostnaðarauka fyrir
rekstur Ríkisútvarpsins segir Páll
svo vera en að sá kostnaðarauki sé
ekki orðinn. „Eina sem má segja að
sé til kostnaðarauka í niðurstöðu
ESA er að okkur var gert að stofna
dótturfélög um aðra þætti rekstrar-
ins en það sem skilgreint er sem al-
mannaþjónusta. Það verður einhver
kostnaður í því fólginn, einhverjir
tugir milljóna, en hann ræður engum
úrslitum og hefur engin afgerandi
áhrif á okkur,“ bendir Páll á.
- Nú er ekki búið að samþykkja
fjárlagafrumvarpið. Áttu von á því
að sparnaðarkrafan á ykkur verði
dregin til baka?
„Nei, ég geri ekki ráð fyrir því, þó
svo að ég voni það auðvitað. En ég
geri mér svo sannarlega vonir um að
menntamálaráðherra bæti ekki við
215 milljóna króna niðurskurði til
viðbótar, eins og hann hefur rætt
um. Því það hafa komið fram hug-
myndir um að taka 215 milljónir til
viðbótar af útvarpsgjaldinu og nota
þær til að reka Háskóla Íslands. Ég
vona að hann falli frá þeim fyrirætl-
unum.“
Hætt verði við frekari niðurskurð
Útvarpsstjóri segir að starfsfólki RÚV hafi fækkað um hundrað frá 2008 Segir kröfur ESA ekki
hafa haft afgerandi áhrif á reksturinn Gerir ekki ráð fyrir að niðurskurður verði dreginn til baka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldauppsagnir „Ég get sagt það að það var gengið afar faglega fram í þessum uppsögnum og fengnir til þess ut-
anaðkomandi sérfræðingar, svo sem mannauðsfræðingar og vinnusálfræðingar,“ segir Páll Magnússon.
Klaufalegar uppsagnir?
» Fram kemur í tilkynningu frá
Hollvinum Ríkisútvarpsins að
„klaufalega, ófaglega og
ómannlega“ hafi verið gengið
fram í uppsögnunum.
» Páll er ósammála því.
» Hann segir að fengnir hafi
verið utanaðkomandi sérfræð-
inngar, svo sem mannauðs-
fræðingar og vinnusálfræð-
ingar.
Páll Magnússon
Embætti ríkisskattstjóra og
Reykjavíkurborg hafa fengið við-
urkenningu fyrir bestu vefina
meðal ríkisstofnana og sveitarfé-
laga og ríkisstofnana. Viðurkenn-
ingarnar voru afhentar á fjöl-
sóttri ráðstefnu þar sem fjallað
var um stefnuna um upplýsinga-
samfélagið og þau verkefni sem
henni tengjast. Ráðstefnan var
haldin á vegum innanríkisráðu-
neytis, Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og Ský, Skýrslutækni-
félags Íslands. Skv. upplýsingum
innanríkisráðuneytisins hafa
kannanir á gæðum opinberra
vefja farið fram annað hvert ár
frá árinu 2005.
Alls voru kannaðir 265 vefir að
þessu sinni.
Vefur Ríkisskattstjóra fékk viðurkenningu.
Verðlaun veitt fyrir
bestu vefsíðurnar
Morgunblaðinu hefur borist at-
hugasemd frá rekstrarfélagi Sarps
vegna fréttar sem birtist í blaðinu
26. nóvember sl. um vef Listasafns
Reykjavíkur. Í fréttinni er haft
eftir viðmælanda að vefurinn sarp-
ur.is bjóði ekki upp á þann sveigj-
anleika sem þarf til að vera að-
gengilegur á snjallsímum og
spjaldtölvum. Fulltrúar Sarps
segja þetta rangt, vefurinn hafi
verið hannaður frá upphafi með
slík tæki í huga og hafi það gefið
góða raun.
Athugasemd
vegna fréttar
Auglýsing eftir framboðum til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Samkvæmt ákvörðun fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi fer fram prófkjör um val
frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi við bæjarstjórnarkosningar
31. maí 2014. Prófkjörið verður haldið 8. febrúar 2014.
Frambjóðendur í prófkjörinu skulu valdir þannig:
A. Gerð er tillaga til kjörnefndar fyrir 19. desember kl. 18.00. Tillagan er því aðeins gild
að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri en sex
tillögum.
B. Tillagan skal borin fram á 20 flokksmönnum búsettum í Kópavogi. Kjörnefnd er heimilt
að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum samkvæmt A - lið.
Hér með auglýsir kjörnefnd fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi eftir
frambjóðendum til prófkjörs sbr. A lið hér að ofan. Skal framboðið bundið við flokks-
bundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til
framboðs í prófkjörinu. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í bæjarstjórnarkosningunum í
Kópavogi 31. maí 2014.
Tillögum að framboðum ber að skila ásamt mynd og stuttu æviágripi á tölvutæku formi til
kjörnefndar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi sem veiti þeim viðtöku í
Sjálfstæðishúsinu Hlíðarsmára 19.
Allar nánar upplýsingar um prófkjörið veitir formaður kjörnefndar Bragi Michaelsson,
bragimich@simnet.is.
Framboðsfrestur er til 19. desember 2013 kl 18.00.