Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu
á Austurvelli sunnudaginn 1. des-
ember kl. 16. Viðburðurinn hefur
um áratuga skeið markað upphaf
jólahalds í borginni.
Fyrir hönd Reykvíkinga mun Jón
Gnarr borgarstjóri veita greni-
trénu viðtöku úr hendi Dag Wernø
Holter, sendiherra Noregs, og Rinu
Marin Hansen, borgarfulltrúa
Verkamannaflokksins í Ósló. Að því
loknu mun hinn sjö ára gamla
norsk-íslenski Ólafur Gunnar Steen
Bjarnason tendra ljósin á trénu.
Jólasveinar koma í heimsókn,
Sigríður Thorlacius og Ragnhildur
Gísladóttir syngja og einn sig-
urvegara í stóru upplestrarkeppni
grunnskóla, Stefanía Ragn-
arsdóttir, nemandi í Langholts-
skóla, frumflytja kvæði um Glugga-
gægi.
Kynnir verður Gerður G. Bjarkl-
ind.
Morgunblaðið/Sverrir
Ljósin tendruð
á Óslóarjólatrénu
Íþróttafélagið Ösp heldur jólabingó
í hátíðasal Hólabrekkuskóla sunnu-
daginn 1. desember kl. 14.00.
Bingóið er til styrktar félaginu og
því starfi sem þar er unnið fyrir
þroskahamlað og fatlað íþróttafólk.
„Veglegir vinningar verða í boði,
s.s. flug til Evrópu, ævintýraferðir
innanlands, gisting við hringveg-
inn, út að borða, allskonar dekur,
gjafakörfur og margt fleira sem
fyrirtæki hafa gefið af miklum
rausnarskap,“ segir í tilkynningu.
Sérstaða Íþróttafélagsins Aspar
er sú að á æfingum félagsins þarf
fleiri þjálfara og aðstoðarfólk en
hjá öðrum íþróttafélögum.
Flugferðir á
Jólabingói Aspar
Jólaþorpið á
Thorsplani í
Hafnarfirði
verður opnað í
dag, laugardag,
kl. 12 og þessa
fyrstu aðventu-
helgi verður
viðamikil dag-
skrá. Aðal-
viðburðurinn er
þegar tendrað
verður á jólatrénu fyrir miðju
þorpsins kl. 16,30 en tréð er gjöf
frá vinabæ Hafnarfjarðar, Frið-
riksbergi í Danmörku. Í þeirri
dagskrá tekur þátt Karlakórinn
Þrestir ásamt Kristjáni Jóhanns-
syni, álfadrottningunni, grýlu og
jólasveinunum og gestir þorpsins
munu telja niður þegar jólaljósin
verða kveikt.
Í litlu jólahúsunum er ýmislegt
í boði sem tilvalið er að setja í
jólapakka. Alls konar gjafavara,
heimilisiðnaður, handverk og
hönnun, ásamt gómsætum veit-
ingum líkt og heitu kakói, smá-
kökum og vöfflum. Jólaþorpið er
opið frá kl. 12-17 allar helgar
fram til jóla og einnig 19. og 20.
desember auk Þorláksmessu frá
16-21. Fjölbreytt skemmtidagskrá
á sviði. Sjá nánar á www.hafn-
arfjordur.is
Jólaþorpið á
Thorsplani opnað
Kristján
Jóhannsson
STUTT
Árleg friðarganga Árskóla á Sauð-
árkróki fór fram í gærmorgun. Gengu
nemendur frá skólanum að kirkjunni
og mynduðu þaðan keðju upp kirkju-
stíginn og að stóra ljósakrossinum á
Nöfunum. Afhentu krakkarnir frið-
arljós frá fyrsta nemanda að þeim síð-
asta með friðarkveðju. Neðst í keðj-
unni voru yngstu nemendurnir og svo
koll af kolli.
Veður var gott en kalt en frið-
arganga markar upphaf aðventunnar á
Sauðárkróki um leið og kveikt er á
krossinum. Í dag verður kveikt á jóla-
trénu á Kirkjutorgi, að loknu jólahlað-
borði Rotary fyrir bæjarbúa.
Friðarganga
á Króknum
Ljósmynd/Hjalti Árnason
Um fátt hefur meira
verið fjallað í þjóðmála-
umræðunni í meira en
heila öld en skatta og
gjöld. Sögu skattkerfis-
breytinga hefur þó ekki
verið gerð fræðileg skil fyrr en núna með
ritinu Í þágu þjóðar eftir Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðing. Tíundarkerfið forna var orðið
úrelt á 19. öld og þjóðina vantaði tilfinnan-
lega sameiginlegan sjóð, ríkissjóð, til að geta
byggt uppnútímasamfélag. Það var gertm.a.
með því að taka upp tekjuskattskerfi árið
1877. Allar ríkisstjórnir hafa síðan breytt
skattalögum og því er ritið hvort tveggja í
senn mikilvægt framlag til stjórnmálasögu
þjóðarinnar oggrundvallarrit umsögu skatta
og skattkerfisbreytinga á árunum1877–2012.
Sagan er sögð á ljósanog skilmerkileganhátt
og margt kemur fram sem áhugafólki um
þjóðarsöguna mun þykja fengur að.
Saga skatta og skattkerfisbreytinga
á Íslandi 1877−2012
Friðrik G. Olgeirsson
Bækurnar fást í bókaverslunum Pennans/Eymundsson
og hjá Bóksölu stúdenta
Í þágu þjóðar