Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þjálfunarmiðstöðin Hólaborg verður undir sér-
stöku eftirliti héraðsdýralæknis og þarf að lúta
sérstökum smitvörnum til 18. desember. Ástæð-
an er sú að 18. nóvember sl. járnaði Steven O.
Grady, dýralæknir og járningameistari, hestinn
Blysfara frá Fremra-Hálsi og notaði til verksins
notuð járningaáhöld, hanska, svuntu og
vinnuskó, sem innflutningur er bannaður á.
Bannað er að flytja inn notuð járningaáhöld og
annan búnað samkvæmt íslenskum lögum um
dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Þar af leiðandi hafa allir hestar verið settir
undir aukið eftirlit og kröfur gerðar um sérstak-
ar smitvarnir á þjálfunarstöðinni sem í hlut átti.
Enginn hestur má fara frá stöðinni án samþykkis
héraðsdýralæknis og gildir sú ráðstöfun í a.m.k.
fjórar vikur eða þar til hægt er að staðfesta að
smit hafi ekki borist í hestana.
Járningamaðurinn var farinn af landi brott
þegar fréttist af athæfinu, segir Sigríður Björns-
dóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Mat-
vælastofnun, en honum hefur verið gerð grein
fyrir broti sínu.
Þrjú ár eru síðan fresta þurfti landsmóti
hestamanna vegna smitandi hósta sem geisaði í
hrossum hér árið 2010. Það reyndist vera nýr
stofn af bakteríunni Streptococcus zooepidem-
icus sem hafði borist til landsins.
„Sá faraldur hafði í för með sér gríðarlegt fjár-
hagslegt tjón fyrir hestamennskuna sem at-
vinnugrein. Greinin er ekki að öllu leyti búin að
jafna sig eftir það áfall,“ segir Sigríður og vill
brýna fyrir hestamönnum að sótthreinsa vel all-
an fatnað sem hefur komist í snertingu við hesta
erlendis og að allur innflutningur á notuðum
búnaði er óheimill. Íslenski hrossastofninn er
óvarinn gegn öllum helstu smitsjúkdómum sem
þekktir eru í hrossum erlendis. Skortur á sér-
tækri mótstöðu ásamt ýmsum þáttum í hrossa-
haldinu hér á landi, s.s. mikill þéttleiki og flutn-
ingar, ýta undir hættuna á að ný smitefni nái að
magnast upp og breiðast hratt út.
„Hestamenn verða að standa saman um varnir
gegn því að ný smitefni berist til landsins,“ segir
Sigríður. „Þeir þurfa að fræða erlenda sam-
starfsaðila sem gera sér ekki grein fyrir sjúk-
dómastöðunni hér á landi um lög og reglur um
sjúkdómavarnir. Þá ber að varast að taka á móti
erlendum gestum í hesthús eða annað umhverfi
hesta án þess að tryggt sé að reglum um smit-
varnir hafi verið framfylgt við komuna til lands-
ins.“
Mun harðari viðurlög við
sömu brotum í öðrum eyríkjum
„Ef álíka tilvik hefði komið upp í Nýja-Sjálandi
eða Ástralíu hefði verið beitt hörðum viðurlög-
um,“ segið Haraldur Þórarinsson, formaður
Landssambands hestamannafélaga, LH. Hann
segir það virkilega slæmt að enginn sem stóð að
því að fá manninn til landsins hafi gripið inn í.
„Það virðist enginn átta sig á alvarleika máls-
ins. Þetta er algjörlega óviðunandi og hálfgerður
skrípaleikur,“ segir Haraldur. Hann vísar til
þess að síðustu ár hafa hestamenn orðið uppvísir
að vítaverðu kæruleysi varðandi innflutning á
ýmsum búnaði sem hefur komist í snertingu við
hesta erlendis.
Í desember heldur LH fund þar sem þetta mál
verður tekið fyrir. Haraldur segir nauðsynlegt
að grípa til aðgerða. „Við þurfum hreinlega að
skoða hvort við þurfum að herða lögin svo skiln-
ingur á alvarleika málsins sé öllum ljós.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hestar Allir hestar á þjálfunarmiðstöð á Suðurlandi verða í farbanni til 18. desember vegna
þess að erlendur járningameistari brúkaði notuð áhöld, sem bannað er að flytja inn til landsins.
Hross í fjögurra vikna farbann
Greinin verður að sýna samtakamátt
Hestamenn átta sig ekki á alvarleika málsins
„Svo að það komi skýrt fram þá virði ég
lög/reglugerðir hvers lands og hefði fylgt
þeim í einu og öllu hefði ég verið upplýstur
um þær áður en ég lagði í þessa ferð,“
stendur í yfirlýsingu frá Steve O’Grady,
dýralækni og járningameistara sem flutti
inn notaðan búnað þegar hann kom til
landsins til að meðhöndla Blysfara frá
Fremra-Hálsi og birtist á vefnum eidfaxi.is.
Ennfremur kemur þar fram að honum hafi
ekki verið kunnugt um hvaða reglur eða
takmarkanir séu í gildi varðandi flutning á
járningarverkfærum til Íslands. Þá hafii
hann geymt ferðasettið sitt í frysti í fjór-
tán klukkustundir til að drepa bakteríur,
segir hann ennfremur.
Var ekki kunnugt um reglurnar
YFIRLÝSING FRÁ STEVE O’GRADY JÁRNINGAMEISTARA
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Samband íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga, SÍBS, fagnaði
75 ára afmæli sínu á dögunum. Saga
sambandsins hef-
ur nú verið tekin
saman í bókinni
Sigur lífsins:
SÍBS í 75 ár
-1938-2013. Í bók-
inni er farið yfir
sögu SÍBS frá
upphafi og til
dagsins í dag með
megináherslu á
sögu sambands-
ins sjálfs. Þó er einnig fjallað um
Reykjalund og Múlalund og aðrar
stofnanir og aðildarfélög sambands-
ins.
Pétur Bjarnason, höfundur bók-
arinnar og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri SÍBS, segir að bókin
hafi átt sér nokkurn aðdraganda. Ár-
ið 1988, á fimmtíu ára afmæli Sam-
bandsins, hafi komið út SÍBS bókin,
sem hefði verið góð á sínum tíma, en
bæri þess merki að hafa verið rituð á
skömmum tíma.
Saga samtakanna frá upphafi
Upphaflega hefði staðið til að
skrifa söguna þaðan sem frá var
horfið í þeirri bók, en komið hefði í
ljós að það gengi illa upp. „Fyrir
rúmu ári fór ég fram á að fá að skrifa
söguna frá upphafi, því að bækurnar
tvær yrðu svo ólík verk,“ segir Pétur.
Pétur segir að ekki hafi margt
komið sér á óvart við ritun bók-
arinnar, þar sem hann hafi verið ná-
tengdur sambandinu í langan tíma
og þekkt söguna allvel. „Ég ritstýrði
meðal annars SÍBS-blaðinu og var
þar oft með greinar frá gömlum
tíma,“ segir Pétur. „En það sem er
eftirminnilegast er bjartsýni frum-
kvöðlanna og óbilandi dugur. Þetta
voru sjúklingar en það sást hvergi í
störfum þeirra að þarna væru sjúkir
menn á ferð,“ segir Pétur.
Pétur segir að starf SÍBS hafi
sameinað fólk úr ólíklegustu áttum.
„Starfið gekk þvert á flokkslínur,
menn komu úr öllum flokkum og
voru framarlega í öllum stjórn-
málaflokkum, bæði forystumenn þar
og þingmenn en það skyggði aldrei á
sameiginlega baráttu þeirra,“ segir
Pétur.
Hann tekur fram að SÍBS hafi
ekki verið stofnað gegn berklaveik-
inni sjálfri, heldur fyrst og fremst til
þess að finna úrræði fyrir þá sjúk-
linga sem höfðu fengið berkla og
þurftu að komast út í lífið á ný. „Það
voru litlir möguleikar fyrir það fólk,
og þetta var meginhlutverk sam-
bandsins,“ segir Pétur.
Starf SÍBS snerist því ekki um
læknisfræðilega baráttu gegn
berklaveikinni, heldur gegn afleið-
ingum hennar. Eftir að sigur vannst
á berklum hérlendis hafi starf sam-
bandsins færst yfir í alhliða end-
urhæfingu eftir aðra sjúkdóma, eins
og t.d. hjartasjúkdóma og fjölmarga
aðra. „Endurhæfing hefur því verið
lykilhugtakið, það hefur verið rauði
þráðurinn í starfi sambandsins í
þessi 75 ár, að hæfa fólk að nýjum
störfum.“
Bjartsýni og óbilandi dugur
Saga SÍBS í 75 ár komin út Starf samtakanna hefur
sameinað fólk úr ólíklegustu áttum, segir höfundurinn
Morgunblaðið/Golli
Pétur Bjarnason
Múlalundur Stærsta og elsta vinnustofa landsins þar sem öryrkjar njóta endurhæfingar.
VVVVV
Jón Yngvi Jóhannsson / Fréttablaðið
VVVVV
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
D Ý R G R I P U R
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Kortið er meðal annars selt hjá
Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð.
Upplýsingar í síma 896 5808.
Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra