Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 29
Morgunblaðið/Ernir
Atvinnulíf Meðal hugmynda sem fram komu í könnuninni var að fyrirtækin í landinu mörkuðu sér menntastefnu og reyndu að skapa fleiri störf fyrir þá sem eiga langa skólagöngu að baki.
Fjölskrúðugar tillögur og hug-
myndir komu fram þegar spurt var
um lausnir á vandamálum sem
snerta atvinnulíf og lífskjör í ein-
stökum landshlutum. Flestar snúa
að stjórnvöldum með einum eða öðr-
um hætti.
Ekki var við því að búast að menn
sæju einfaldar lausnir á einu stærsta
vandamáli landsbyggðarinnar, ein-
hæfu atvinnulífi og skorti á störfum
fyrir fólk með langskólamenntun.
Eftirfarandi var meðal þess sem
nefnt var:
Stofnanir sem þegar eru til staðar
á landsbyggðinni, heilsugæslu-
stöðvar, skólar og dvalarheimili,
ættu að stefna markvisst að því að
hafa fleiri háskólamenntaða í starfi.
(Sveitarstjórnarmaður á Vest-
urlandi.)
Ríkið þarf að fjölga störfum á
landsbyggðinni sem eru vel launuð
og krefjast mikillar menntunar.
(Sveitarstjórnarmaður á Norður-
landi.)
Marka menntastefnu
Stærri fyrirtæki úti á landi þurfa
að marka sér menntastefnu. Þau
ættu að gera auknar kröfur um
menntun starfsfólks. Ríki og sveit-
arfélög þurfa að vinna markvisst að
því að fjölga þekkingarstörfum.
(Skólamaður á Austurlandi.)
Fyrsta skrefið til að leysa ein-
hæfnina væri að ríki og sveitarfélög
stuðluðu meðvitað að uppbyggingu
starfa sem krefjast hás mennt-
unarstigs. (Opinber starfsmaður á
Austurlandi.)
Styðja frumkvöðla
Af öðru tagi eru þessi viðbrögð við
fábreytni atvinnulífsins:
Aukinn stuðningur við sprotafyr-
irtæki. (Sveitarstjórnarmaður á
Austurlandi.)
Þróunarsetur þar sem frum-
kvöðlar hafa möguleika á faglegum
og fjárhagslegum stuðningi. (Sveit-
arstjórnarmaður á Suðurlandi.)
Hið opinbera skapar sífellt ný
störf, þeim ætti að beina að lands-
byggðinni markvisst. (Skólamaður á
Vestfjörðum.)
Auka frumkvöðlastyrki og
áhættulán til lítilla fyrirtækja og
frumkvöðla sem eru að reyna að
skapa atvinnu í nýjum greinum. (At-
vinnurekandi á Vestfjörðum.)
Bæta menntunarstig í mat-
vælaframleiðslu og hvetja til
vöruþróunar og nýsköpunar. (Bæj-
arstjórnarmaður á Suðurlandi.)
Laða að byggðunum öfluga fjár-
festingu sem á endanum byggir upp
vel launuð störf fyrir menntað fólk.
(Atvinnurekandi á Suðurnesjum.)
Framleiðendur gætu reynt að auka
fullvinnslu vöru heima í héraði og
þróa aðar tengdar afurðir tengdar
sinni framleiðslu, hugsanlega með
rannsóknar- og þróunarvinnu. (Sveit-
arstjórnarmaður á Suðurlandi.)
Skilgreina lágmarksþjónustu
Meðal úrbótahugmynda á öðrum
sviðum má nefna þessar.
Íbúðalánasjóður situr á íbúðum á
meðan leiguhúsnæði skortir. Það
þarf að breytast. (Frá Suðurnesjum
og Vesturlandi.)
Forsenda fyrir bættri læknisþjón-
ustu er þjóðarsátt um að borga lækn-
um sambærileg laun og í öðrum nor-
rænum löndum. (Frá Vesturlandi.)
Skilgreina þarf lágmark grunn-
þjónustu um land allt. (Frá Vest-
urlandi.)
Ívilnanir vegna búsetu
Styðja þarf fólk á aldrinum 20-40
ára sem kýs að setjast að á lands-
byggðinni með ýmsum ívilnunum,
afskrift námslána að hluta, lægra
tekjuskattshlutfalli og hærri barna-
bótum. (Frá Vestfjörðum.)
Ný störf sem ríkið skapar verði á
landsbyggðinni samkvæmt mark-
vissri áætlun. (Frá Vestfjörðum.)
Fjarlægðarívilnanir fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki. (Frá Vest-
fjörðum.)
Draga úr kostnaði í kringum störf
að nýsköpun og rannsóknum. (Frá
Vestfjörðum.)
Niðurgreiðslukerfi
Skapa sjávarútveginum raunhæfa
framtíðarsýn. (Frá Norðurlandi.)
Stjórnvöld þrýsti á erlenda fjár-
festa að setja niður orkufreka starf-
semi. (Frá Norðurlandi.)
Fjölbreyttara námsframboð í
heimabyggð. (Frá Norðurlandi.)
Niðurgreiðslukerfi að norrænni
fyrirmynd handa þeim sem þurfa að
sækja atvinnu langt frá heimili sínu.
(Frá Norðurlandi.)
Auka kynningu
Átak í gerð jarðganga og vega-
gerð. (Frá Austurlandi.)
Betri kynning fyrir fjárfesta á
byggðarlögum landsins og tækifær-
um sem þar eru. (Frá Austurlandi.)
Mótuð verði byggðastefna til
lengri tíma. (Frá Austurlandi.)
Draga úr regluverki
Draga úr íþyngjandi regluverki í
atvinnulífinu. (Frá Suðurlandi.)
Byggja upp stórskipahöfn í Þor-
lákshöfn í stað Reykjavíkurhafnar.
(Frá Suðurlandi.)
Álver
Álver í Helguvík verði að veru-
leika. (Frá Suðurnesjum.)
Uppbygging atvinnuklasa í sjáv-
arútvegi og orkutengdri starfsemi.
(Frá Suðurnesjum.)
Skattalækkanir
Lækka skatta til að örva atvinnu-
lífið. (Frá höfuðborgarsvæðinu.)
Halda verðbólgu í skefjum og lækka
vexti. (Frá höfuðborgarsvæðinu.)
Skoða kosti og galla aðildar að
Evrópusambandinu. (Frá höf-
uðborgarsvæðinu.)
Almennar aðgerðir sem leiða til
stöðugleika í efnahagsmálum. (Frá
höfuðborgarsvæðinu.)
Fyrirtækin marki sér menntastefnu
Auka þarf stuðning við frumkvöðla Ívilnanir vegna búsetu á landsbyggðinni Dregið verði úr
íþyngjandi regluverki Lækka skatta til að örva atvinnulífið Móta byggðastefnu til lengri tíma
2Hvernig erhægt að leysa
þessi vandamál?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Hydrovane loftpressur eru lágværar,
fyrirferðarlitlar, öflugar og henta alls
staðar þar sem þörf er á þrýstilofti.
Mikið úrval af hágæðaloftpressum,
lögnum og síum. Bjóðum lausnir
í þrýstilofti fyrir allar aðstæður.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Allt annað líf
- með hljóðlátri loftpressu
Kynntu
þér úrvalið
á idnvelar.is