Morgunblaðið - 30.11.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.11.2013, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hvernig getur Reykjavík átt svona mikið af spennandi yrkisefnum? Svona spurði fólk sig árið 1934 þegar ljóðabókin Fagra veröld eftir Tómas Guðmundsson kom út. Með henni var sleginn nýr tónn í skáldskap og skrif- um. Bærinn við sundin blá, sem óðum var að breytast í borg, varð sögusvið bókmennta sem áttu eftir að breyta sýn fólk á staðinn sem þótti ekki par fínn í sveitasamfélaginu. Leit auga þinn nokkuð fegra „Af bernskuglöðum hlátri stræt- ið ómar, því vorið kemur sunnan yfir sæinn / sjá sólskinið á gangstéttunum ljómar,“ yrkir Tómas í ljóði sínu, Austurstræti. Með þessu var tónninn sleginn og borgarskáld var komið fram. „Leit auga þitt nokkuð fegra – en vorkvöld í Vesturbænum,“ spurði Tómas í öðru ljóði og lagði hverfið að líku við skínandi hallir keisara í Kína. Þessi bæjarhluti væri heimur sem kynslóðir hlóðu „með sálir sem syrgja og gleðjast / og sálir sem hitt- ast og kveðjast,“ orti Grímsnesing- urinn Tómas sem lengst bjó við Egilsgötuna á Skólavörðuholtinu. Samkvæmt útnefningu Unesco, menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, er Reykjavík bókmennta- borg ársins 2013. Efniviðurinn í þann titil er nægur því saga Íslands er skráð alveg aftur á núllpunkt. Finnur enga súlu „On í fjöru Ingólfur/er í skapi fúlu, / fram og aftur flækist þar/en finnur enga súlu, orti Þórarinn Eld- járn um landnámsmanninn úr Sogns- firði í Noregi og fyrsta Reykvíking- inn, Ingólf Arnarson. „Þar fornar súlur flutu á land / við fjarðarsund og eyjaband, þeir reistu Reykjavík,“ orti Einar Benediktsson. Elías Mar er brautryðjandi í ís- lenskum skáldskap og í bókinni Vögguvísu er „sveitin jafnfjarlæg og tunglið. Gamla einangraða Ísland er horfið. Ísland nútímans með peninga- viðskipti og bandarísk dægurmenn- ingaráhrif er komið til að vera,“ segir Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi í bókinni Nýr penni í nýju lýðveldi, sem fjallar um skáldskap Elíasar Marar. Vögguvísa hefst á innbroti og svo segir frá Bambínó sem lá í leðj- unni fyrir utan Sjálfstæðishúsið á Austurvelli. Hjálmar segir að Elías hafi í þessari sögu, sem kom út 1949, skynjað betur en aðrir að amerísk dægurmenning ætti eftir að leggja heiminn undir sig. Bókin hafi því náð að túlka tíðarandann nokkuð vel og það hafi höfundum eins og Ástu Sig- urðardóttur og Indriða G. Þorsteins- syni einnig tekist. Þórbergur Þórðarson bjó á Hringbraut 45 í Reykjavík eins og skýrt er merkt á skilti sem er fest ut- an á húsið. Sambýli fólks í stigagang- inum þar varð skáldinu efniviður í Sálminn um blómið, þroskasögu lít- Sólskin á gangstéttum  Bókaslóðir í borg  Skáldskapur breytti sýn fólks á höf- uðstaðinn  Njálsgata, Laufásvegur, Laugarnes og Hátún Morgunblaðið/Ól.K.M. Reykjavík Með Tómasi Guðmundssyni komu bókmenntirnar í borgina. Skáldið í Lækjargötu á því herrans ári 1976. Einar Már Guðmundsson Elías Mar Steinunn Sigurðardóttir Halldór Laxness Þrettán borgarstjórar í 40 ár  Á sl. fjörutíu árum hafa þrettán manns gegnt embætti borgarstjóra í Reykjavík, allt fólk sem er lifandi. Þessir framkvæmdastjórar stærsta sveitarfélags landsins hafa staldrað við mislengi og af því ræðst að mis- jafnt er hverju þeir hafa áorkað. Borgarstjóri frá 1972 til 1978 var Birgir Ísleifur Gunnarsson, seinna ráðherra og seðlabankastjóri. Á því skeiði var mikil uppbygging í borg- inni og umhverfismálin komust vel á dagskrá með Grænu byltingunni sem svo var kölluð. Egill Skúli Ingibergsson var borg- arstjóri í tíð vinstri meirihlutans frá 1978-1982. Þá náði Sjálfstæð- isflokkur aftur meirihluta sínum undir forystu Davíðs Oddssonar og í hans tíð voru byggð Perla og Ráð- hús, Viðey reist úr öskustó og haldið upp á 200 ára afmæli borgarinnar sem enn er minnst. Markús Örn Ant- onsson tók við af Davíð og Árni Sig- fússon var borgarstjóri um hríð vorið 1994. Í kosningum 1994 náði Reykjavík- urlistinn meirihluta í borginni og hélt til 2006. Lengst af var Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri en síðar komu Þórólfur Árnason og Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Á tólf árum R- listans gerðist margt. Þar má tiltaka uppbyggingu leikskóla, sem var áherslumál. Allt var sett á fullt hjá Orkuveitunni og brotin ný lönd undir íbúðahverfi. R-listinn fjaraði út og eftir kosn- ingar tóku Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokkur við. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson varð borgarstjóri. Fljótt slitnaði upp úr því samstarfi og á kjörtímabilinu fram til 2010 voru borgarstjórar þau Dagur B. Eggerts- son, Ólafur F. Magnússon og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Núverandi borgarstjóri, besta- flokksmaðurinn Jón Gnarr, er allt öðruvísi en fyrirrennarar hans. Með- an menn sitja enn í embætti er ómögulegt að tilgreina hvar viðkom- andi hafi helst markað spor. Þó má nefna að Gnarr hefur beint sjónum að mannréttindum og minni- hlutahópum og beitt sér í þeirra þágu. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Forystufólk Sex fv. borgarstjórar. Frá vinstri Birgir Ísleifur, Egill Skúli, Markús Örn, Ingibjörg Sólrún, Þórólfur Árnason og Steinunni Valdís. Davíð Oddsson Dagur B. Eggertsson „Öskjuhlíðin er ef til vill hin gleymda perla Reykjavíkur, ekki síst vegna takmarkaðra tenginga hennar við ytra umhverfi sitt. Úti- vistargildi svæðisins er mikið vegna fjölbreyttrar náttúru, skjól- góðs skógar, útsýnis yfir borgina og fjallahringinn og áhugaverðra sögulegra minja sem gera mætti verðug skil. Hins vegar týnist margt í skógivaxinni hlíðinni, þ.m.t. yfirsýn, og þarf að opna betur að- gengi að hlíðinni og skóginum með greiðum leiðum,“ segir Þráinn Hauksson landslags- arkitekt. Geislar frá Perlunni sem tengja hana við Öskjuhlíðina og nærumhverfið eru meginstefið í tillögu teiknistof- unnar Landslags, er unnin var af Þráni, Sif Hjaltdal Pálsdóttur og Svövu Þorleifsdóttur sem öll eru landslagsarkitektar FÍLA. Tillagan vann til fyrstu verðlauna í sam- keppi sem Reykjavíkurborg stóð fyrir nýverið, hvar leitað var hug- mynda um skipulag svæðisins. Suð- urgeislinn er megintenging Öskju- hlíðarinnar við strandlengju Fossvogs, þar sem bratti hlíð- arinnar er minnstur. Annar ráðandi þráður í tillögu Landslags er Perlufestin – greið- fær hringleið um ofanverða hlíðina sem þræðir saman áhugaverða staði. Þar er lagt til að söguminjar verði verndaðar og vegur þeirra gerður meiri með merkingum og fróðleiksskiltum. Einnig að gróð- urreitir verði þróaðir í átt að vist- fræðilegum fjölbreytileika og að í austurhlíðinni, sem liggur að Foss- vogskirkjugarði verði birkiskógur með rjóðrum, þar sem blómgróður fái notið sín. „Í tillögunni er lögð áhersla á að skilgreina auðratanlegt net stíga Geislar og greiðari leiðir  Öskjuhlíðin til öndvegis Útsýni Skissa að palli sem komið er fyrir á klettum. Stjórnstöð Neðanjarðarbyrgi breska hersins. Þráinn Hauksson HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ DAGA HRINGFERÐ REYKJAVÍK Morgunblaðið/Ómar Ráðhús Reykjavíkur Þar við tjörnina er stjórnsýsla borgarinnar til húsa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.