Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 42
REYKJAVÍK
DAGA
HRINGFERÐ
42
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
„Hér er gott að vera. Fyr-
irkomulagið er í mjög góðu lagi og
starfsmenn allir af vilja gerðir.
Heilsugæslan er alveg sérstaklega
góð og sjá hjúkrunarkonur og
sjúkraliðar afar vel um okkur,“
segir Edda Jóhannesdóttir, sem
hefur búið í sérbýli í Jökulgrunni,
Hrafnistu í Reykjavík, í níu ár.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Hrafnista í Reykjavík var byggt
fyrir forgöngu sjómannadags-
samtakanna en sjómannadagsráð
var stofnað árið 1937. Fljótlega
kom upp sú hugmynd að byggja
heimili fyrir aldraða sjómenn og
sjómannsekkjur og til að afla fjár
til framkvæmdanna var Happrætti
DAS stofnað. Heimilið var loks
opnað á sjómannadaginn árið 1957
en í byrjun voru þar 130 heim-
ilismenn. Í dag – 56 árum síðar –
búa þar 226 heimilismenn.
Edda Jóhannesdóttir, sem
varð 85 ára á árinu, er ein þeirra.
Hún segir að ástæðan fyrir því að
hún valdi Hrafnistu í Reykjavík
hafi verið sú að hún vildi vera nær
fjölskyldunni, sem býr að mestu
leyti í höfuðborginni. „Ég skoðaði
mig til dæmis um í Hafnarfirði,
Húsavík og á Akureyri en valdi að
lokum Reykjavík,“ segir hún.
Þrátt fyrir að vera í sérbýli í
Jökulgrunni segist Edda vera íbúi
Hrafnistu að öllu leyti. „Hrafnista
er með alveg sérstaka aðstöðu á
dvalarheimilum, heilsugæslu,“
nefnir hún. „Við höfum hver sinn
lækni og síðan kemur augnlæknir
í hverri viku ef við óskum eftir
honum. Við þurfum ekki annað en
að panta tíma og eftir þrjá til
fjóra daga kemur hann. Eins ef
við þurfum sérlæknishjálp. Þá er-
um við send til sérfræðinga undir-
eins,“ nefnir hún. „Svo kíkir
stúlka á hverjum einasta morgni
og á hverju einasta kvöldi á okk-
ur. Það er litið eftir okkur tvisvar
á dag,“ segir Edda sem er sérlega
ánægð með starfsfólkið og þá
þjónustu sem það veitir.
Les spennusögur
Edda er mikill bókaormur og
les spennusögur sér til dægra-
styttingar. „Ef ég byrja á bók
snemma dags er ég oft búin með
hana áður en ég sofna.“
– Er bókasafn hér til staðar?
„Það var bókasafn hérna. En
núna eru bækur um allt hús sem
fólk getur bara lesið að vild. Hing-
að kemur bíll frá Borgarbókasafni
Reykjavíkur einu sinni í viku og
þar er frábær þjónusta. Ég er
meira að segja komin með nýjustu
bók Arnaldar Indriðasonar á borð
hjá mér. Mér liggur alltaf smá á
að lesa Arnald,“ segir hún. Edda
fékk snemma áhuga á bókum en
segist ekki hafa lesið bók nema
um spennusögu væri að ræða. „Ég
var smá-skrítin. Ég las ekki ást-
arsögurnar.“
Syngur mikið og vel
Edda er sannkallaður söng-
fugl en hún er í Vorboðum, kór
eldri borgara í Mosfellsbæ. „Við
æfum einu sinni í viku yfir vetr-
artímann. Byrjum í september og
hættum ekki fyrr en í júní,“ segir
hún. „Einu sinni á vorin höldum
við, ásamt kórum á Selfossi, Akra-
nesi, Reykjanesi og í Hafnarfirði,
tónleika. Síðan syngjum við líka
fyrir fólkið á Hrafnistu.“ Hún seg-
ir nóg að gera í kórstarfinu, sér í
lagi í næsta mánuði, en þá mun
kórinn syngja að minnsta kosti
fimm sinnum. „Við syngjum og
aðrir fá að njóta.
Svo syng ég líka hér á Hrafn-
istu. Ég er meðhjálpari prestsins,
ef svo má að orði komast, og syng
alltaf við helgistundir. „Hún segir
að yfirleitt sé vel mætt í helgi-
stundirnar sem eru haldnar einu
sinni í viku. „Við höfum ósköp
hugljúfan og góðan prest, Svan-
hildi Blöndal, og sinnir hún starfi
sínu ákaflega vel.“
Þá syngur Edda oft með
heimilismönnum undir harm-
onikkuspili. „Þá sit ég við hliðina á
harmonikkuleikaranum og syng.“
Syngur og skemmtir
sér vel á Hrafnistu
Edda Jóhannesdóttir hefur búið á Hrafnistu í níu ár
Söngur og spil Edda Jóhannesdóttir nýtir oft
tækifærin og syngur með heimilismönnum á
Hrafnistu undir harmonikkuspili.
Ýmiskonar þjónusta í boði
STARFSFÓLKIÐ KAPPKOSTAR AÐ VEITA SEM BESTA ÞJÓNUSTU
Ýmiskonar þjónusta er í boði á Hrafnistu.
Eins og fram kemur hér til hliðar starfa
hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar við
hjúkrun og umönnun allan sólarhringinn
og eru læknar á vakt alla virka daga.
Þá er matreiddur hollur og fjölbreyttur
matur í eldhúsum Hrafnistuheimilanna en
matseðillinn er saminn í samráði við nær-
ingarfræðing. Á heimilinu reka þær Dag-
mar Agnarsdóttir og Unnur Ólafsdóttir
hárgreiðslustofu. Þó hún sé fyrst og
fremst ætluð heimilisfólki geta nágrann-
ar, ættingjar og vinir nýtt sér hana.
Vinsæl Hárgreiðslustofan á
Hrafnistu nýtur vinsælda.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Þegar þeir eru ekki í skólanum, að
bralla eitthvað með vinum sínum eða
á fótboltaæfingum með Þrótti
standa þeir vaktina í versluninni
Spilavinum og ráðleggja viðskipta-
vinum um val á spilum og setjast
gjarnan niður að spilum með gestum
og gangandi. Þrátt fyrir ungan aldur
eru bræðurnir Máni Snær og Breki
Steinn Þorlákssynir hafsjór af fróð-
leik um spil og spilamennsku ým-
iskonar.
Spilavinir er sérverslun með
spil og er í eigu móður bræðranna,
Lindu Rósar Ragnarsdóttur, og
Svanhildar Evu Stefánsdóttur. „Við
erum mikið hérna þegar við erum
ekki í skólanum eða á fótboltaæf-
ingum,“ segir Máni Snær sem er 13
ára. „Við hjálpum fólki að finna réttu
spilin og kennum því að spila þau.
Það er svo misjafnt hvaða spil passa
fólki.“ Þetta hlýtur að vera skemmti-
leg vinna? „Að spila á spil? Já, það er
örugglega ekki hægt að hafa það
betra,“ segir Máni Snær.
Mikilvægt að velja rétta spilið
Í Spilavinum er veitt ráðgjöf
um spil og viðskiptavinum gefst
tækifæri til að prófa spil áður en fest
eru kaup á þeim. Bræðurnir segja
ráðgjöf afar mikilvæga þegar um
spilakaup sé að ræða, því spil geti
verið dýr og leiðinlegt sé að hugsa til
þess að fólk kaupi sér spil sem það
spilar svo kannski sjaldan eða aldrei.
„Oft kemur fólk og ætlar að fá
eitthvert spil, en þegar það prófar að
spila það sér það að þetta er ekki spil
fyrir það,“ segir Breki Steinn, 8 ára.
„Sumir koma inn til að skoða,
við drögum þá með okkur í spil og
stundum situr fólk hérna lengi og
spilar við okkur.“ Kunnið þið öll spil-
in í búðinni? „Nei, ekki öll,“ segir
Máni Snær. „En mjög mörg. Ef við
kunnum það ekki, þá kann hitt
starfsfólkið það alveg örugglega.“
„Sum eru of þung fyrir mig,“ skýtur
Breki Steinn inn í.
Talinn vera forvitinn krakki
Bræðurnir hafa verið með ann-
an fótinn í búðinni frá opnun hennar
árið 2007. „Ég hef verið að hjálpa til
síðan þá. Fyrst var ég að verð-
merkja, taka upp úr kössum og
sækja spil fyrir fólk,“ segir Máni
Snær. „En núna fæ ég stundum að
afgreiða. Svo erum við auðvitað mik-
ið í spilakennslunni.“
„Flestir eru mjög ánægðir að
tala við krakka um spil, því margir
eru að kaupa spil handa krökkum.
Sumir fatta ekki alveg að við erum í
alvörunni að vinna hérna í búðinni,
halda kannski að ég sé bara forvitinn
krakki,“ segir Breki Steinn. „En
þeir sjá fljótt að ég veit alveg hvað
ég er að tala um.“
Fimm ára bjó til eigið spil
Hefur ykkur aldrei dottið í hug
að búa til ykkar eigið spil? „Jú, okk-
ur hefur alveg dottið það í hug,“ seg-
ir Máni Snær. „Ég bjó til spil þegar
ég var fimm ára,“ segir Breki
Steinn. „En ég man ekki alveg
hvernig það var.“
Hvað er skemmtilegt við spil?
„Það er samverustundin,“ svarar
Máni Snær. Hvernig er gott spil?
„Það má ekki vera of langt, það þarf
að henta fyrir stóran aldurshóp og
þarf að vera fjölbreytilegt, þannig að
það sé ekki alltaf eins. Það er leið-
inlegt að gera það sama aftur og aft-
ur,“ segja bræðurnir í Spilavinum.
Sjá fljótt að ég veit hvað ég er að tala um
Ungir spilasérfræðingar miðla af
þekkingu sinni og spila við fólk
Morgunblaðið/Golli
Spilavinir Bræðurnir Breki Steinn til vinstri og Máni Snær til hægri segja að gott spil megi ekki vera of langt.
Margur er knár Breki Steinn leiðbeinir ungum viðskiptavini við spilamennsku.
Barnabóka-
búð í kjallara
HALDA SPILAKVÖLD
Verslunin Spilavinir er til húsa
í bláu húsunum við Suður-
landsbraut í Reykjavík og ný-
verið var opnuð sérverslun
með barnabækur í kjallara
hennar.
Reglulega eru haldin spila-
kvöld í búðinni sem eru öllum
opin og vinsælt er að fá Spila-
vini í heimsókn í einstaka
skóla til að halda spilakvöld
fyrir börn og foreldra.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013