Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 53
UMRÆÐAN 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Í grein sem birtist
í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 27.
nóvember er fjallað
um jafnræði í skóla-
starfi í Garðabæ. Þar
er því haldið fram að
greitt sé meira með
börnum í skólum
Hjallastefnunnar
heldur en í skólum
sem reknir eru af sveitarfélaginu.
Í grunninn er samkomulag við
Garðabæ um raunverulegt val
fjölskyldna um skóla í bænum.
Það þýðir að sveitarfélagið greið-
ir fullt framlag með barni og á
móti skuldbindur Hjallastefnan
sig til þess að innheimta ekki
skólagjöld með þeim börnum.
Samkvæmt lögum skal sveitarfé-
lag aldrei greiða minna en 75% af
landsmeðaltali til sjálfstætt starf-
andi skóla og er þeim heimilt að
innheimta skólagjöld fyrir mis-
muninum.
Meðaltal og viðbótar-
kostnaður utan framlags
Garðabær greiðir Hjallastefn-
unni framlag sem reiknað er út
frá meðaltali allra grunnskóla í
Garðabæ ársins á undan. Rekstur
grunnskóla Garðabæjar er góður
þannig að greiðslur til Barna-
skóla Hjallastefnunnar og Vífils-
skóla eru lægri en landsmeð-
altalið. Þegar reiknað er út frá
meðaltali er rekstur allra skól-
anna í Garðabæ undir. Þegar
reiknað er meðaltal eru allir skól-
ar sem reknir eru af Garðabæ
undir, bæði sá dýrasti og ódýr-
asti. Út frá því meðaltali er fram-
lag til skóla Hjallastefnunnar
ákvarðað.
Ekki kemur fram í máli bæj-
arfulltrúa M-listans að fyrir utan
greiðslur til Hjallastefnunnar,
sem eru lægri en landsmeðaltal,
er ýmis þjónusta sem skólar
sveitarfélagsins hafa aðgang að,
sem Hjallastefnan þarf að greiða
sérstaklega fyrir. Má þar nefna
að Hjallastefnan kostar sjálf þá
sérfræðiþjónustu sem hennar
skólar þurfa, sem felur í sér að
skólarnir nýta ekki sérfræðiþjón-
ustu skólaskrifstofu sveitarfé-
lagsins, auk þess sem Hjallastefn-
an rekur þjálfunarsetur fyrir
börn með einhverfu. Hjallastefn-
an greiðir aukalega fyrir aðgang
að íþróttamannvirkjum bæjarins,
Allt viðhald á húsnæði er á veg-
um Hjallastefnunnar en bæj-
arskólarnir geta leitað til áhalda-
húss sveitarfélagsins.
Hjallastefnan þarf þar að auki að
taka þátt í kostnaði við akstur,
bæði skólabíl og tómstundaakst-
ur, þar sem hvorki strætisvagnar
né frístundabíll bæjarins þjónusta
skólasvæðið við Vífilsstaði.
Greiðslur undir
landsmeðaltali
Samkvæmt lögum ber sveit-
arfélögum að greiða sjálfstætt
starfandi skólum75% af lands-
meðaltali og hafa þá þeir skólar
heimild til að innheimta skóla-
gjöld. Garðabær hefur valið að
foreldrar hafi raunverulegt val,
óháð efnahag. Samningurinn er
hagstæður sveitarfélaginu þar
sem greiðslur til Hjallastefn-
unnar eru lægri en landsmeð-
altalið þar sem rekstur skóla í
Garðabæ er undir því. Málflutn-
ingur bæjarfulltrúa M-listans er
skrítinn og óskiljanlegur og til
þess fallinn að ala á tortryggni í
garð Hjallastefnunnar.
Okkur þykir það miður. Metn-
aður okkar alla daga er að
tryggja vellíðan barna, góðan
námsárangur og fjölbreyttari val-
kosti í samvinnu við Garðabæ.
Eftir Söru Dögg
Svanhildardóttur
og Þorgerði Önnu
Arnardóttur
Sara Dögg
Svanhildardóttir
»Málflutningur bæj-
arfulltrúa M-listans
er skrítinn og óskiljan-
legur og til þess fallinn
að ala á tortryggni í
garð Hjallastefnunnar.
Sara Dögg er skólastýra Vífilsskóla,
Þorgerður Anna er skólastýra Barna-
skóla Hjallastefnunnar í Garðabæ.
Þorgerður
Anna Arnardóttir
Rétt skal vera rétt
– með morgunkaffinu
íslensk hönnun í jólapakkann
Kringlunni og
Síðumúla 35
www.jens.is
Mikið úrval sérsmíðaðra
gull- og silfurskartgripameð
íslenskumnáttúrusteinum
Giftingarhringar
149.900.- parið
Eyjafjallajökull - skál
5.900.-
Vatnajökull - skál
7.900.-
Handunnar gjafavörur
úr eðalstáli
6.900.-
Sendum frítt um allt land til áramóta!
Sultuskeið
12.800.-
Kökuhnífur
13.900.-
Salattöng
7.900.-
11.900.-
16.200.-
8.200.-
12.900.-
16.900.-
16.700.-32.900.-
8.900.-
7.700.-
12.600.-
42.900.-
18.300.-
11.200.-
12.900.-
18.900.-
Demantshringur
10p TW.VVS1
demantur
174.600.-
Vandað íslenskt handverk í jólapakkann
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn