Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 55
Þekkt er að fæla má
fisk með sprengingum.
Sprengingar geta auð-
vitað drepið fisk en það
gerist þó aðeins mjög
nærri sprengistaðnum
sjálfum. Væntanlega
getur þó verið talsvert
erfitt að smala 100-200
milljón síldum út úr
Kolgrafafirði og koma
þeim í gegnum það litla
op sem er undir brúnni. Á það mun þó
væntanlega reyna á næstunni. Telja
má miklar líkur á að þverun fjarð-
arins með garði og brú hafi búið til
dauðagildru fyrir síldina í þessu
magni. Því skiptir mestu máli að
koma í veg fyrir að síld fari í stórum
stíl undir brúna á ný þegar aðstæður
eru þannig að síldin leitar inn í fjörð-
inn.
Ef það er tilfellið að síldin fælist við
sprengingar liggur beinast við að
reyna að leysa þennan umhverf-
isvanda með því að búa til spreng-
ingar við eða undir brúnum áður en
síldin fer að leita þangað inn. Þetta
má líklega gera með afar einföldum
búnaði.
Við ýmsar jarðvísindarannsóknir
eins og t.d. könnun á setlögum á sjáv-
arbotni til olíuleitar er beitt end-
urkastmælingum þar sem búnar eru
til hljóðbylgjur með litlum spreng-
ingum og mælt endurkast þeirra úr
jarðlögum. Algengasta leiðin til að
búa til bylgjurnar er að beita loft-
byssum sem eru sérhannaðar til að
búa til litlar „spengingar“ undir sjáv-
arborði. ÍSOR (Íslensk-
ar orkurannsóknir) hef-
ur notað slíkar
loftbyssur, meðal annars
í undirbúningsrann-
sóknum vegna
Hvalfjarðarganganna og
eins til að mæla end-
urkast í jarðlögum.
Þetta er einfaldur og til-
tölulega ódýr búnaður,
byssurnar sjálfar nánast
hilluvara hjá tækjafram-
leiðendum og til að reka
þær þarf loftpressu sem fá má í bygg-
ingavöruverslunum eða jafnvel nota
þrýstiflöskur.
Ég legg því til að fyrir næsta vetur,
þegar koma þarf í veg fyrir að síld
fari undir brúna í Kolgrafafirði, verði
búið að koma upp röð loftbyssna með
hæfilegu millibili ásamt loftpressu
sem sér um að hlaða byssurnar. Síðan
má með einföldum rafeindabúnaði
stýra byssunum þannig að þær skjóti
sjálfvirkt ótt og títt og fæli þar með
síldina frá því að fara undir brúna.
Kostnaður við slíka aðgerð yrði varla
nema um fáeinir tugir milljóna sem er
hjóm eitt miðað við umhverfiskostnað
og tekjumissi af síldardauðanum.
ÍSOR er reiðubúið að miðla af þekk-
ingu og reynslu sinni á þessu sviði til
að aðstoða við slíka aðgerð.
Að fæla síld frá
Kolgrafafirði
Eftir Ólaf G.
Flóvenz
Ólafur G. Flóvenz
Höfundur er jarðeðlisfræðingur og
forstjóri ÍSOR.
»Algengasta leiðin til
að búa til bylgjurnar
er að beita loftbyssum…
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is Vertu vinur á
SPARISKÓR FYRIR DÖMUR, HERRA
OG BÖRN Á 20% AFSLÆTTI
Kíktu við og mátaðu þína jólaskó…Við tökum vel á móti þér
Dömuskór
21.990,-
17.592,-
Barnaskór
10.990,-
8.792,-
Herraskór
14.990,-
11.992,-
Herraskór
27.790,-
22.232,-
Herraskór
21.990,-
17.592,-
Barnaskór
7.990,-
6.392,-
Barnaskór
7.990,-
6.392,-
Dömuskór
18.990,-
15.192,-
Dömuskór
18.990,-
15.192,-
Dömuskór
19.490,-
15.592,-
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Dagskrá
8:30 Opnunarávarp
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
8:50 Kynning á stefnu Vísinda- og tækniráðs 2013-2016
Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar
Sveinn Margeirsson, formaður tækninefndar
9:20 Hringborðsumræður um stefnu Vísinda- og tækniráðs
Fulltrúar vísindasamfélagsins og hagsmunaaðila ásamt gestum Rannsóknaþings
10:00 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Valur Ingimundarson gerir grein fyrir starfi dómnefndar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður
Vísinda- og tækniráðs afhendir Hvatningarverðlaunin 2013
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
Morgunverður í boði frá kl. 8:15
Skráning á rannis@rannis.is
5.desemberkl. 8:30-10:30Grand HótelReykjavík
Rannsóknaþing 2013
Stefna Vísinda- og tækniráðs
2013 - 2016
h
ö
n
n
u
n