Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 58

Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 ✝ David EarlBoatwright fæddist í Ariel Crossroads in Ra- ins, SC, 8. nóv- ember 1939. Hann lést 23. nóvember 2013. Foreldrar hans voru Percy Le- holms Boatw- right, f. 8.3. 1909, d. 27.7. 1983, og Virginia Bass Boatwright, f. 20.3. 1917, d. 10.10. 1985. Þau bjuggu í Britton’s Neck, SC. Systkini hans eru Carroll Stanley Boatwright, f. 23.2. 1936, hann býr í Myrtle Beach SC, Linda Boatwright John- son, f. 27.10. 1944, hún býr í Johnsonville SC, Vikki Boatw- right Cox, f. 14.2. 1950, hún býr í Britton’s Neck, SC, Deana Boatwright Brown, f. 7.4. 1955, hún býr í Charle- ston, SC. Eiginkona Davids var Guð- ríður Þórunn Jónsdóttir Boatwright, f. í Reykjavík 13. maí 1939, d. 30. nóvember 2006. Börn þeirra eru: ingur, f. 30.6. 1975 í Rúss- landi, barn þeirra er Danile David, f. 16.1. 2011. Þau eru búsett í Boston Ma. David bjó fyrstu árin í Brit- ton’s Neck, SC. Hann lærði tónlist, viðskiptafræði og markaðsfræði. Eftir það skráði hann sig í herinn og var í hljómsveitinni þeirra. Hann ætlaði sér að vera í Þýsklandi og var þar tíma- bundið en þá losnaði staða hjá hernum á Íslandi. Þar kynntist hann konu sinni Þórunni Jóns- dóttur. Þau bjuggu fyrst í Keflavík og fluttu til Banda- ríkjanna og voru þar um tíma. Síðan fluttu þau aftur til Ís- lands og þá fékk David starf hjá Loftleiðum. Þau voru nokkur ár á Íslandi en um 1967 fluttu þau alfarið aftur til Bandaríkjanna. Þar fékk David starf hjá JC Penny og varð síðan yfirmaður hjá þeim og sá um nokkrar búðir á austurströnd Bandaríkjanna þar til hann fór á eftirlaun 59 ára gamall. Um 1999 að fum- kvæði Davids keyptu þau hjónin íbúð á Íslandi og komu til landsins mörgum sinnum. Það var þeirra annað heimili þangað til Þórunn lést. Útför Davids fer fram í Conway SC, Bandaríkjunum, í dag, 30. nóvember 2013, kl. 10. 1) Helen Kusz- maul deild- arstjóri, f. 26.12. 1959, eiginmaður Brad Kuszmaul smiður, f. 7.10. 1959, börn Eyrún Lilja, f. 26.1. 1999, Dillon Jón, f. 24.5. 1995, Zachary, f. 2.6. 1990. Þau eru bú- sett í Elkton, Maryland. 2) Jonina Cham- berlain fjölmiðlafræðingur, f. 16.4. 1963, eiginmaður Jon Chamblerlain forstjóri, f. 16.5. 1961, synir: Lucas Krist- jon, f. 24.10. 1995, Connor, f. 14.1. 1994. Þau eru búsett í Charlotte NC. 3) Sigrún Hope Boatwright, markaðs- og við- skiptafr., f. 25.9. 1964, eig- inmaður Halldór Ingi Har- aldsson flugstjóri, f. 14.2. 1964. Barn þeirra er Owen Þór Halldórsson, f. 30.5. 2008. Þau eru búsett í Garðabæ. 4) David Jóhann Boatwright tölvunarfræðingur, f. 18.6. 1975, eiginkona Lenna Boatwright tölvunarfræð- Margar minningar koma upp í hugann er við kveðjum ein- stakan mann og góðan vin. David kom sem stormsveipur inn í líf fjölskyldunnar þegar systir okkar, Tóta, kynnti hann sem tilvonandi lífsförunaut. Það var eins og við hefðum þekkt hann alla tíð. Opinn fyrir öllu, lærði málið á mettíma og hélt því til enda. Við hjónin áttum því láni að fagna að þau Tóta settust fyrst að í sama bæj- arfélagi og við. Þá voru dagleg samskipti og böndin treyst fyrir lífstíð. Þetta voru ómetanleg ár. Eftir að þau fluttu til Banda- ríkjanna urðu samskiptin strjálli. Þá var gripið til símans eða skrifuð sendibréf. Vissum við alltaf hvor af öðrum. Unun var að ferðast með þeim, þegar við fórum í heimsókn og kom maður alltaf fróðari úr þessum ferðalögum. David dáði allt ís- lenskt, landið, málið, fólkið og síðast en ekki síst sönglögin, enda var hann lærður píanó- og orgelleikari. Íslandsferðirnar voru ómissandi og ætíð hátið í bæ þegar von var á þeim. Börn- in þeirra fjögur hafa einnig ver- ið dugleg að heimsækja móð- urland sitt. Síðast í sumar komu þau öll, ásamt mökum og börnum og fóru hringinn í kringum landið, heilsuðu upp á fjölskyldu og vini. Það er dásamlegt að eiga góða fjöl- skyldu, hvar sem hún er stödd í heiminum. En lífið er ekki alltaf dans á rósum. Systir okkar barðist við krabbamein í um 18 ára skeið. Undir lokin vildi hún hvíla í ís- lenskri mold og kom heim árið 2006. Þetta var löng og ströng barátta en David stóð vaktina allan tímann. Á hverjum degi í 5 mánuði sat hann við sjúkra- beð hennar allt þar til yfir lauk. Þetta sýnir okkur alla þá um- hyggju, sem hann gaf henni. Hann sneri aftur heim og flutti á æskuslóðir sínar og vonuðum við alltaf að nýtt líf myndi nú hefjast hjá honum. Hann var orðinn organisti í kirkjunni sinni og virkur í störfum kirkjunnar. Um þetta leyti fyrir um 4 árum varð hann fyrir alvarlegu slysi. Upp úr því náði hann sér aldrei, en alltaf hélt hann húmornum og bjart- sýninni. Í dag eru liðin 7 ár frá and- láti Tótu okkar og nú í dag verður Dave borinn til hinstu hvílu. Undarlegar eru tímasetn- ingarnar sem við ráðum ekki við. Við söknum hans og þeirra beggja og minnumst þeirra með þakklæti, hlýhug og ást. Ofar- lega í huga er þakklæti fyrir yndislegar samverustundir og móttökur, þegar við heimsótt- um hann í fyrra sumar. Minningar sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Fjöl- skyldu hans sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Sjöfn Jónsdóttir. Ég kynntist David ungur að árum aðeins tveggja ára gam- all. Kallaði hann alltaf Davíð. Pabbi og hann kynntust hjá Loftleiðum í Keflavík og voru á sömu vöktum. Amma Vilhelm- ína í föðurætt og Lilja tengda- mamma Davids voru æskuvin- konur en þeir vissu ekkert um það fyrr en seinna. Við heim- sóttum David nokkrum sinnum er þau bjuggu í Bandaríkjunum þangað til ég varð 16 ára. David og Tóta komu alloft til Íslands og sendu síðan börn sín til landsins á sumrin til að rækta ættjarðartengslin. Íslensk jól voru alltaf haldin hjá þeim öll árin sem þau bjuggu fyrir vest- an, þar sem haldið var í siði og í boði var góðgæti frá gamla landinu. Leiðir okkar Davids og fjölskyldu hans lágu síðan sam- an 19 árum seinna þegar Sig- rún dóttir hans kom til Íslands og við felldum hugi saman. David var kominn aftur. Í minningunni þegar ég var drengur var hann alltaf fyndinn og skemmtilegur. Mikið líf og fjör í kringum hann alla tíð. Lífsglaður maður og allir þeir sem urðu á vegi hans minnast hans með bros á vör. Það breyttist ekki þegar ég kvæntist Sigúnu. David og Tóta hugsuðu vel um tengdasoninn. David talaði íslensku og líkaði við náttúruna og veðráttuna hér á landi og fannst hitinn fyr- ir vestan hálfóþægilegur. Hon- um fannst íslenskur matur mjög góður. Hann var mikill tónlistaraðdáandi og spilaði á píanó og einnig á orgel í kirkju- sókn sinni. Trúrækinn var hann og gerðist kaþólikki. Hann rækti tengsl sín vel við ættingja og vini. Skrifaði bók um ætt sína og átti ættir sínar að rekja til Wales á Englandi, þar sem forfeður hans voru bátasmiðir sem eftirnafn gefur til kynna. Sigrún dóttir hans flutti til Hol- lands frá Bandaríkjunum vegna vinnu sinnar og flutti síðan til Íslands eftir það. Á þeim árum komu David og Tóta nokkrum sinnum til Hol- lands og ferðuðust um Evrópu með okkur. Eftir að Sigrún flutti heim um 2005 veiktist Tóta alvarlega og lést 30. nóv- ember 2006 á Íslandi. Þann tíma fór David til Tótu á hverj- um degi þegar hún lá á sjúkra- húsinu á Akranesi og í Víðinesi. Hann var mjög tryggur og sá vel um konu sína. David flutti síðan til æskuslóða sinna Myrtle Beach eftir andlát Tótu, þar sem systkini hans búa. Hann kom nokkrum sinnum í heimsókn til okkar þegar við bjuggum í Hollandi í annað sinn. Þá var David háður því að hafa súrefnistæki sér við hlið. Hann hafði dottið úr stiga og slasaðist alvarlega þegar hann flutti í nýja húsið sitt og heilsu hans hrakaði eftir það. Fékk krabbamein og lyfin sem hann fékk fóru illa í hann. Það endaði með því að hann varð mjög veikur síðustu árin. Hann gat alltaf búið heima hjá sér og fékk hjálp frá frænda sínum Robert og Lindu Rogers. Það voru ófáar ferðirnar sem við Sigrún og Owen Þór fórum í heimsókn til hans á meðan veikindi hans stóðu yfir og núna síðast fyrir mánuði. Þá var hann orðinn alvarlega veik- ur og þurfti að fara oft á sjúkrahúsið í heimabæ sínum. Við kveðjum tengdapabba, pabba og afa í dag, sama dag og Tóta konan hans dó fyrir 7 árum. Hans verður sárt saknað. Halldór Ingi, Sigrún og Owen Þór. David E. Boatwright ✝ Kristjana El-ínborg Gunn- arsdóttir fæddist á Bangastöðum í Kelduhverfi 7. des- ember 1928. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Þing- eyinga 12. nóv- ember 2013. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Jónatansson, f. 5. maí 1877, d. 25. júní 1958, og Vilfríður Guðrún Davíðsdóttir, f. 20. nóvember 1897, d. 25. maí 1973. Systkini Kristjönu eru, Óli Jónatan (hálfbróðir samfeðra), f. 19. júlí 1911, d. 1. ágúst 1986. Jónína Guðný, f. 13. maí 1927, d. 8. september 1988. Anna Sig- ríður, f. 11. september 1930, d. 11. janúar 2011. Aðalheiður, f. 4. október 1932. Davíð, f. 15. mars 1935. Signý, f. 17. janúar 1939. Sigurbjörg, f. 27. sept- ember 1940 og Soffía Björk, f. 27. september 1940, d. 2. júní 1996. Kristjana giftist Jóhannesi Guðmundssyni frá Krosshúsum í Flatey 29. desember 1963. For- eldrar hans voru Guðmundur Karl Jónsson, f. 27. janúar 1880. d. 11. júlí 1956 og María Jón- asdóttir, f. 21. nóvember 1884, d. 30. desember 1965. Börn Kristjönu og Jóhannesar eru: 1) Gunnar, f. 7. sept- ember 1962, maki Guðrún Stefanía Steingrímsdóttir, f. 13. maí 1959, börn þeirra eru Stein- grímur, Jóhannes og Kristjana El- ínborg. 2) Sigríður, f. 9. ágúst 1968, maki Helgi Þór Kárason, f. 2. apríl 1963. Dóttir þeirra er Sylgja Rún. Barnabarnabörn Kristjönu eru fimm. Börn Jó- hannesar af fyrra hjónabandi eru 1) Kristín Hólmfríður Mi- lam, f. 12. júní 1958. Maki Ottis Ray Milam, f. 17. ágúst 1947, þau eiga tvö börn. Kristín Hólmfríður er alin upp hjá föð- ur sínum og Kristjönu. 2) Guð- mundur Karl, f. 28. september 1959. Maki Harpa Jóna Jón- asdóttir, f. 24. júlí 1967, þau eiga fjögur börn. Guðmundur Karl er alinn upp hjá Hallgrími Guðmundssyni og Guðrúnu Sól- veigu Sigurðardóttur. Kristjana Elínborg vann í þvottahúsinu á sjúkrahúsi Húsa- víkur, við heimilishjálp hjá Húsavíkurbæ, við ræstingar í bakaríinu og einnig á skrifstofu KÞ. Jarðarför Kristjönu fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 30. nóvember 2013, klukkan 14. Kveðjum nú þá dýrðlegu mær, sem er svifin á englanna braut. Þig sem varst okkur öllum svo kær, felum við í almættis skaut. Til forfeðranna leið þín er fær, þú hittir þau öll í Paradísarlaut. (RLP.) Elsku frænka nú er þinni lífs- göngu lokið og langar okkur að minnast þín með nokkrum orð- um. Að mörgu er að taka, minn- ingarnar streyma fram því þú hefur verið stór partur af okkar lífi. Þú varst afskaplega hlý og góð manneskja, blíð og glettin, umhyggjusöm um aðra, mikill dýravinur og hafðir yndi af sveit- inni. Fyrstu minningarnar eru þegar þú komst í heimsókn í sveitina ásamt fjölskyldunni í litla fólksvagninum sem þú varst svo stolt og hrifin af. Þú elskaðir að keyra um og njóta náttúrunn- ar og alls þess sem fyrir augu bar. Eftir að við fengum bílpróf urðum við þess aðnjótandi að bjóða þér í bíltúra, upplifa og sjá ánægjuna og gleðina yfir þeim mörgu fallegu stöðum sem við komum á. Þú gast setið og notið og sagt með svo mikilli innlifun „þetta er alveg dýrðlegt“. Þetta voru skemmtilegar ferðir. Það var alltaf svo gott að koma til þín á Túngötuna, fallega heimilið þitt, þá sást vel hversu mikil hús- móðir og smekkmanneskja þú varst. Oftar en ekki var kominn dúkur á borð og kræsingarnar ekki af verri endanum. Má þar helst nefna þínar rómuðu smá- kökur sem virkilega hafði verið nostrað við útlitslega og smökk- uðust dásamlega. Við systur fáum vatn í munninn við tilhugs- unina. Nú fyrir jólin bökum við þessar tegundir af smákökum og hugsum hlýtt til þín, elsku frænka, og vonum að þú sért ein- hvers staðar nálæg. En líf þitt var ekki alltaf dans á rósum því heilsuleysi þurftir þú að kljást við. Þá komu í ljós kostir þínir, jafnaðargeð, æðruleysi, þolin- mæði og þrautseigja. Þín sterka trú á Guð hjálpaði þér hvað mest og varst þú óspör á bænirnar, bæði fyrir þig og ekki síður fyrir aðra. Við þökkum þér fyrir það, elsku frænka. Ófáar ferðirnar komstu suður til að leita þér lækninga og gátum við þá verið meira samvistum við þig. Þá var oft glatt á hjalla, margt brallað saman, hlegið og gert grín þegar frænkugengið var samankomið. Að lokum viljum við systur þakka þér samfylgdina, við erum ríkari að hafa átt þig að og geymum minninguna um þig sem varst ein af uppáhaldsfrænkunum okkar. Við söknum þín. Kæri Jói, Sigga, Gunnar, Stína og ykkar fjölskyld- um vottum við innilegustu samúð svo og Bangastaðasystkinunum. Minningin um yndislega konu lif- ir í hjörtum okkar allra. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Voladalssystur, Guðrún og Guðný. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þegar ég hugsa til Kristjönu móðursystur minnar koma marg- ar góðar og ljúfar minningar upp, en eitt stendur þó upp úr og það er lýsingarorðið yndislegur. Orð sem Kristjönu var tamt að nota, enda var Kristjana yndisleg kona og sannur heiður að hafa átt sem frænku, réttsýn, glaðlynd og hlý. Hógværð, dugnaður og þraut- seigja eru líka orð sem munu minna mann á hana. Fyrir lítinn borgarstrák var það alltaf sannkölluð veisla að fara norður á hverju ári, enda kræsingar á hverju borði hjá hin- um fjölmörgu systkinum frá Bangastöðum í Kelduhverfi. Á hverju heimili var boðið upp á eitthvað sérstakt, pönnukökurn- ar hennar Ninnu gleymast aldrei, aðalbláberjaskyrið hjá Önnu, lag- terturnar og blúndurnar hjá Öllu og Diddu, Húsavíkurbollurnar og snúðarnir og vínarbrauðin hjá Ernu og Davíð og kökurnar hjá Kristjönu, ekki síst smjörkök- urnar. Aðrar eins smjörkökur fékk maður hvergi og þegar mað- ur fékk poka sendan að norðan með smjörkökum var eins og maður hefði unnið í happdrætti, þvílík gersemi. Enda kom ekki annað til greina þegar Kristjana gaf mér eitt sinn pening fyrir að skutlast með hana eitthvað í borginni þegar hún dvaldi hér um hríð vegna veikinda en að kaupa sér vandaða smákökukrukku. Hlátur hennar mun maður ekki heyra aftur eða smjörkökurnar smakka, en óhætt er að segja að hvort tveggja mun maður heyra og bragða í huganum þegar mað- ur rifjar upp minningar um liðna tíð. Jóhannesi og afkomendum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu minnar yndis- legu móðursystur Kristjönu El- ínborgar Gunnarsdóttur. Gunnar Ragnarsson. Kristjana Elínborg Gunnarsdóttir ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is útfararstjóri útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson útfararþjónusta G Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.