Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 66
66 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Ég verð með opið hús og býð vinum og vandamönnum í fiski-súpu,“ segir Sigríður Sigurðardóttir, doktorsnemi í iðnaðar-verkfræði hjá HÍ og Matís, en hún heldur upp á þrítugsafmæli
sitt á morgun, fullveldisdaginn. Hún segir að hún lagi súpuna ásamt
kærastanum sínum, sem sé mjög flinkur kokkur. Sigríður gerir ráð
fyrir að hugsanlega verði þröngt á þingi í afmælisveislunni. „Við vor-
um að kaupa okkur mjög litla íbúð, þannig að þetta verður pínu til-
raun hvað ég get komið mörgum í íbúðina.“ Sigríður stefnir á að ljúka
doktorsnáminu á næsta ári, en verkfræðinámið hefur leitt hana víða.
„Á mastersárunum lærði ég í Chalmers í Gautaborg og hef verið þar
sem fræðimaður í heimsókn. Á undan því var ég í Berkeley í Kali-
forníu.“ Sigríður segir að það hafi verið mikill kostur við doktors-
námið að geta ferðast og lært á mismunandi stöðum. Gautaborg og
Berkeley séu hins vegar mjög ólíkir staðir. Fólkið sé mjög vingjarn-
legt á báðum stöðum. „Svo er auðvitað ótrúlega gott veður í Berke-
ley,“ segir Sigríður og hlær. Helstu áhugamál Sigríðar eru fjall-
göngur og ferðalög. Sigríður segir að eftirminnilegustu fjöllin sem
hún hafi klifið hafi verið Half Dome-fjallið í Yosemite-þjóðgarðinum
og Cerro de la Silla í Mexíkó. „Svo fórum við á Hvannadalshnúk, en
það var stormur á toppnum, svo við náðum ekki alla leið.“ segir Sig-
ríður. Af öðrum stöðum sem Sigríður hefur komið til má nefna Mar-
okkó, þar sem hún eyddi síðustu jólum og áramótum með kærast-
anum, vinkonu sinni og tveimur úlföldum. sgs@mbl.is
Sigríður Sigurðardóttir þrítug á morgun
Ljósmynd/Egill Maron Þorbergsson
Mikið fyrir fjallgöngur Sigríður Sigurðardóttir, doktorsnemi í verk-
fræði, náði því miður ekki á topp Hvannadalshnjúks vegna storms.
Stormur á toppi
Hvannadalshnjúks
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Soffía G. Ólafsdóttir, fyrrverandi þjónustu-
stjóri í Íslandsbanka í Keflavík, til heimilis að
Vatnsholti 7a, Keflavík, er sjötug í dag, 30.
nóvember. Soffía er formaður Félags húsbíla-
eigenda. Hún verður með opið hús í Sam-
komuhúsinu í Garði frá kl. 19 á afmælisdaginn.
Gjafir eru afþakkaðar, en söfnunarkassi verður
á staðnum til styrktar hjartadeild Landspít-
alans í minningu eiginmanns hennar Sæ-
mundar Kristins Klemenssonar.
Árnað heilla
70 ára
Reykjavík Christiaan Breki fæddist 1.
febrúar kl. 8.54. Hann vó 3.278 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Saskia Freyja Schalk og Þorsteinn
Magnússon.
Nýir borgarar
Reykjavík Guðrún Jakobína fæddist
22. mars. Hún vó 3.085 g og var 48 cm
löng. Foreldrar hennar eru Tinna Ás-
geirsdóttir og Eiríkur Þórleifsson.
S
teinarr fæddist í Reykjavík
1.12. 1933 og ólst þar upp
á Njálsgötu 10a. Hann
lauk verslunarprófi frá VÍ
1952 en sumarið eftir var
hann við nám og störf í London.
Steinarr starfaði hjá Eymundsson
um skeið en hóf fljótlega störf hjá
Bókaverslun Snæbjarnar Jónssonar
þar sem hann síðar var fram-
kvæmdastjóri og einn af eigendum
fyrirtækisins.
Stefna Bókaverslunar Snæbjarnar
var að bjóða ávallt upp á bestu bækur
heimsbókmenntanna. Steinarr sótti
bókasýningar víða um heim og skipu-
lagði bókasýningar í versluninni
sjálfri og víðar, m.a. sýningar á
tæknibókum, vísindabókum og lista-
verkabókum.
Á 50 ára afmæli Bókaverslunar
Snæbjarnar, 1977, var til dæmis
haldin tímamótasýning á listaverka-
bókum. Sú sýning áréttaði þá sér-
stöðu verslunarinnar sem Steinarr
stóð fyrir, og sem Snæbjörn Jónsson,
stofnandi Bókaverslunar Snæbjarn-
ar, hafði alltaf í huga, að hafa ein-
ungis á boðstólum bækur sem auka
menntun og manngildi og bæta
menninguna.
Steinarr sinnti einnig bókaútgáfu
en hann keypti Orðabókaútgáfuna
ehf. og starfrækti hana í mörg ár.
Steinarr stofnaði síðar sína eigin
bókabúð, Bókabúð Steinars, sem
hann starfrækti samhliða Orða-
bókaútgáfunni. Hann seldi síðan
bæði þessi fyrirtæki árið 2007.
Ferðalög, ljósmyndir og smíðar
Steinarr er handlaginn og kom
mikið að byggingu húss þeirra í
Kópavoginum. Fjölskyldan kom sér
svo upp sumarhúsi í Dölunum og síð-
ar í Borgarfirðinum.
Þá hafði Steinarr mikinn áhuga á
ljósmyndun. Hann tók fjölda góðra
Steinarr Guðjónsson, bókaútgefandi og bóksali – 80 ára
Þjóðleg stórfjölskylda Steinarr og Elsa, ásamt dætrum, tengdasonum, barnabörnum og Kristínu, móður Elsu.
Að bæta menninguna
með bókina að vopni
Fyrir þá sem
elska hönnun
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
PARKETFLÍSAR
þú flísar þær í botn