Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 68
68 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til þess að sinna
því, sem hugur þinn stendur til. Reyndu að
halda stillingu þinni í stað þess að rjúka
upp. Varastu samt of mikinn íburð.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er oft skammt milli hláturs og
gráts og það þarft þú að hafa í huga í um-
gengninni við aðra. Nú gefst hlé til skipu-
lagningar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er einhver ringulreið í kring-
um þig og þú mátt hafa þig alla/n við til að
verjast ágjöfinni. Haltu fast í trú þína á það
að þú sért á réttri leið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur ekki hamið eftirvæntingu
þína og þitt góða skap smitar út frá sér í
allar áttir. Símtölin og tölvupósturinn getur
beðið á meðan þú einbeitir þér að því sem
skiptir verulega máli.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sérhver manneskja á jörðinni finnur til
líkamlegrar eða andlegrar vangetu á ein-
hverjum tímapunkti. Vertu ekki að flagga
því að þú hafir nú vitað betur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki vera hissa þótt enginn í kring-
um þig hugsi jafn stórt og þú. Ferðalög eða
kostnaðarsamir atburðir eru inni í mynd-
inni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér lætur vel að leiða aðra í starfi. Af-
leiðing þess er alger uppstokkun; þú átt
eftir að læra ýmislegt nýtt á næstu tveimur
árum. Auðvitað er þetta ansi erfitt en þú
vilt hafa það þannig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hver er sinnar gæfu smiður og
það sannast á þér sem öðrum. Láttu at-
hugasemdir annarra sem vind um eyru
þjóta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu ekkert að skipta þér af því
sem er þér óviðkomandi. Leitaðu tækifæra
til að láta gott af þér leiða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samtal við ættingja, nágranna
eða fjölskyldu hefur jákvæð áhrif á þig.
Lausnir á öðrum vandamálum gætu þó
skotið upp kollinum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekkert er alveg laust við skugga-
hliðar. Ef þú einbeitir þér um of að neðstu
línunni, missir þú af blaðsíðunni! Í kvöld
gera litlir greiðar gæfumuninn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stjórnvöld eða stofnanir kunna að
valda þér erfiðleikum í starfi í dag. Sýndu
sveigjanleika og þá munu allir erfiðleikar
gufa upp.
Það er jafnan hátíð að rekast ákerlinguna á Skólavörðuholt-
inu. Nú skaut hún upp kollinum á
Boðnarmiði, sagðist hafa útvegað
sér Morgunblaðið til að lesa vísna-
hornið og séð að karlkvölin væri
enn að þrugla um upphlut. Það
stendur heima að karlinn á Lauga-
veginum skrifaði:
Í koti lágu kerling á þar heima,
bauð mér inn, – í upphlut var,
eins og drottning hún sig bar.
Andlitsviprur, augun, – svipurinn bjarti!
Ung hún hafði um ástir vélt.
Öllum núna frá sér hélt.
Kerlingin hélt áfram: „Ég í upp-
hlut, en sú hugmynd. Móðursystir
mín var stödd hjá mér þegar hann
slæddist hér inn og eitthvað hefur
slegið saman í höfðinu á honum,
enda ekki nema von. Svona var
þetta nefnilega:
Þyrstur karlinn, því er ver,
þambaði úr bokku hálfri,
tók svo fullur feil á mér
og fjallkonunni sjálfri.
Það er óttalegt að vita hvernig
komið er fyrir honum, blessuðum.“
Valdimar Tómasson er ljóðaunn-
endum og raunar bókaunnendum
að góðu kunnur. Hann hefur nú
sent frá sér bókina Sonnettugeigur
og gerir Anton Helgi Jónsson sér
það að umtalsefni á fésbók: „Það er
mikill drungi og myrkur í sonnett-
unum en Valdimar kveður vel og
fegurðin í sumum þunglyndisleg-
ustu línunum gæti orðið til þess að
maður fyndi hugarró við að hafa
þær yfir með sjálfum sér í skamm-
deginu. En svo er líka hárfín kald-
hæðni í bókinni. Ein sonnettan byrj-
ar svona:
Ó, kæra heimska, ég krýp við þína
skör,
ég kom í fóstur til þín barn að aldri.
Tryggð þín líkist fornum göfgum galdri
og glöð þú jafnan stýrir minni för.
Síðan koma tvær ferhendur í við-
bót en svo endar Valdimar á þessari
tvíhendu:
Við unum glöð og sæl við holan hljóm
og heimska, þér við sendum kort og
blóm.“
Að lokum bregður limruskáldið
Anton Helgi á leik, nema það skyldi
vera fugl sem kveður utan við
gluggann:
Hann Valdi er sonnettuseigur,
hann síst er við yrkingar deigur.
Ég blaða í trans í bókinni hans
uns batnar minn sonnettugeigur.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af sonnettum, kerlingunni
og karlkvölinni
Í klípu
„Ó, FYRIRGEFÐU. ÞAR SEM ÞIÐ ERUÐ
BÁÐIR HEILMYNDIR HÉLT ÉG BARA AÐ
ÞIÐ ÞEKKTUST.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„NAFN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... villt brúðkaup!
BRÁÐAMÓTTAKA
GRETTIR, GRETTIR,
GRETTIR ...
ÞAÐ ER ÉG,
SPARAÐU
NAFNIÐ.
HEFURÐU ENGA
SJÁLFSSTJÓRN?!
FUNDUST ÞÉR
VAXEPLIN GÓÐ?!
BARA
ÞEGAR ÉG
LABBA.
SEIG OG
BRAGÐLAUS,
EN METTANDI.
NÚ ER KOMIÐ AÐ
ÞVÍ, HELGA!
VILTU LÁTA
SÆKJA ZOOK
LÆKNI FYRIR
MIG?
ÞÚ ÞARFT EKKI
LÆKNI ÞEGAR ÞÚ
ERT MEÐ TIMBUR-
MENN!
Senn líður að jólum og allri þeirridýrð sem þeim fylgir. Bakst-
urinn er víst ómissandi hluti af jól-
um er Víkverja sagt. En Víkverji
verður að viðurkenna að hann er
ekki sérstaklega mikið fyrir að
baka. Tilraunir hans til baksturs
hafa verið heldur fálmkenndar og er
hann þekktur innan fjölskyldunnar
fyrir misheppnaðar tilraunir m.a. í
formi marengsköku sem var ein sú
almisheppnaðasta sem sögur fara
af.
x x x
Sem betur fer á Víkverji umburð-arlynda fjölskyldu sem tekur
vel í tilraunirnar og fúlsar ekki við
því sem Víkverji ber á borð. En það
er samt alltaf gott að eiga hauk í
horni sem bendir ógjarnan á að
keisarinn sé ekki í neinum fötum.
Sá haukur reynist oftar en ekki
vera bróðir Víkverja.
x x x
Í þetta umrædda skipti þá bar Vík-verji þessa líka rosalega stóru
marengsköku á borð – hún var mjög
stór og hafði útlitið með sér, verður
að segjast í hreinskilni. Þegar búið
var að skenkja kökuna á disk, taka
allir kurteislega til við að borða
hana og gott ef ekki dásama. En
þegar bróðirinn hefst handa við átið
þá hrekkur upp úr honum: „Þetta er
algjörlega óætt.“
x x x
Jamm og jú, Víkverji varð að við-urkenna það, skildi ekkert í því
afhverju þetta væri jafn óætt og
þurr og harður veruleikinn blasti
við honum. Jú, jú í öllum hamagang-
inum við að reiða fram dýrindisköku
þá hafði hann víst gleymt að tvö-
falda alla uppskriftina.
x x x
Úr varð hálfgert hraun, þurrt ogvont. En blessaður rjóminn
getur gert kraftaverk. Þeyttur var
pínu rjómi og málinu reddað.
x x x
En nú er Víkverji í bobba. Hannlangar ekki í neinar sérstakar
smákökur sem bakaðar voru í æsku
og gleðja braðlaukana. Því verður
rennt á ný mið og dýrindis sætindi
fundin. víkverji@mbl.is
Víkverji
Verið með sama hugarfari sem Krist-
ur Jesús var. (Filippíbréfið 2:5)
BLÁTT Spírulína
gefur jafna
orku
sem endist
Aukið streituþol og bætir einbeitingu. Nærir taugakerfið.
Frábær meðmæli við athyglisbrest og eirðarleysi.
Fyrir þá sem eru undir miklu líkamlegu eða andlegu álagi.
Inniheldur lifræna næringu samtals 29 vítamín og steinefni, aminosýrur og
50% meira af Phycocyanin en annað Spírulína. Rannsóknir hafa sýnt að það
eflir ónæmiskerfið og styður getu tauga og líkama til þess að starfa eðlilega
þrátt fyrir streituálag. Phycocyanin er kallað undrasameindin sem eykur
virkni mikilvægra ensíma. Eingöngu ræktuð næringaefni, ekkert GMO.
Gæðastaðall: ISO 14001, ISO 22000.
Útsölustaðir: Lyfja, Hagkaup, Krónan,
Heilsuhúsið, Fjarðarkaup og Græn heilsa.
Hrein orka og einbeiting
BETRI FRAMMISTAÐA,
LENGRA ÚTHALD