Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 71
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hann er stórmerkilegur, þessi
undirgeiri popptónlistarinnar sem
kenndur er við jólin. Einu sinni á
ári, í u.þ.b. mánuð, dynja þessi lög
á okkur og sá sem hitti á eitt
stykki smell af þeim toganum í ár-
daga getur haft af því hið sæmi-
legasta lifibrauð í dag.
Án þess að ég hafi á því ein-
hverjar skýringar hefur dálæti
mitt á þessari tónlist vaxið und-
anfarin ár. Og það er ekki bara að
ég sé farinn að leggja mig meira
eftir fagurfræðinni heldur er ég
heillaður af því hvernig þessi geiri
virkar menningarlega/samfélags-
lega, í raun hversu undurfurðu-
legur hann er. Ég er að segja ykk-
ur það, fræðileg ídýfa er handan
við hornið. Undarlegir hlutir hafa
þá gerst, eins og botnlaus hrifning
mín á jólaplötu Sting ber t.d. vitni
um, eitthvað sem er þannig séð
óverjandi og eiginlega ekkert
sniðugt að játa þetta svona op-
inberlega. Það er nánast eins og
smekkvísi fari í jólafrí hjá manni
eins og annað. Er það vel!
Epískt síróp
Þessi jólaplatnabransi gengur
mikið til á endurtekningum, sömu
lögin hljóma von úr viti og jóla-
plötur með Presley, Nat King
Cole, John Denver o.fl. endur-
unnar og endurútgefnar ár eftir
ár. Eitthvað er þó um endurnýjun
ár hvert og sumar plötur ná að
festa sig í sessi (mér verður t.d.
hugsað til Íslands og jólaplötu Sig-
urðar Guðmundssonar og Memfis-
mafíunnar, en fyrirsögn grein-
arinnar er lagatitill af henni) á
meðan aðrar lifa bara í örfáar vik-
ur líkt og jólatréð í stofunni. En
kíkjum aðeins á þetta ár.
Ég held að ég byrji á því að
leiða fram hefðbundnari plöturnar
og þá listamenn sem eru aug-
ljóslega að gera meðvitaða tilraun
til að treysta sín framlög í sessi.
Plata Mary J. Blige, A Mary
Christmas (þessi titill var auðvitað
óhjákvæmilegur) er veigamesta
platan í þessum efnum og Blige
fetar þessa epísku, sírópslegnu
leið sem Josh Groban, Michael
Bublé og fleiri hafa verið að trítla
eftir með firnagóðum árangri,
sölulega þá fremur en listrænum.
Þessi höfundur hefur reyndar
veikan blett fyrir Groban (sjá fyrri
yfirlýsingar um „smekkleysi“).
Það eru nær eingöngu söngkonur
þetta árið sem standa í upp-
færslum á jólaplatnabunkanum,
Kelly Clarkson og Leona Lewis
bjóða upp á samskonar plötur og
Nú mega jólin
koma fyrir mér …
Jóla jóla … Erasure-liðarnir Vince Clark og Andy Bell jóla sig upp.
þá gefur Susan Boyle, hin eina
sanna, út plötuna Home for Christ-
mas.
Pönkað inn jólin
Flippdeildin hagar sér öðru-
vísi, oft er hugsunin eingöngu sú
að prófa þetta einu sinni, fólk er
ekkert að stressa sig um of og ein-
mitt það viðhorf hefur getið af sér
dásamlegar plötur sem standast
tímans tönn. Sjá t.d. hina frábæru
plötu Christmas með bandaríska
neðanjarðarrokktríóinu Low, sem
hefur öðlast hálfgerða „költ“
stöðu.
Ég set Kim Wilde í þennan
flokk, en jólaplata var nokkuð
óvænt útspil frá þessari fyrrver-
andi níunda áratugs poppstjörnu.
Wilde hefur átt erfitt með að fóta
sig í tónlistinni unfanfarna áratugi
eins og svo margir fyrrverandi
meðreiðarsveinar hennar og -meyj-
ar og því þá ekki að láta reyna á
þetta? Hún hefur vit á því að taka
sig ekki of alvarlega, spott og spé
stingur upp kolli reglubundið og
tveir af þessum áðurnefndu með-
reiðarsveinum, þeir Rick Astley og
Nik Kershaw, kíkja í heimsókn.
Það er innilegur fjölskyldubragur
á þessu líka, eiginmaður hennar,
Hal Fowler, syngur með henni í
einu lagi og bróðir hennar Ricky
og pabbi hennar Marty syngja með
í ábreiðu á guðdómlegt lag Fleet
Foxes, „White Winter Hymnal“.
Rafdúettinn góðkunni Erasure
snarar þá út plötunni Snow Globe
sem já … hljómar eins og jólaplata
ef Erasure hefðu gert jólaplötu!
Skringileg, rafknúin og jafn und-
urfurðuleg og þessi blessaði geiri
allur. Pönkrokksveitin Bad Reli-
gion beitir svipaðri aðferðafræði á
sinni plötu, Christmas Songs. Jóla-
lögin sem við þekkjum öll eru
þarna, en búin að fara nokkra
snúninga í þeytivindu ræflarokks-
ins. Það merkilega er samt að það
er ekki vottur af kaldhæðni hjá
Bad Religion-mönnum, lögin eru
flutt á heiðarlegan, mætti ég segja
einlægan máta. Ég verð líka að
nefna jólaplötu Nick Lowe, Quality
Street – A Seasonal Selection For
All The Family. Eins og þeir sem
ég hef nefnt hér á undan fer Lowe
óhefðbundnar leiðir, tónlistin í
þessum þekkilega rokkabillí/
kántrí-gír sem höfundurinn hefur
meitlað til í gegnum árunum og
lagatitlar eins og „Christmas at the
Airport“, „Old Toy Trains“ og
„The North Pole Express“ und-
irstinga blæbrigðin sem leika um
plötuna.
Og að lokum, haldiði ekki að
Kool & The Gang séu með jólaplötu
líka!? Kool for the holidays heitir
hún að sjálfsögðu. Ég viðurkenni
að ég hef ekki enn þorað að hlusta
á hana. Líklega af ótta við að fíla
hana! Gleðileg jól!
»Undarlegir hlutirhafa þá gerst, eins
og botnlaus hrifning
mín á jólaplötu Sting
ber t.d. vitni um.
Ófullkomið yfirlit yfir nýjar erlendar jólaplötur Plöturn-
ar koma úr óvæntum áttum sem og fyrirsjáanlegum
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Stoppleikhópurinn frumsýnir á
morgun kl. 14 jólaleikritið Sigga
og skessan í jólaskapi í Ársafni,
Hraunbæ 119. Leikritið er byggt á
sögum Herdísar Egilsdóttur um
Siggu og skessuna og er ætlað 2-9
ára börnum.
Um sýninguna segir í tilkynn-
ingu: „Það eru að koma jól og allir
að komast í sannkallað jólaskap.
Skessan er heima í hellinum með
Siggu að skreyta þegar þær frétta
að veðrið sé að breytast og snjón-
um kyngi niður. Allt er að verða
ófært og jólapósturinn kemst ekki
áleiðis með jólakortin og jólagjaf-
irnar. Nú eru góð ráð dýr, en
Sigga og skessan ákveða að taka
til sinna ráða til að bjarga mál-
unum og arka af stað með jóla-
skapið eitt að vopni. Þær lenda í
alls konar skemmtilegum ævintýr-
um en jólapósturinn kemst á leið-
arenda að lokum.“
Sigga og skessan
komnar í jólaskap
Jól Sigga og skessan í jólaskapi.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Pollock? (Kassinn)
Lau 30/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 6/12 kl. 19:30 13.sýn Fim 12/12 kl. 19:30 22.sýn
Sun 1/12 kl. 19:30 12.sýn Lau 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 14/12 kl. 19:30 24.sýn
Fim 5/12 kl. 19:30 Aukas. Sun 8/12 kl. 19:30 21.sýn Sun 15/12 kl. 19:30 25.sýn
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýnigar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 6/12 kl. 19:30 56. sýn Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn
Lau 14/12 kl. 19:30 57.sýn Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn
Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Lau 30/11 kl. 17:00 Aukas. Lau 7/12 kl. 17:00 Aukas. Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn
Sun 1/12 kl. 14:00 15.sýn Sun 8/12 kl. 14:00 17.sýn Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn
Sun 1/12 kl. 17:00 16. sýn Sun 8/12 kl. 17:00 18. sýn Mán 30/12 kl. 13:00 23.
sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 30/11 kl. 11:00
200.sýn
Lau 7/12 kl. 14:30 Sun 15/12 kl. 12:30
Lau 30/11 kl. 13:00 Sun 8/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 11:00
Lau 30/11 kl. 14:30 Sun 8/12 kl. 12:30 Lau 21/12 kl. 13:00
Sun 1/12 kl. 11:00 Lau 14/12 kl. 11:00 Lau 21/12 kl. 14:30
Sun 1/12 kl. 12:30 Lau 14/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 11:00
Lau 7/12 kl. 11:00 Lau 14/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 12:30
Lau 7/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 11:00
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins. Miðasala er hafin.
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Sveinsstykki (Stóra sviðið)
Fim 5/12 kl. 19:30
Einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson í flutningi Arnars Jónssonar
Fetta bretta (Kúlan)
Lau 7/12 kl. 14:00 Lau 14/12 kl. 14:00
Lau 7/12 kl. 15:30 Lau 14/12 kl. 15:30
Ný barnasýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 mánaða til 3ja ára.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mýs og Menn –★★★★★ – SGV, Mbl
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 30/11 kl. 13:00 Fös 13/12 kl. 19:00 Lau 28/12 kl. 13:00
Sun 1/12 kl. 13:00 Lau 14/12 kl. 19:00 Sun 29/12 kl. 13:00
Fös 6/12 kl. 19:00 Sun 22/12 kl. 13:00 Fös 3/1 kl. 19:00
Lau 7/12 kl. 13:00 Fim 26/12 kl. 13:00 Lau 4/1 kl. 13:00
Sun 8/12 kl. 13:00 Fös 27/12 kl. 19:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Sun 1/12 kl. 20:00 33.k Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fim 19/12 kl. 20:00
Fim 5/12 kl. 20:00 34.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Fös 20/12 kl. 20:00
Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Lau 28/12 kl. 20:00
Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Þri 17/12 kl. 20:00 Sun 29/12 kl. 20:00
Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Mið 18/12 kl. 20:00
Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Lau 30/11 kl. 20:00 lokas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Síðasta sýning!
Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó)
Lau 30/11 kl. 20:00 lokas
Ólgandi ástríður, þrá eftir frelsi og betra lífi. Síðasta sýning!
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 30/11 kl. 20:00 6.k Lau 7/12 kl. 20:00 9.k Lau 21/12 kl. 20:00 12.k
Þri 3/12 kl. 20:00 7.k Þri 10/12 kl. 20:00 10.k Sun 22/12 kl. 20:00
Mið 4/12 kl. 20:00 8.k Mið 11/12 kl. 20:00 11.k
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 30/11 kl. 11:00 aukas Sun 8/12 kl. 13:00 Lau 21/12 kl. 16:00 aukas
Lau 30/11 kl. 13:00 5.k Sun 8/12 kl. 14:30 Sun 22/12 kl. 13:00
Lau 30/11 kl. 14:30 Lau 14/12 kl. 11:00 aukas Sun 22/12 kl. 14:30
Sun 1/12 kl. 11:00 aukas Lau 14/12 kl. 13:00 Sun 22/12 kl. 16:00 aukas
Sun 1/12 kl. 13:00 6.k Lau 14/12 kl. 14:30 Fös 27/12 kl. 13:00
Sun 1/12 kl. 14:30 aukas Sun 15/12 kl. 11:00 Fös 27/12 kl. 14:30
Lau 7/12 kl. 11:00 Sun 15/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 13:00
Lau 7/12 kl. 13:00 Sun 15/12 kl. 14:30 Lau 28/12 kl. 14:30
Lau 7/12 kl. 14:30 Lau 21/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00
Sun 8/12 kl. 11:00 aukas Lau 21/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 14:30
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap