Morgunblaðið - 30.11.2013, Qupperneq 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tvíeykið Ghostigital, þeir Einar Örn
Benediktsson og Curver Thorodd-
sen, fagna útgáfu safndisks í kvöld
milli kl. 21 og 23 í salnum Gym og
Tónik á Kex Hosteli við Skúlagötu.
The Antimatter Boutique, eða And-
efnabúðin, nefnist diskurinn og hef-
ur hann að geyma allkyns andefni
sem hafa ekki verið áður á plötum
dúettsins. Andefni þessi svonefnd
eru endurhljóðblandanir á lögum
Ghostigital og lög sem Ghostigital
hefur unnið með ýmsum tónlist-
armönnum, m.a. Björk og Ásgerði
Júníusdóttur. Auk þess að leika and-
efni af plötunni mun Ghostigital
troða upp og trylla viðstadda með
sínum einstaka og taumlausa tón-
listarflutningi.
„Ég held að við séum fyrsta
hljómsveitin sem gefur út andefni
fyrir jólin, hljómsveitir eru alltaf að
gefa út nýtt eða gamalt efni þannig
að við ákváðum að gefa út andefni.
Þaðan kemur nafnið á diskinum,“
segir Curver. Á diskinum megi
finna tónlistarlegt andefni frá síð-
ustu tíu árum. Meðal andefna er lag-
ið „Nekrofilologie“ en í því syngur
Einar texta á þýsku eftir myndlist-
armanninn Dieter Roth og gítarleik-
arinn og eins manns hljómsveitin
Bob Log III leikur í því. Lagið gerði
Ghostigital fyrir þýska safnplötu
með lögum ýmissa tónlistarmanna
við texta eftir Roth. „Þetta er mjög
furðulegt lag,“ segir Curver og
hlær.
Skemmtilegur heimur
Af þeim hljómsveitum og tónlist-
armönnum sem eiga endur-
hljóðblandanir á lögum Ghostigital
á plötunni má nefna Captain Fuf-
anu, GusGus og Gluteus Maximus.
„Röddin hans Einars skín þarna í
gegn og er mjög skemmtileg og
textarnir og einhver riff skila sér
stundum en þetta er mjög frábrugð-
ið okkar hljómi, aðeins aðgengi-
legra að einhverju leyti,“ segir Cur-
ver um endurhljóðblandanirnar.
„Þetta er mjög skemmtilegur heim-
ur, þessu endurhljóðblönd-
unarheimur. Við vorum líka mjög
stoltir af því að fá að gera endur-
hljóðblandanir fyrir Björk,“ segir
Curver og nefnir lögin „Declare In-
dependence“ og „Innocence“.
Frekari fróðleik um Ghostigital
má finna á ghostigital.com.
Búðarlokur Einar Örn og Curver að störfum í Andefnabúðinni.
Ghostigital
með opna búð
Boðið upp á andefni á Kex Hosteli
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Stefán Örn Gunnlaugsson sendi fyrir
skömmu frá sér sína fyrstu sólóplötu
undir listamannsnafninu Íkorni og
ber platan sama nafn. Stefán hefur
komið víða við í tónlist, m.a. unnið með
hljómsveitunum Buff, Lights on the
Highway, Eldum og Jónasi Sig. og
býr yfir áralangri reynslu sem upp-
tökustjóri og útsetjari. Fjöldi tónlist-
armanna lagði
Stefáni lið við
gerð plötunnar,
m.a. söngkon-
urnar Fríða Dís
Guðmundsdóttir
og Rósa Guðrún
Sveinsdóttir,
Kjartan ,,Diddi“ Guðnason á slagverk
og Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar.
Íkorni er aukasjálf Stefáns, að hans
sögn og leikur blaðamanni forvitni á
að vita hvaðan nafnið komi.
„Fyrrverandi og núverandi kær-
asta mín segir að ég líti út eins og
íkorni. Þetta var eitthvert grín hjá
henni,“ svarar Stefán. Spurður frekar
út í þessi líkindi segir Stefán að líklega
sé hann með búttaðar kinnar eins og
íkorni.
– Þú ert margreyndur í bransanum
en þetta er fyrsta sólóverkefnið þitt?
„Já, þetta hefur lengi verið draum-
urinn, að gefa út mitt eigið efni. Þetta
er mjög persónuleg plata og það er
m.a. ástæða þess að ég er með lista-
mannsnafn. Ég er líka búinn að vera í
svo mörgu öðru og nafnið skilur þetta
að frá öðru sem ég hef gert.“
– Umslagið gefur lítil fyrirheit um
innihaldið. Var það hugmyndin?
„Nei, upphaflega var þetta ljós-
mynd af tré, nærmynd þannig að
maður sá börkinn. Svo málaði faðir
minn, Gunnlaugur Stefán Gíslason,
vatnslitamálverk út frá því og þannig
varð þetta til. Tréð átti að vera tilvísun
í eitthvað náttúrulegt og lífrænt.“
Kínverskur spagettívestri
„Ég myndi segja að þetta væri að
hluta til þjóðlagakennt með kvik-
myndatónlistarslettum. Ég hef verið
undir miklum áhrifum frá alls konar
kvikmyndatónlist, það er m.a.s.
smáspagettívestra-stemning í einu
laginu og svo er slatti af aust-
urlenskum áhrifum,“ segir Stefán,
spurður að því hvernig tónlist Íkorni
hafi að geyma og bætir því við að
slagverksleikari hafi líkt einu lagi
plötunnar við kínverskan spagettí-
vestra.
– Þú samdir lagatextana, um hvað
fjalla þeir?
„Alls kyns tilfinningastríð sem
koma inn á milli, þegar maður er í til-
finningalegu öngstræti brýst út þörf-
in fyrir að setja það niður á blað
hvernig manni líður. Og ef mér líður
vel þá geri ég oftast bara eitthvað
annað.“
– Getur þú gefið mér dæmi?
„Ja, þetta er voða mikið um sam-
bönd, um ástina og lífið. Ég hætti að
drekka fyrir tæpum þremur árum og
það hefur sín áhrif líka og eftir það
fóru að koma fram fleiri bjartsýnis-
söngvar,“ segir Stefán .
Eins og íkorni
Íkorni gefur út sína fyrstu sólóplötu Tónlistin að hluta
til þjóðlagakennd með kvikmyndatónlistarslettum
Íkorni? Stefán Örn er líkur íkorna, að mati unnustu hans.
og kann bless-
unarlega að gera
grín að sjálfum
sér, ekki síður en
öðrum.
Fyrir nokkrum
árum kom út ævi-
saga Guðna svo
ekki þarf hann að
fara yfir pólitíska
ferilinn af sögulegri nákvæmni og al-
vöru í þessari bók, heldur leyfir sér
að horfa yfir farinn veg í gam-
ansömum tón.
Lestur bókarinnar er eins og sam-
koma þar sem Guðni er ræðumaður.
Léttur í lund er eins nálægt því að
vera hljóðbók og mögulegt er, án
þess að vera það; svo greyptur er
höfundur í þjóðarsálina að þegar
textinn er lesinn hljómar rödd fram-
sóknarmannsins í undirmeðvitund-
inni. Þessi hljómfagra sunnlenska
framsóknarrödd með sínum sterku
errrr-um og hv-inu, óraddaða góm-
mælta önghljóðinu. Stundum virðist
það reyndar tvífari ráðherrans fyrr-
verandi, Jóhannes eftirherma, sem
birtist ljóslifandi en hann er síst
verri en fyrirmyndin.
Bókinni skiptir Guðni niður í ör-
stuttar sögur, ýmis með eða án
skemmtilegs kveðskapar, lengri frá-
sagnir, nokkrar ræður hans eru í
bókinni sem og „innsendar Guðna-
sögur“ þar sem ýmsir segja sögur af
bókarhöfundi.
Margar sagna í bókinni eru drep-
fyndnar og bókin í heild stór-
skemmtileg.
Guðni er forn á sinn sérstaka hátt
og stoltur af. Enda segir hann, strax
í fyrstu sögu, af því er Davíð Odds-
syni leiddist þrákelkni landbún-
aðarráðherra síns, þegar málefni
Hlíðarenda í Fljótshlíð bar á góma.
Hann horfði nokkuð hvasst á mig,
skrifar Guðni, og segir forsætisráð-
herra hafa sagt: „Ja, það var verst
að þið Gunnar gátuð ekki gert út um
þetta með Hlíðarenda meðan þið
voruð báðir á lífi.“
Guðni Ágústsson fyrrver-andi alþingismaður ográðherra, er sannarlegaléttur í lund, í samnefndri
bók þar sem hann segir gamansögur
af sjálfum sér og öðrum.
Þessi kjarnyrti bónda- og alþing-
ismannssonur úr Flóanum; graf-
alvarlegur eins og hann getur verið
þegar rætt er um íslenska lamba-
kjötið, það besta í heimi, íslenska
smjörið, það besta í heimi, og þjóð-
argersemina íslenska hestinn, dýr-
mætustu eign Íslendinga; er sagna-
maður af guðs náð eins og alþjóð veit
Guðni fer á kostum
Gamansögur
Guðni – Léttur í lund bbbbn
Eftir Guðna Ágústsson.
Veröld, 2013. 251 bls.
SKAPTI
HALLGRÍMSSON
BÆKUR
Hljómsveitin Sudden Weather
Change heldur sína síðustu tónleika
í kvöld á Gamla Gauknum. Sudden
Weather Change var stofnuð árið
2006 og hefur gefið út sex plötur.
Hljómsveitin var valin bjartasta
vonin á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum árið 2010 og þykir lífleg og
kraftmikil tónleikasveit. Hún mun í
kvöld flytja sín bestu lög og verður
húsið opnað kl. 22. Markús & The
Diversion Sessions hitar upp fyrir
hljómsveitina.
Lokatónleikar Sudden Weather Change
Lok Sudden Weather Change.
STOFNAÐ1987
M
ál
ve
rk
:
K
ar
ó
lín
a
Lá
ru
sd
ó
tt
ir
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s