Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2013, Blaðsíða 9
3.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar
Lengd 235cm
Tunga 168 cm
Verð: Ct.10 leður 690.000,-
Breski siglingamaðurinn TimBarker hefur siglt um heims-ins höf á skútu sinni Mina 2.
Hann er einn af fáum sem hafa siglt
einkaskútu bæði norðan heimskauts-
baugs og við suðurheimskautið. Þá
hefur hann siglt um Miðjarðarhaf,
þvert yfir Atlantshafið og meðfram
ströndum Suður-Ameríku.
„Ég fór að fara í lengri siglingar
árið 2004 og fyrsta siglingin var um
norðurheimskautið. Síðan þá hef ég
verið að sigla um allan heim,“ segir
Barker sem hefur séð margt og lent í
ýmsu á ævintýraferðum sínum um
heiminn. „Dýralífið á þessum slóðum
er ótrúlegt og hugsa ég að suð-
urheimskautið eigi þar vinninginn.
Mjög fáar skútur í einkaeign sigla þar
eða aðeins um 6 bátar á ári hverju svo
það var mjög krefjandi.“ Veðurfar
hjá honum hefur verið eins mismun-
andi og ferðir hans en kátur í bragði
segir hann að það sé eitthvað sem all-
ir Íslendingar ættu að kannast við.
Barker nefnir til að mynda ógurlegan
storm sem skall á eins og þruma úr
heiðskíru lofti þegar hann sigldi frá
Buenos Aires í Argentínu yfir til
Falklandseyja sem tilheyra Bret-
landi. „Stormurinn skall á og varði í
36 klukkustundir. Ég veit ekki
hversu sterkur vindurinn var því
vindmælir minn toppaði sig í botn.
Þetta var alveg hreint svakalegt,“
segir Barker. Hann hefur þó ekki
orðið hræddur um líf sitt en viður-
kennir að sér hafi oft ekki staðið á
sama þegar slíkt fárviðri hefur skollið
á. Hann fer þó ekki einn síns liðs að
sigla heldur fylgja honum yfirleitt 4-5
aðrir og þá eru oftast einhverjir fjöl-
skyldumeðlimir með í för.
Í janúar stefnir hann á að sigla með
konu sinni í Karabískahafinu og eiga
þar notalegar og hlýjar stundir. „Það
verður ekki eins krefjandi ferð, enda
má búast við ljúfu veðri allan tímann“.
Barker er á landinu og heldur fyrir-
lestur um siglingar sínar mánudaginn
4. nóvember í sal Tannlæknafélagsins
í Síðumúla 35 þar sem boðið verður
upp á kaffi og hefst fundurinn kl. 20.
Hann mun segja frá hættulegum
kynnum sínum af siglingum í ís við
bæði heimskautin og mörgu fleiru.
Öllum er frjálst að mæta og er að-
gangseyrir krónur 1.500 en 1.000 fyr-
ir félagsmenn. gunnthorunn@mbl.is
ÍSJÖKULKALDUR
Það er svo sannarlega fallegt á heimskautslóðum til að stöðva skútuna og skoða umhverfið betur.
* „Ég veit ekkihversu sterkurvindurinn var því
vindmælir minn
toppaði sig í botn.“
Siglir um heimsins höf á einkaskútu
Tim Barker er svellkaldur.