Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013 Hugmyndir Auður Gná Ingvarsdóttir hefur komið hugmyndum sínum í framkvæmd og vörur hennar og annarra er hægt að kaupa í Insula. Malín Brand malin@mbl.is M argt er sammerkt með textíllistinni og list- inni að húðflúra. Það er því óvitlaust að tvinna þetta saman eins og þau Auður Gná og Jón Þór Ís- berg fundu út. Hann rekur húðflúr- stofuna Kingdom Within Tattoo stud- io, á hæðinni fyrir ofan verslunina Insula sem Auður Gná opnaði í síðasta mánuði. Búrhvalstennur og mokkaskinnspúðar Í Insula er aðallega seld íslensk hönnun. Allt frá skartgripum úr búr- hvalstönnum og kertastjökum til púða úr mokkaskinni eða flugbeittra eld- húshnífa sem búnir eru til í Mosfells- bænum. Auður Gná er innanhúsarkitekt að mennt en hún lærði á Spáni og bjó í Barcelona í tíu ár. Hún hefur lengi haft áhuga á ýmiss konar efni og sömuleiðis skinni. „Ég hef alltaf haft áhuga á efnum og á fullt af efnisbútum heima sem ég hef keypt á mörkuðum erlendis,“ segir Auður Gná en hún hef- ur verið að framleiða vörur sjálf og meðal annars þess vegna opnaði hún verslunina. „Ég hef verið að vinna með sútara á Sauðárkróki og fór í þróunarvinnu með honum. Mig langaði til að sjá hvort hægt væri að gera eitthvað úr skinnum sem falla til í massavís. Það er eiginlega ekkert verið að nýta þau enda ekki til margar vélar til að vinna þau og þekkingin á vinnsluaðferðum takmörkuð,“ segir hún og er Karli Bjarnasyni sútara á Sauðárkróki þakklát fyrir þá hjálp sem hann hefur veitt henni. Hann fann út hvaða sút- unaraðferð hentaði best fyrir skinnið. Úr skinninu eru saumaðir púðar sem seldir eru undir merkinu Further North, og smærri veski eru unnin úr lambsleðri. Til þess að sauma skinnið saman þarf sérstakar vélar og eru púðarnir saumaðir saman hjá fjöl- Japanskt húðflúr innblástur í hönnun Fyrir miðjum Skólavörðustíg, nánar tiltekið í húsi númer 21 þar sem Klappar- stígur, Grettisgata og Skólavörðustígur mætast, er rekin allsérstök verslun. Hún heitir Insula og hana rekur ung kona, Auður Gná Ingvarsdóttir, og selur þar ís- lenska hönnun af ýmsum gerðum. Í sama húsi er húðflúrari með stofu og hafa þau Auður Gná unnið saman. Útkoman er í senn áhugaverð og óvenjuleg. Flúr og skart Í forgrunni má sjá bómullarpúðana með flúrmyndum Jóns Þórs en ofan á borðinu eru íslenskir eldhúshnífar úr Mosfellsbænum. Vefsíðan minjasafnreykjavikur.is Morgunblaðið/Eggert Þjóðlegur Þessi sveinn lítur við. Gömlu jólin Á morgun, sunnudag, verður árleg jólasýning Árbæjarsafns. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra og syngja jólalög. Guðsþjón- usta verður í safnkirkjunni kl. 14, jólatrésskemmtun á torginu kl. 15 og dansað í kringum jólatréð við harm- ónikkuundirleik og kórsöng. Gömlu íslensku jólasveinarnir verða á vappi um safnsvæðið á milli kl. 14 og 16. Gestir fá að smakka hangiket. Það er bæði kærleiksríkt og kvikindislegt nafnarímið hans Gunnars Kr. Sig- urjónssonar, sem finna má í nýrri bók sem hann hefur sent frá sér. „Allir krakkarnir“ heitir bókin og geymir á sjötta hundrað nafnarím. Grínið er aldrei langt undan og flest hefjast nafna- rímin á orðunum Allir krakkarnir, en þó eru nokkur sem byrja á Allir strák- arnir, eins þetta: Allir strákarnir áttu kærustu, fyrir utan Sissa – hann kunni ekki að kyssa. Endilega … … rímið með mannanöfnum Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Hlökkum til að sjá þig. SKARTAÐU ÞÍNU FEGURSTA Bankastræti 4 I sími: 551 2770 www.aurum.is FRÍ HEIM- SENDING www.aur um.is Ný vefverslun á michelsen.is Laugavegi 15 - 101 Reykjavík Sími 511 1900 - www.michelsen.is ASA HÁLSMEN 9.700 kr. ASA LOKKAR 9.700 kr. ASA HRINGUR 9.900 kr. ROSENDAHL 24.900 kr. ARMANI 60.800 kr. ARNE JACOBSEN 64.900 kr. CASIO 13.600 kr. Glæsilegar jólagjafir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.