Morgunblaðið - 21.12.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Skóli, menningarmiðstöð
og íþróttaaðstaða í Úlfarsárdal
Reykjavíkurborg ı Umhverfis- og skipulagssvið ı www.reykjavik.is
Reykjavíkurborg í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til opinnar
tveggja þrepa hönnunarsamkeppni til að fá fram áhugaverðar og vandaðar
tillögur að uppbyggingu samþætts leik- og grunnskóla með aðstöðu
fyrir frístunda og félagsstarf, menningar-, sund- og íþróttamiðstöð í
borgarhlutanum, sem þjóni sem best íbúum Úlfarsárdals, Grafarholts og
öðrum. Samkeppnin tekur auk þess til fjölgunar íbúðarlóða.
Gert er ráð fyrr að samið verði við höfund fyrstu verðlaunatillögu um
áframhaldandi hönnun á verkefninu til útboðs.
Nánari upplýsingar eru á www.hugmyndasamkeppni.is
Ítargögn fá þeir sem skrá sig til þátttöku og greiða þátttökugjald.
Horft að keppnissvæði. Ljósmynd: Alta ehf.
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Breytingin sem lögð er til á gatna-
mótum Kalkofnsvegar og Geirsgötu
í tillögum umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjavíkurborgar um breytt
deiliskipulag Austurhafnar er til
þess fallin að
hægja á umferð,
en á sama tíma
mun umferðarör-
yggi þar aukast.
Þetta segir lekt-
or í skipulags-
fræði. Hún segir
að aldrei hafi
reynt á réttar-
stöðu lóðarhafa
þegar deiliskipu-
lagi hafi verið
breytt, því hingað til hafi alltaf
náðst samkomulag um slík mál.
„Bílaumferðin er mjög erfið
þarna; mikil umferð og fjölfarinn
skurðpunktur bíla og gangandi um-
ferðar,“ segir Sigríður Kristjáns-
dóttir, lektor í skipulagsfræði við
umhverfisdeild Landbúnaðarhá-
skólans. „Ég held að þessi T-
gatnamót, sem fyrirhuguð eru sam-
kvæmt breytingartillögum á deili-
skipulaginu, séu besta lausnin á
þessum erfiða stað. Umferðin verð-
ur öruggari, bæði fyrir bíla og þá
sem eru gangandi og hjólandi.“
Það er mat Sigríðar að þessar
breytingar muni þrengja að og
hægja á bílaumferð. „Það segir sig
sjálft að ef hægja á á umferð af-
kasta göturnar ekki jafn miklu.
Núna er þetta svolítið eins og hrað-
braut, en það á að breyta þessu í
borgarstræti. Það er þarft að
tengja þetta svæði betur við
miðbæinn, það hefur verið rætt um
að setja þessa umferð í stokk eða
fara með hana út fyrir þetta svæði.
Það er einfaldlega of dýrt og um-
ferðin er ekki nógu mikil fyrir slík-
ar framkvæmdir. Þannig að á þess-
um tímapunkti er þetta besta
lausnin.“
Réttarstaðan er óviss
Breytingartillögurnar voru af-
greiddar út úr borgarráði í fyrra-
dag. Júlíus Vífill Ingvarsson,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borg-
arráði, hefur gagnrýnt að í þeim er
lagt til að einn byggingarreitur
verði minnkaður og annar stækk-
aður. Í viðtali við Morgunblaðið í
gær sagði Júlíus m.a. að hann vissi
ekki til þess að borgin hefði komist
að samningum við lóðarhafa þess-
ara lóða. Það gæti orðið til þess að
auglýsa þyrfti deiliskipulagið að
nýju með tilheyrandi töfum og
kostnaði og verið gæti að samn-
ingsstaða borgarinnar væri ekkert
„sérstaklega sterk“ eins og hann
komst að orði. Sigríður segir alls
óvíst hver staða Reykjavíkurborgar
væri kæmi upp ágreiningur varð-
andi þetta. „Við vinnum svæðis-
skipulag, aðalskipulag og deili-
skipulag. Þau tvö fyrrnefndu fara í
endurskoðun jafnvel á hverju kjör-
tímabili. En deiliskipulag fer yf-
irleitt ekki í endurskoðun, þannig
að við vitum ekki hver réttarstaðan
er ef fólk hefur t.d. fengið leyfi til
að byggja tíu hæða byggingu, en
borgin gerir síðan breytingar og
segir að það megi bara byggja
fimm hæðir. Er borgin þá skaða-
bótaskyld? Það hefur aldrei reynt á
þetta, það eru engin fordæmi því að
það hefur alltaf náðst sátt. Þannig
að það er óhætt að halda því fram
að réttarstaðan sé óviss.“
Huga þarf að mörgum þáttum
Sigríður segir það brenna við að
fyrst og fremst sé einblínt á bygg-
ingar í umræðu um deiliskipulag.
„Það þarf líka að huga að öðrum
þáttum, sérstaklega þar sem verið
er að skapa miðborg höfuðborg-
arinnar okkar. Það þarf að vanda
sig og hugsa um hvernig fólki gæti
liðið þarna, hvort fólk langi yfirhöf-
uð til að vera þarna. Það þarf líka
að hugsa um svæðið á milli bygg-
inganna og ég get ekki betur séð
en að það sé verið að því í núver-
andi tillögum.“
Umferðin verður hægari og öruggari
Lektor í skipulagsfræði segir fyrirhugaðar breytingar á Geirsgötu bestu lausnina í stöðunni
Segir að aldrei hafi reynt á réttarstöðu varðandi breytingar sem gerðar eru á deiliskipulagi
Morgunblaðið/RAX
Geirsgata Samkvæmt breytingunum á deiliskipulaginu verður gatan færð sunnar og mætir þá Kalkofnsvegi og
Lækjargötu á svonefndum T-gatnamótum í stað þess að renna beint saman við Kalkofnsveg eins og er í dag.
Sigríður
Kristjánsdóttir
„Flæðið á umferðinni verður ekki
betra, en það verður heldur ekki
verra,“ segir Stefán Agnar Finns-
son, yfirverkfræðingur hjá Reykja-
víkurborg, spurður um fyrirhug-
aðar breytingar á gatnamótum
Geirsgötu og Kalkofnsvegar. „Af-
kastalega verður þetta á svipuðum
nótum, en við munum fara yfir sam-
hæfingu og stillingu umferðarljósa
þegar þetta fer í gang.“
Að sögn Stefáns hefur ekki verið
metið sérstaklega hversu mikið bíla-
umferð er talin aukast með tilkomu
nýju bygginganna við Austurhöfn.
– Hvað er þá unnið með þessari
breytingu og á hvaða forsendum er
hún gerð? „Eins og gatnakerfið
þarna í gegn er í dag þá er það nokk-
uð straumlínulagað. Með breyting-
unni verður umferðin hægari og
tempraðri og auðveldara verður að
halda niðri hraða, eins og eðlilegt er
á þessum stað. Þarna verður mikið
sambland gangandi, akandi og hjól-
andi vegfarenda.“ annalilja@mbl.is
Verður ekki betra,
en heldur ekki verra
Hugsanleg aukning ekki verið metin
Tölvugerðar myndir/Batteríið Arkitektar
Austurhöfn Skýringaruppdráttur af svæðinu samkvæmt tillögum að breyt-
ingum á deiliskipulagi. Þarna sjást fyrirhugaðar breytingar á Geirsgötu.