Morgunblaðið - 21.12.2013, Qupperneq 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013
Barmahlíðarkór-
inn flytur í dag
kl. 13 söngperlur
á Kaffi Komp-
aníinu á Kjar-
valsstöðum undir
stjórn Örlygs
Benediktssonar.
Boðið verður upp
á ókeypis kakó
og kleinur fyrir
börn 12 ára og
yngri og aldrei að vita nema jóla-
sveinar láti sjá sig. Fólk er hvatt til
þess að mæta og njóta aðventunnar
við kertaljós og kærleikssöng.
Kór, kakó
og kleinur
Örlygur
Benediktsson
Það kom skemmtilega á óvartþegar stigið var inn í salþrjú í Bíó Paradís hversuþétt setinn salurinn var.
Því miður er maður oft einmana í söl-
um þessa ágæta kvikmyndahúss
þrátt fyrir allar þær góðu myndir
sem þar eru sýndar. Margmennið
var því gott fyrirheit fyrir kvikmynd-
ina sem var í þann mund að hefjast.
Philomena segir frá ferðalagi
þeirra Martins (Steve Coogan) og
Philomenu (Judi Dench). Sá fyrr-
nefndi er fyrrverandi blaðamaður
sem missti starf sitt sökum pólitískr-
ar flækju, en sú síðarnefnda er nokk-
uð einföld og gömul írsk amma. Leið-
ir þeirra liggja saman þegar Martin
ákveður í örvæntingu sinni að rétta
sinn kjöl sem blaðamaður með því að
taka að sér að skrifa um leit Philo-
menu að syni sínum sem tekinn var
af henni á hennar unglingsárum.
Kvikmyndir um ferðalag tveggja
ólíkra persóna eru í raun á hverju
strái og því lítið nýtt eða frumlegt við
þá framvindu sögunnar. Allar þessar
helstu klisjur um samskipti ólíkra
persóna sem fastar eru saman í
ákveðinni framvindu eru brúkaðar
og lítið sem kemur á óvart. Að því
sögðu þá er lítið annað en gott af
kvikmyndinni að segja. Hinn enski
Stephen Frears leikstýrir henni vel
og lætur söguna flakka fram og aftur
í tíma með tilheyrandi breytingum á
leikmyndinni og kemur það ein-
staklega skemmtilega út. Myndin fer
ekki fögrum höndum um vasaklútinn
og hvert andlit í salnum var stokk-
bólgið af gráti. Í stökum atriðum ger-
ist Frears þó sekur um að blóð-
mjólka átakanleg atriði svo sorgin
verður hálf-yfirdrifin.
Eins og flest góð handrit eru ýmis
átök og ýmsir hnútar sem persónur
myndarinnar þurfa að leysa fyrir ut-
an aðaldrifkraft kvikmyndarinnar,
sem er að sjálfsögðu að finna týnda
soninn. Það má finna ádeilu á kaþ-
ólsku kirkjuna, repúblikana sem og
bandaríska kvikmyndagerð og af-
káralegar ástarseríur á borð við
Rauðu seríuna. Myndin er sann-
söguleg og er það oftast ágætis
krydd á góðar kvikmyndir. Að sama
skapi eru þau Dench og Coogan
virkilega góð í hlutverkum sínum
sem og allir aðrir sem fara með hlut-
verk í myndinni. Dench fer kannski
ekki mikið út fyrir sitt þægindasvið í
viðkomandi kvikmynd en þar sem
það svið er ansi gott þá er lítið yfir
því að kvarta.
Framvinda söguþráðarins er
fremur auðmeltanleg og lítið sem
áhorfandinn þarf að velta sér upp úr
eða finna út úr upp á eigin spýtur.
Tónlistin spilar einnig stórt hlutverk
í myndinni og fallegir tónarnir eru
hvetjandi fyrir hverja þá tilfinningu
sem brýst fram í brjóstum áhorf-
enda. Philomena er á heildina litið
einkar fögur og vel gerð kvikmynd
sem á eflaust eftir að vekja ein-
hverjar tilfinningar í hinu kaldasta
hjarta.
Philomena „Eins og flest góð handrit eru ýmis átök og ýmsir hnútar sem persónur myndarinnar þurfa að leysa fyr-
ir utan aðaldrifkraft kvikmyndarinnar, sem er að sjálfsögðu að finna týnda soninn,“ segir m.a. í dómi.
Tárvotir týndir synir
Bíó Paradís
Philomena bbbbm
Leikstjórn: Stephen Frears. Handrit:
Steve Coogan og Jeff Hope. Aðal-
hlutverk: Judi Dench og Steve Coogan.
95 mín. Bretland, 2013.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Jólatónleikar í anda Bings Crosby
verða haldnir í kvöld kl. 21 á Café
Haiti, Geirsgötu 7b. Bing Crosby-
jólahljómsveitina skipa Sigurður
Páll Árnason söngvari, Benjamín
Náttmörður Árnason gítarleikari,
Hlynur Þór Agnarsson píanóleik-
ari, Hálfdán Árnason bassaleikari
og Hrafnkell Örn Guðjónsson
trommuleikari.
Um hljómsveitina segir á vef
hennar, bingcrosby.yolasite.com,
að hún hafi vakið mikla lukku síð-
ustu jól fyrir flutning sinn og að
liðsmenn hennar séu allir faglærðir
tónlistarmenn og félagar í FÍH. Á
vefnum má finna hljóðdæmi frá
tónleikum sveitarinnar síðustu jól,
lögin „Here comes Santa“, „Winter
Wonderland“ og „Silent Night“ sem
Crosby gerði eftirminnileg skil á
sínum tíma og Sigurður Páll bregð-
ur sér í hlutverk Crosby með nokk-
uð góðum árangri.
Tónleikar í anda Crosby
Jóla-Bing Umslag White Christmas.
Vefurinn Raftón-
ar, raftonar.-
bandcamp.com,
gerir upp árið
sem er að líða
með því að bjóða
frítt niðurhal á
safndiski með
nokkrum af
bestu raftónum
ársins. Meðal
lagahöfunda eru
Berndsen, FM Belfast, Ruxpin og
M-Band. Raftónar eru vefsíða sem
fjallar um íslenska raftónlist og hóf
hún göngu sína 2011.
Jólagjöf frá
Raftónum
Tónlistarmaðurinn
Berndsen
Í OPINNI DAGSKRÁ
UMHELGINA
HOLLENSKI
BOLTINN
PSVEINDHOVEN–ADODENHAAG
SUNNUDAGKL. 15.30
RODA JCKERKADE –AJAX
SUNNUDAGKL. 11.30
AZALKMAAR–SCHEERENVEEN
LAUGARDAGKL. 17.45
AÐGANGUR ÓKEYPIS
ALLIR VELKOMNIR
JÓLARÓ
Á ÞORLÁKSMESSU
í anddyri Hörpu kl. 17-18
fjölmargir óperusöngvarar
syngja jóla- og hátíðarlög
umsjón og píanóleikur
antonía hevesi