Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Blaðsíða 9
26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Framúrskarandi fasteignasala
í meira en hálfa öld
Nei, hún þarf ekki spangir.Það er ekki eins og húneigi eftir að verða í kvik-
myndum.“
Þannig svaraði roskinn tann-
læknir fyrirspurn móður Ali
MacGraw þegar hún var barn að
aldri. Doksa skjöplaðist hrapallega,
MacGraw náði síðar miklum hæð-
um á hvíta tjaldinu en líka lægðum
á óvenjulegum ferli sem telur ekki
margar myndir. Frægust er
MacGraw auðvitað fyrir túlkun
sína á hinni staðföstu en dauða-
dæmdu Jennifer Cavalleri í hinni
geysivinsælu Ástarsögu, Love
Story, frá árinu 1970.
Móðurinni létti við úrskurð
tannlæknisins enda var fjárhagur
fjölskyldunnar bágur. Foreldrar
MacGraw voru bæði listamenn og
lifði fjölskyldan hálfgerðu sígauna-
lífi. Faðirinn var af skosku bergi
brotinn en móðirin af ungverskum
uppruna. „Foreldrar mínir gátu
ekki gefið mér margt en kenndu
mér að lifa lífinu,“ sagði hún síðar.
Óyndi í fyrirsætustörfum
Elizabeth Alice MacGraw fæddist í
New York 1. apríl 1939 og verður
því 75 ára gömul í vor. Lítið fór
fyrir henni í bernsku en á ung-
lingsárum sprakk stúlkan út. Þótti
öðrum fljóðum fegri og spreytti
sig á fyrirsætustörfum sem henni
raunar drepleiddust. Eftir að hafa
lagt stund á frönsku, ítölsku, sögu
og listnám í háskóla gekk Mac-
Graw að eiga bankamanninn Robin
Hoen árið 1961. Þau skildu hálfu
öðru ári síðar. Þá fékk hún sér
vinnu í tískubransanum, meðal
annars sem aðstoðarkona ljós-
myndarans Mels Sokolskys. Í frí-
stundum samdi hún ljóð og teikn-
aði myndir í leiguíbúð sem
skartaði aðeins einni dýnu á gólf-
inu.
Til að drýgja tekjurnar byrjaði
MacGraw aftur að sitja fyrir, fyrst
á ljósmyndum en síðan í sjón-
varpsauglýsingum. Eitt leiddi af
öðru og henni var óvænt boðið lítið
hlutverk í kvikmyndinni A Lovely
Way to Die árið 1968. Ekki hefur
stúlkan verið utan gátta þar því
henni var boðið aðalhlutverk í ann-
arri mynd, Goodbye, Columbus,
ári síðar. MacGraw var ausin lofi
fyrir leik sinni í þeirri mynd og
hlaut meðal annars Golden Globe-
verðlaunin sem bjartasta vonin.
Henni varð um þessar viðtökur,
leit ekki á sig sem leikkonu og
langaði helst að draga sig í hlé.
Eftir að hafa hafnað fjölda tilboða
féll MacGraw kylliflöt fyrir hand-
ritinu að Love Story og samþykkti
að taka hið vandasama hlutverk
Jenny að sér.
Giftist framleiðandanum
Hún féll raunar kylliflöt í öðrum
skilningi, hitti og giftist kvik-
myndaframleiðandanum Robert
Evans, sem einmitt framleiddi
Love Story. Skömmu eftir að
myndin var frumsýnd ól hún hon-
um soninn Joshua. Hennar eina
barn. Nokkrum árum áður hafði
MacGraw farið í fóstureyðingu
meðan það athæfi var með öllu
ólöglegt vestra.
Love Story sló rækilega í gegn
og gerði Ali MacGraw á einni
nóttu að heimsstjörnu. Hún fékk
Golden Globe-verðlaunin sem
besta leikkona í aðalhlutverki og
var tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Stærri kvenstjarna var varla til í
heiminum um þær mundir.
MacGraw tók sér tveggja ára frí
frá kvikmyndaleik eftir Love
Story, bæði til að ná áttum og ein-
beita sér að uppeldi sonar síns.
Samþykkti þá að leika á móti
Steve McQueen í The Getaway.
Það var örlagarík ákvörðun. Áður
en nokkur maður vissi var Mac-
Graw skilin við Evans og tekin
saman við McQueen. Ekki var upp
á hann logið, „konung kúlsins“.
Hjónaband MacGraw og
McQueen entist í fimm ár og lék
hún ekki í einni einustu mynd á
meðan. Upphaflega ætlaði hún að
taka sér stutt frí til að vernda son
sinn og son McQueens, Chad, fyrir
kastljósi fjölmiðlanna en á því
teygðist.
„Hræðileg leikkona“
Þegar hún sneri loksins aftur á
hvíta tjaldið, í Convoy 1978 og
Players 1979, virtust töfrarnir
horfnir. „Hræðileg leikkona af
nasaskólanum,“ sagði kvikmynda-
gagnrýnandi New Yorker.
McGraw náði vopnum sínum aftur
í Just Tell Me What You Want
1980 og framhaldsþáttunum vin-
sælu Winds of War 1983, þar sem
hún lék á móti Robert Mitchum og
fleiri kempum. Þá kom hún stutt-
lega við sögu í sápuóperunni
Dynasty um miðjan níunda áratug-
inn. Hlutverk sem hún tók bara að
sér vegna peninganna, viðurkenndi
hún síðar.
Síðan hefur satt best að segja
lítið verið að frétta. Þau fáu sjón-
varps- og kvikmyndaverkefni sem
MacGraw hefur tekið að sér hafa
farið undir radarinn. Yrði eig-
inlega bara vandræðalegt að nefna
þau hér.
Jóga og dýravernd
Þrátt fyrir lítil umsvif í kvikmynd-
um fer því fjarri að MacGraw hafi
setið auðum höndum. Á tíunda
áratugnum hóf hún að stunda jóga
af miklum móð og er af mörgum
talin bera höfuðábyrgð á út-
breiðslu greinarinnar í Bandaríkj-
unum. Gömul kennslumyndbönd
seljast enn eins og heitar lummur.
Þá hefur MacGraw gefið sig af
krafti að dýravernd og árið 2006
þreytti hún frumraun sína á
Broadway sem ættmóðirin í Veisl-
unni eða Festen. Fékk ekkert sér-
staka dóma.
MacGraw hefur rogast með sína
djöfla gegnum þetta líf, eins og við
flest, og í óopinberri ævisögu
hennar, Moving Pictures, er meðal
annars rætt um glímu hennar við
áfengis- og kynlífsfíkn. MacGraw
hefur raunar gefið lítið fyrir þá
sögu, sagt hana „illa skrifaða“.
Undanfarna tvo áratugi hefur
MacGraw búið í Santa Fe í Nýju-
Mexíkó eftir að heimili hennar á
Malibu brann til kaldra kola.
orri@mbl.is
Hvað varð um?
Ali MacGraw
ALI MACGRAW VARÐ ALVEG ÓVART KVIKMYNDA-
STJARNA. HAFÐI ALLA TÍÐ EFASEMDIR UM HÆFILEIKA
SÍNA ENDA URÐU MYNDIRNAR EKKI MARGAR. FERILL
HENNAR EINKENNIST AF HÆÐUM, LÆGÐUM OG
LÖNGUM HLÉUM INNI Á MILLI.
Með Steve
McQueen í Getaway.
Ástin blómstraði.
Með Ryan O’Neill
í Love Story.
Ali MacGraw hefur marg-
oft verið á listum yfir kyn-
þokkafyllstu konur heims.
MacGraw á efri
árum. Heldur
sér vel.