Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Page 19
* Líflegir markaðir hafa veriðhluti af götumenningu Co-vent Garden frá því á 13. öld.
Sumir vegfarendur létu Paul McCartney þó ekki stoppa sig og héldu áfram að
skoða götumarkaðsgóssið.
Morgunblaðið/Golli
Paul McCartney tók
sig til í október á
síðasta ári og tróð
óvænt upp í Covent
Garden við mikla
hrifningu vegfarenda.
AFP
26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Utan markaðanna er mikið líf en í nálægum verslunargötum má finna
margar góðar verslanir eins og H&M, Mango og Marks&Spencer
sem t.d. eru ekki til hér heima, auk algengustu merkjaverslananna.
Það er alltaf líf á götunum þar sem mannfjöldi safnast gjarnan í
kringum ótrúlega sniðuga götuleikara sem leika listir sínar nálægt
Covent Garden mörkuðunum en leiklist hefur alltaf verið tengd
hverfinu. Stutt frá eru tvær
sögufrægar byggingar, St. Paul
kirkjan (St. Pauĺs Church) og
Óperuhúsið (The Royal
Opera House) og svo Sam-
göngusafnið (London Tran-
sport Museum) sem stofnað
var 1980. St. Paul kirkjan var
byggð árið 1653 af sama eig-
anda og þá átti Covent Gar-
den, Earl of Bedford. Hún var
hönnuð af hinum fræga Indigo Jones og líkist hofi. Óperuhúsið var
byggt tæpri öld síðar eða 1732 og var fyrst leikhús en síðan bættust
óperan og ballettinn við. Samgöngusafnið er einnig áhugavert fyrir
þá sem hafa áhuga á sögu samgöngutækja.
Það er hægt að eyða einum klukkutíma í Covent Garden en það er
líka hægt að eyða mörgum dögum, mannlífið er svo fjölbreytilegt,
hönnunin svo geðveik, töskurnar svo flottar, bækurnar svo góðar og
ananasinn svo sætur.
Sögufrægar byggingar
og verslanir
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA