Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.01.2014, Side 59
26.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Prikasamstæða er tölvuhugtak. (9)
5. Gull gaf ás á skíðum þótt hann væri drukkinn. (10)
9. Bátskel er í ástaratlotum. (6)
10. Limlestir bjálka. (6)
12. Verndi venju í ljóðinu. (6)
13. Veltum Gasa á leiktæki (8)
14. Bara til svipaðra. (6)
16. Gloppóttast missir tól fyrir reipi. (8)
17. Rask er hálf rökfastur en líka lyginn. (8)
18. Það sem er sannanlega ruglandi getur fundist undir vegi. (8)
19. Hlutar úr umsóknum fyrir óróa bari. (10)
21. Gramm elska með skynsemi og plöntu og heimskt birtist.
(11)
24. Andarfrændi affermi stelandi. (8)
26. Gramsar stafur eftir rætlingi. (11)
28. Braust Rún einhvern veginn að tóft. (9)
31. Rúmfrekur með stór tré? (9)
33. Hefur menn til að biðja. (6)
34. Skil af einingar af því að þvælist fyrir prentbilunum. (12)
35. Við frægðina búi einhvern veginn á þjálfunarstað. (11)
36. Með, reyndar, ljóð hjá tré. (9)
LÓÐRÉTT
1. Sök kvalara nær að fara í kaf. (6)
2. Hættir við þótt kraft hvetjir. (8)
3. Stutt spurning Ítala um vist endar í dvöl á stofnun. (11)
4. Æfð í matarlist getur fundið sérstaka fræðigrein. (13)
5. Íslaus þjálfi fyrir fjármunina. (6)
6. Ég er víst einn og berlega óekta skreyting. (11)
7. Sá sem fer aldrei niður er hamskeri. (11)
8. Villulaus braut er bætt. (8)
11. Læknir, lát auga við rið hjá húsi á Suðurlandi. (12)
15. En durg er alltaf hægt að búa til aftur. (9)
17. Sé hikandi farartæki með yfirmönnum. (6)
20. Varauppástungur felast í gorti. (4)
22. Notaðar uns flækist úr vindátt. (10)
23. Einn hópur fær norskan þorsk. Það er flókið. (9)
25. Staðlað viðmið ráði við Frakka. (8)
27. Erlent sjónvarp fer tvisvar inn með bandinu. (8)
28. Á næstunni hjá veiði. (6)
29. „Nóg kusk“ er stundum sagt í spilum. (4)
30. Tærum oft erfiðan. (6)
32. Drollar við hyl Araba. (5)
Jan Timman og Max Euwe eruþeir stórmeistarar Hollendingasem lengst hafa náð. Euwe
varð heimsmeistari árið 1935 og
eftir því sem árin liðu dró hann úr
þátttöku á skákmótum og varð að
lokum forseti FIDE á miklu um-
brotatímabili frá 1970-́78. Um svip-
að leyti tók Timman við kyndlinum
sem fremsti skákmaður Hollend-
inga. Hann er nú 62 ára gamall og
hin síðari ár hefur hann stundum
skort úthald á sterkum mótum og
hvergi hefur það komið betur fram
en í hinni hörðu keppni A-flokks
Wijk aan Zee-mótanna. Fyrir tveim
árum var Timman ákaft fagnað í
Wijk þegar hann tók sæti í B-
stórmeistaraflokki og í ár lét hann
sig hafa það að tefla þar aftur. Eft-
ir þrjár umferðir var hann með
einn vinning en þá var eins og birti
til og hann vann hverja skákina á
fætur annarri með stórskemmti-
legri taflmennsku. Þegar þetta er
ritað er hann í 3. sæti með 7 vinn-
inga af 10 mögulegum, aðeins ½
vinningi á eftir efstu mönnum.
Þetta þykja ekki minni tíðindi í
Hollandi en úrslitin í A-flokki þar
sem flest hefur farið eftir bókinni
og Levon Aronjan er efstur.
Reynslumiklir skákmenn hafa það
oft fram yfir þá yngri að getið
gripið til gamalla og „gleymdra“
leikja eins og í eftirfarandi skák
sem tefld var í 10. umferð:
Etienne Goudriann – Jan Timm-
an
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
e3 O-O 5. Bd3 d5 6. Rf3 c5 7. O-O
b6
Leikur sem sést sjaldan nú orðið
en var í vopnabúri Keres, Spasskí
og Friðriks Ólafssonar.
8. cxd5 exd5 9. Re5 He8
Góð er einnig sú leið sem Friðrik
valdi að leika 9. … Bxc3 10. bxc3
Ba6 sbr. skák hans við Matera á
Reykjavíkurskákmótinu 1976.
10. Re2 c4 11. Bc2 Bd6 12. b3
Dc7 13. Bb2 b5 14. Hc1 Rbd7 15.
f4 Rb6
Svartur leitar færa á drottning-
arvængnum. Það kemur aldrei til
álita að taka á e5.
16. De1 a5 17. Dh4 Be7 18. f5
b4 19. Hf3 c3 20. Hg3 Re4!
20. .. cxb2 leiðir til jafnteflis eftir
21. hxg7+ Kxg7 22, Dg5+ Kf8 23.
Dh6+ o.s.frv. Timman vill meira.
21. Dh5
Hótar máti í tveim leikjum, 22.
Dxf7+ og 23. Dxg7. Svartur getur
varið f7-peði með ýmsum hætti, 21.
… Bf6 lítur vel út en þá kemur 22.
Bxe4 dxe4 23. Rg4! og hvítur vinn-
ur. Annar möguleiki er 21. … Rd6
22. Hxg7+! Kxg7 23. f6+! Bxf6 24.
Dxh7+ Kf8 25. Rg6+! fxg6 26.
Dxc7 með vinningsstöðu. Timman
hittir á besta leikinn.
21. … Bh4! 22. Bxe4 Bxg3 23. f6
h6! 24. Rxg3 Hxe5!
Aftur besti leikurinn en 24. ...
dxe4 kom einnig til greina.
25. dxe5 dxe4 26. Hf1 cxb2 27.
fxg7 Kxg7!
Hótunin var 28. Dxh6. Þetta er
besti varnarleikurinn.
28. Dh4 Rd5 29. Rh5 Kf8 30.
Rf6 Rxf6 31. exf6 Ha6 32. Dxe4
Lítt stoðar 32. Dxh6+ Ke8 og
kóngurinn sleppur.
32. …Be6 33. Hd1 Ke8 34. Db1
De5 35. Dh7 Hd6 36. Hxd6 Dxe3+
37. Kf1 Df4+
– og hvítur gafst upp.
Jón Viktor og Einar
Hjalti efstir á Skákþingi
Reykjavíkur
Þegar þrjár umferðir eru eftir af
Skákþingi Reykjavíkur eru sig-
urstranglegustu keppendurnir þeir
Jón Viktor Gunnarsson og Einar
Hjalti Jensson í efsta sæti með 5 ½
vinning af sex mögulegum. Allt
getur gerst á lokasprettinum því
þrír ungir skákmenn sækja hart að
þeim. Dagur Ragnarsson, Örn Leó
Jóhannsson og Þorvarður Ólafsson
eru í 3. – 5. sæti með 5 vinninga. Í
6. – 8. sæti koma svo Davíð Kjart-
ansson, Loftur Baldvinsson og Júl-
íus Friðjónsson með 4 ½ v.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Jan Timman aftur til Wijk aan Zee
Verðlaun eru veitt fyr-
ir rétta lausn kross-
gátunnar. Senda skal
þátttökuseðilinn með
nafni og heimilisfangi
ásamt úrlausnum í
umslagi merktu:
Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til
að skila úrlausn kross-
gátu 25. janúar rennur
út á hádegi 31. janúar. Vinningshafi krossgátunnar
18. janúar er Þórhallur Hermannsson, Mararbraut
3, 640 Húsavík. Hlýtur hann bókina Kamban – líf
hans og störf í verðlaun. Forlagið gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang