Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Blaðsíða 2
SIGRÍÐUR THORLACIUS SITUR FYRIR SVÖRUM Hvað finnst þér um sigurlagið í Eurovision? Er það ekki bara ljómandi fínt? Ég verð að viðurkenna að ég fylgdist ekki grannt með keppninni – en þeir verða okkur til sóma. Þeir eru sætir, hressir og skemmtilegir. Þeir munu gera þetta skemmtilegt og gleðilegt. Til þess er leikurinn gerður ekki satt? Er eitthvað sem fólk veit ekki um þig? Ég er með þrálátan fasteigna-áhuga. Ég skoða fasteignavefi í hverri viku – þetta geri ég jafnvel til að slaka á. Ég verð undarlega æst yfir því þegar einhver mér kunnugur er að leita sér að fasteign, þá fer ég af stað og byrja að skipta mér af. Þetta er mjög undarlegt áhugamál í ljósi þess að ég bý í 35 fermetra íbúð og ekkert á leiðinni þaðan. Hvaða rútínu hefurðu áður en þú stígur á svið? Ég reyni að koma mér ekki upp of heilagri rútínu – það er að segja ekki rútínu sem ég verð háð. Svona til að búa mér ekki til einhverja þráhyggjuhegðun. Ég gæti alveg átt það til að bíta í mig að hlutirnir þurfi að vera ALLTAF svona og hinsegin án nokkurrar ástæðu. Ég hins vegar vil alltaf eiga nokkrar mín- útur alveg alein, bara til að tæma hugann og fara yfir hlutina mína í einrúmi. Þá reyni ég að sjá fyrir mér hvað það er sem ég er að fara að gera og hvernig ég ætla að gera það. Hvert yrði síðasta lagið sem þú myndir hlusta á ef þau yrðu ekki fleiri og af hverju? Það fer svolítið eftir stað og stund og ástæðu þess að lögin yrðu ekki fleiri. Ég mundi þó gjarnan vilja heyra einhverja stórkostlega söngkonu syngja fyrir mig aríuna Casta Diva úr Normu eftir Bellini – mætti gjarnan vera Cecilia Bartoli. Þegar ég heyri þessa aríu þá man ég af hverju mig langaði að verða óperusöngkona á sínum tíma – og fæ að sjálf- sögðu nokkur tár í augun mín. Hvað er á döfinni? Lífið er á döfinni eins og venjulega. Tveggja vikna Evrópuferð með hljómsveit- inni Hjaltalín nú í lok febrúar og inn í miðjan mars – byrjar í Osló hvar norrænu tónlistarverðlaunin verða afhent. Það verður örugglega gott og fallegt. Svo kemur vor og svo sumar og svo haust og aftur vetur. Þessu fylgja hin og þessi verkefni. Ekkert stress. Langaði að verða óperu- söngkona M orgunblaðið/Á rni Sæ berg Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2014 SVAR Á konudaginn var ég á sjó á en Lions- klúbburinn heima á Reyðarfirði kom alltaf með túlípana heim til allra sjómannskvenn- anna. Þetta var mikil tilhlökkun og spenna. Sigmar Ólafsson, 86 ára. SVAR Já, ég kaupi blóm handa móður minni. Guðni Helgason, 39 ára. SVAR Nei, en ég kaupi stundum blóm eða eitthvert fallegt smotterí fyrir mömmu. Bjarmi Fannar, 27 ára. SVAR Nei. Engin hefð, einu skiptin sem ég fékk frí frá heimilisverkunum var á jólunum. Anna Lára Guðjónsdóttir, 40 ára. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. SPURNING VIKUNNAR HEFUR ÞÚ EINHVERJA HEFÐ Á KONUDEGINUM? BLAÐIÐ 76% FÓLKS Í SAMBÖNDUM Í BANDARÍKJUNUM LEYNA ÚTGJÖLDUM FYRIR MAKA SÍNUM. Heimild: National Endowment for Financial Education. Forsíðumyndina tók Jasin Boland Óperan sterkasta listformið Þóra Einarsdóttir var upp með sér eftir að vera beðin um að syngja titilhlutverkið í óp- erunni Ragnheiði sem fer fram í Hörpu 54 Smart í baðherbergið Það gerir mikið fyrir bað- herbergið að hafa það notalegt og til þess þarf fallega muni 26 Hollir og góðir safar Ragnheiður Bogadóttir gefur uppskrift að dýr- indis góðum drykkjum, tilvaldir í morgunmat eða milli mála 30 Myndaþáttur frá Malí Glæsilegar en jafnframt átakanlegar myndir eft- ir Pál Stefánsson ljósmyndara en hann hlaut verðlaun fyrir ljósmynd ársins á dögunum 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.