Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Blaðsíða 41
AFP
K
onur sem eru komnar yfir fimmtugsaldur eiga
það til að finna fyrir því að húðin þorni
meira en hún gerði. Öldrun er óumflýjanleg
og húðin í andliti er einkar viðkvæm, enda
verður hún daglega fyrir misjöfnum áhrifum. Sólar-
ljós, frost og ýmislegt annað hefur áhrif á hvernig
húðin eldist og hversu hratt það gerist en að sjálf-
sögðu á DNA stóran þátt í húðgerð og hraða öldr-
unar. Með réttri meðhöndlun er hægt að endur-
heimta ljóma, þéttleika og raka, enda eru margra ára
rannsóknir á bakvið flestar húðvörur sem varna eiga
öldrun húðarinnar.
Elizabeth Arden 13.279 kr.
Ceramide kremið lyftir sýnilegum
hrukkum. Kremið dregur úr dökkum
blettum, bólgum og slappleika í húð
og gefur bjartari húðlit. Kremið inni-
heldur einnig SPF 30 sólarvörn.
Chanel 19.990 kr.
Le Lift er nýjasta kremið frá Chanel í
þremur útgáfum. Einstaklingsmiðað
snjallkrem sem er sniðið að þörfum
hvers og eins. Kremið er ætlað
kvölds og morgna en það sameinar
Line repair og lift, byltingarkenndu
línur Chanel.
Helena Rubinstein 18.799 kr.
Collagenist Re-plump eykur þétt-
leika og minnkar hrukkur. Húðin
verður samstundis mýkri, teyj-
anlegri og endurheimtir ljómann.
Kremið vinnur í að örva fram-
leiðslu á „mótunarminni“ kolla-
gens húðarinnar.
Elizabeth Arden 15.769 kr.
Ceramide Capsules inniheldur hylki
og hvert þeirra hentar andliti og
hálsi. Inni í hylkinu er krem sem
styrkir rakafilmu húðarinnar. Húðin
verður þéttari og mýkri. Kremið er
án rotvarnarefna og ilmefna og er
hver skammtur fyrirfram ákveðinn.
DEKRAÐU VIÐ HÚÐINA
Heilbrigð húð á
öllum aldri
HEILBRIGÐRI HÚÐ ER HÆGT AÐ VIÐHALDA MEÐ GÓÐRI
UMHIRÐU. MEÐ ALDRINUM FER HÚÐIN AÐ ÞYNNAST OG
ÞVÍ GETUR VERIÐ GOTT AÐ NOTA KREM
SEM AUKA RAKA OG FYLLINGU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hin stórglæsilega
Meryl Streep er
64 ára gömul.
Lancome 16.979 kr.
Visionnaire serum lagfærir húðina og endurnýjar. Sjáan-
legur munur er gríðarlegur en serumið lagfærir meðal
annars ójafna áferð, hrukkur og ójafnan húðlit.
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Er ferming framundan?
Láttu okkur sjá um veisluna
Gómsætir réttir við allra hæfi
Allar nánari upplýsingar í
síma 533 3000