Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2014
Matur og drykkir
V
ið hittumst hópur góðra vina minna en við þekkjumst allir vel
innbyrðis. Ég kynntist þeim öllum núna á síðari árum en síðustu
tvö ár hafa samskiptin á milli okkar aukist mikið
og vinskapurinn styrkst,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sölvi
Tryggvason en þeir félagar hafa brallað ýmislegt saman síðustu mánuði
og meðal annars farið í ísklifur.
Sölvi segir að það sem muni mestu fyrir hann þegar hann heldur mat-
arboð sé að vera búinn að kaupa
sem mest inn daginn áður en boðið
er haldið. „Það er svo miklu
skemmtilegra að elda ef maður get-
ur gert það laus við stress og tíma-
hrak þótt ég hafi reyndar fallið
sjálfur á þeirri reglu í þetta skiptið,
en það kom held ég ekki að sök.
Sjálfur reyni ég að nota ferskt og
gott hráefni og ég er alæta á mat
svo að ef það er fyrir hendi er ég
yfirleitt ánægður með það sem er á
boðstólum.“
Sölvi segir að þrátt fyrir að góður
matur sé ein sína af hans helstu
nautnum í lífinu og maturinn skipti
því að sjálfsögðu öllu máli til að boð-
ið heppnist vel sé samvist með góð-
um vinum þó efst á listanum í matarboðum. „En þegar fólk er vel satt af
góðum mat reynast samræður þó gjarnan skemmtilegri.“
Sölvi bauð upp á silungsrétt sem sló í gegn en hann segir fyrirmyndina
vera rétt sem hann kaupir stundum hjá Fylgifiskum og sé í miklu eftir-
læti hjá honum. Þá mælir hann sérstaklega með kjúklingabaunakarríinu
sem góðum millirétt og meðlæti. „Ég er kannski ekki duglegur í eldhús-
inu en vil trúa því að ég eigi þar mína spretti.“
SÖLVI TRYGGVASON BÝÐUR HEIM
Afslöppuð
matarboð best
Kjúklingabaunakarríið sló í gegn og gaf matnum aukið bragð en réttinn tekur ekki nema um fimm mínútur að útbúa.
Hópurinn bregður á leik og fer með
borðbæn. Frá vinstri: Sölvi Tryggvason,
Helgi Þór Gunnarsson, forstöðumaður
búsetuþjónustu fyrir geðfatlaða, Krist-
inn Jón Ólafsson, nýsköpunar- og frum-
kvöðlafræðingur, og Kristján Bergmann,
markaðsstjóri Hertz.
SÖLVI TRYGGVASON BAUÐ NOKKRUM FÉLÖGUM SÍNUM
HEIM Í LÉTTAN KVÖLDVERÐ Í VIKUNNI Á HEIMILI SITT Í
HLÍÐUNUM. SÖLVI SEGIST EIGA SÍNA SPRETTI Í ELDHÚSINU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Sölvi lýsir matnum og á von á því að gríska jógúrtið verði stjarna kvöldins.
1 lambalærissneið á hvern gest
lófafylli smátt skorin fersk basilíka
lófafylli smátt skorið ferskt oreganó eða 1½
msk. þurrkað
½ krukka sólþurrkaðir tómatar
1 dl hvítlauksolía
2-3 hvítlauksrif, kramin
Blandið öllu hráefninu saman í skál nema kjötinu.
Veltið lærissneiðunum upp úr maríneringunni,
einnig má láta þær liggja í skálinni í um klst. Steikið
kjötið á pönnu við háan hita svo það lokist vel. Setj-
ið það svo nokkrar mínútur í 120°C heitan ofn.
Með þessu er gott að hafa bakaðar sætar kartöflur,
kryddaðar með sjávarsalti og svörtum pipar. Gott
salat og léttsteikta sveppi og hvítlauk. Lífrænt pestó
og fetaostur saman í skál er líka afar gott meðlæti.
EINFALDASTA PIPARSÓSA Í HEIMI
1 piparostur
5 dl matreiðslurjómi
Hitið varlega saman í potti við vægan hita, bæta
má ferskum kryddjurtum út í ef vill.
Ítalskt maríneraðar lambalærissneiðar