Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Blaðsíða 17
Karen Kjartansdóttir, upplýsingafulltrúi Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna, segir margt geta sam-
einað stóra sem smáa í fjölskyldunni en hún og eig-
inmaður hennar, Hannes Ingi Geirsson íþróttafræð-
ingur, eiga þrjú börn, Ask Hrafn tíu ára, Unu Krist-
jönu fjögurra ára og Kjartan Geir tveggja ára.
Sjónvarpsþátturinn sem allir geta horft á? „Nátt-
úrulífs- og fræðsluþættir frá BBC laða alla fjöl-
skylduna að skjánum. Elsta barnið í fjöl-
skyldunni hefur alltaf verið með puttann á
púlsinum og minnir alla á góða
þætti. Á sunnudagskvöldum
hlustum við svo á Kapp-
hlaupið til tunglsins á Rás 1.“
Maturinn sem er í uppá-
haldi hjá öllum? „Salt-
fiskur. Ég set hann yfirleitt í
suðrænan búning en börnin vilja
hann helst bara eins og mamma mín gerði hann;
soðinn.“
Skemmtilegast að gera saman? „Einfaldir
hlutir eins og að vakna saman án nokkurs asa
geta verið svo dásamlegir. Það er yndislegt að
bjóða góðan daginn með faðmlagi, útbúa morg-
unverð og laga kaffi með hægð og hlusta á notalegan útvarpsþátt í leiðinni.“
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? „Við hlustum mik-
ið á hljóðbækur og lesum saman. Börnin þrjú virðast öll ætla að læra bókina
Engilinn í Vesturbænum utanbókar fyrir sex ára aldur. Á sumrin leikum við
úti í garði, sem bæði er stór og gróinn.“
Eigið þið eftirlætisstað sem þið skreppið á um helgar? „Aðalbókasafn
Reykjavíkur, þangað er sko ánægjulegt fyrir börn og fullorðna að koma um
helgar. Mamman getur lagst fyrir í barnahorninu með eftirlætisbækur æsku
sinnar, börnin kynnst sínu eigin eftirlæti eða leikið sér í barnahorninu. Á eftir
er gaman að skjótast í Kolaportið til að kaupa eitthvað skrítið; flatkökur,
nammi og hákarl fyrir mömmu. Svo er Gálgahraunið í næsta nágrenni við okk-
ur í Garðabænum einn fallegasti staður sem ég veit. Leiðinlegt að bæjaryf-
irvöld skuli ekki hafa metið hann jafnverðmætan.“ julia@mbl.is
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Saltfiskur og náttúrulífsþættir
B ara tveggja ára – endilega láta þaubyrja þá að hjálpa til og ganga frá íkubbakassann,“ segir Margrét Sig-
fúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans,
sem ráðleggur foreldrum að draga það ekki
of lengi að fá ungviðið á heimilinu með í
húsverkin.
„Ef krakkar eru strax látnir hjálpa til í
herberginu og raða dótinu eftir sig í kass-
ana, þá vilja þau hafa þetta svona, þau
finna að það er gaman að
opna kubbakassann, það er
allt ósorterað, alls kyns dót
í stað kubba. Þau fara að
læra að meta þetta.“
Smám saman er hægt að
þyngja húsverkin, leyfa
börnunum að skera með
óbeittum hníf grænmeti til
matargerðarinnar, fá þau
til að sópa eldhúsgólfið og einfalda hluti.
Fara svo út í að láta þau vaska upp og
skola diskana.
Um 10 ára aldur segir Margrét gott að
útdeila þeim föstum verkefnum sem þau
geti sinnt. „10-11 ára krakkar geta ryk-
moppað, ryksugað og annað slíkt. Þau læra
mikið af því að fara og þrífa ruslið fyrir ut-
an húsið, þá hætta þau að henda dóti. Það
er líka mjög mikilvægt að kalla á þau ef
þau eru að henda fötunum sínum í gólfið og
láta þau fara með þau í óhreina tauið en
ekki hirða fötin upp eftir þau. Þau læra það
þá á endanum hvar óhreina tauið á heima.“
Margrét hefur það á tilfinningunni að for-
eldrar láti börn minna taka þátt í hús-
verkum. „Það er hætt við að manni finnist
maður bara fljótari að gera þetta sjáfur. En
ef krakkar eru látnir hafa allt í röð og reglu
fara þau að kunna að meta þetta. Þau
þekkja þetta úr leikskólanum – þar á hver
hlutur sinn stað. Þau þurfa bara að yfirfæra
þetta líka á heimilið.“ julia@mbl.is
UPPELDIÐ SKILAR SÉR
Gott að láta þau
hjálpa til snemma
ÞAÐ VILL GLEYMAST AÐ
ÞJÁLFA BÖRN OG UNGLINGA Í
HÚSVERKUM. OFT KOMA ÞAU
NÆR ÓLÆRÐ Í HEIMILISVERK-
UNUM ÚT Í LÍFIÐ.
Margrét
Sigfúsdóttir
2-3 ára
Ganga frá leikföngum; kubbum í kassa
til dæmis
Þurrka af barnaherbergishillunum
með klút
Hjálpa til við að færa tau úr þvottavél
yfir í þurrkara
4-5 ára
Hjálpa til við eldhúsverkin undir
eftirliti
Skera niður grænmeti með hníf sem
er ekki beittur
Leggja á borð
Taka af borði
Para saman sokka
Vökva blóm
Sópa
Ryksuga sófa
6-9 ára
Vaska upp og setja í uppþvottavél
undir eftirliti
Fara út með ruslið
Hjálpa til við garðverk eins og að
hreinsa arfa
Tína rusl af lóðinni
Þurrka yfir baðvaskinn
9-12 ára
Útbúa einfaldar máltíðir undir eftirliti
og flóknari eftir því sem eldri eru
Hengja þvott
Ryksuga
Eldri en 13 ára
Skúra
Elda kvöldverð einu sinni í viku
Setja í þvottavél og þurrkara
BÖRN OG UNGLINGAR TAKA
ÞÁTT Í HÚSVERKUM
Húsverk fyrir
yngri kynslóðina
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Hvar? Skálatúni, Mosfellsbæ.
Hvenær? Laugardag kl. 14-17.
Nánar: Í tilefni af 60 ára afmæli Skáltúns handverksstofu
er almenningi boðið í heimsókn og að þiggja veitingar.
Handverk og með því„Ef við náum því að verða 100 ára gömul,
þá myndi ég verða 100 ára mínus einn
dag, þannig þyrfti ég ekki að lifa á þín.“
sagði Bangsímon við Grísling.
Klifurhúsinu í Skútuvogi 1g en
þar getur öll fjölskyldan átt góð-
ar stundir og klifrað saman. Klif-
urhúsið er mjög vinsælt um þess-
ar mundir og því er sérstakir
fjölskyldutímar hjá þeim. Þeir
eru á miðvikudögum milli 16-18
og svo um helgar frá 11-14. Á
þeim tímum er sérstakt fjöl-
skyldutilboð í gangi, fyrir fleiri
en tvo, og kostar 700 krónur inn
þar sem leiga á skóm er innifalið
í verði.
GAGN OG GAMAN
Morgunblaðið/Ómar
Afþreying fyrir fjölskylduna
Náttúrulífsþættir
eru í eftirlæti hjá
fjölskyldunni.
Karen Kjartansdóttir,
upplýsingafulltrúi LÍÚ.
– fyrir lifandi heimili –
OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
VERTU MEÐ OKKUR Á KOMDU Í HÖLLINA EÐA HEIMSÓTTU OKKUR Á HUSGAGNAHOLLIN.IS
RIALTO
La-Z-boy
sjónvarpssófi.
Svart leður á slitflötum.
205 x 90 H:105 cm.
359.990
Fullt VeRð: 459.990
LA-Z-BOY RIALTO – SJÓNVARPSSÓFI