Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2014 Áhrifamenn beita sér nú fyrir því að auka samstarf ESB við valdaklíku Pútíns. Jafn- aðarmaðurinn Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslari Þýskalands, er nú hálaunaður starfsmaður Gazprom sem er að meirihluta í rússneskri rík- iseigu. Varðandi Úkraínu segir hann best að gera viðtækan viðskiptasamning ESB við Rússlands, af sama toga og Pútín bannaði Úkraínu að gera. Gera mætti „samhliða“ álíka samning við Úkra- ínu. Pútín hefði þá lík- lega yfirumsjón á hendi. Einhver gæti þá sagt að búið væri að heiðra skálkinn. B lóðbaðið hryllilega í Kænugarði og orðastríð Rússa og leiðtoga Vest- urveldanna rifjaði upp minningar um kalda stríðið og uppreisnir í Tékkóslóv- akíu, Ungverjalandi og Austur- Þýskalandi í tíð kommúnista. En bakgrunnur átakanna núna er ekki hugmyndafræðilegur á sama hátt og í kalda stríðinu þótt vissulega sé Vladímír Pútín Rússlandsforseti ekki lýðræðissinni frekar en gömlu kommúnistaleiðtogarnir. Núna gætu afar mikilvæg viðskipti verið í hættu, ekki síst með orku. Almenningi í V-Evrópu og Bandaríkjunum ofbýður hrotta- skapur stuðningsmanna Rússa í Úkraínu og að sjálfsögðu taka vest- rænir valdamenn tillit til þeirra til- finninga. Jafnframt hafa þeir ekk- ert á móti því að lækka rostann í Pútín, þeim þætti ekki verra að andstæðingar hans hefðu betur í Úkraínu. Í Kreml er reyndar full- yrt að stjórnarandstæðingar á Sjálfstæðistorginu í Kænugarði séu gerðir út af vestrænum ríkis- stjórnum sem er auðvitað firra. Fólkið, sennilega meirihluti þjóð- arinnar, vill einfaldlega fremur tengsl við nútímann en einræðis- herrana í Rússlandi. En hversu langt á að ganga? Margir eru hikandi við að bjóða Úkraínu aðild að ESB. Reynslan af því að fá inn Rúmeníu og Búlgaríu, tvö önnur bláfátæk, fyrrverandi kommúnistaríki, löðrandi í spill- ingu, er slæm. Rússar sjá nú möguleika á að gera Úkraínu aftur að tryggu áhrifasvæði sínu, jafnvel innlima landið. Vígstaða Vesturveldanna í slagnum um áhrif í Úkraínu er mun veikari en Rússa, lítill áhugi er hjá þorra kjósenda í vestri á að fara í hart, egna rússneska björn- inn. Og þótt bandarískir kjósendur hafi samúð með Úkraínumönnum hafa þeir fengið nóg af deilum og átökum í öðrum heimsálfum. Mikil viðskipti ESB og Rússlands Verði beitt harkalegum viðskipta- refsingum gegn Pútín gæti hann svarað með enn meiri hörku, reikn- að dæmið þannig að hann hafi betri spil á hendi. En Evrópusam- bandið er nú stærsti viðskiptaaðili Rússa. Liðlega þriðj- ungur af öllu gasi sem ESB flytur inn kemur frá Rússlandi og 27% ol- íunnar, Rússar selja einn- ig sam- bandinu meira af kolum og úrani en nokkur önnur þjóð og þriðj- ungur af öllu rafmagni sem ESB kaupir að utan kemur þaðan. Hags- munir Rússa eru geysimiklir: 88% af olíusölu þeirra til útlanda er til ESB, 70% af gasinu og 50% af kol- unum. Allar spár sérfræðinga ganga nú út á að ESB verði á næstu áratug- um enn frekar háð gasinu frá Rúss- landi. Bandaríkjamenn nýta nú af ákafa olíu og gas sem unnið er með bergbroti, eru þegar orðnir sjálfum sér nægir varðandi gas. En í Evr- ópu er víða mikil vantrú á þessum aðferðum. Stjórn Angelu Merkel Þýskalandskanslara hyggst leggja niður öll kjarnorkuver landsins en ljóst er að orkuvinnsla með vindi og sól verður mun dýrari en hefð- bundin orkuvinnsla. Metnaðarfull áform ESB um að draga stórlega úr losun koldíoxíðs geta því aðeins orðið að veruleika ef notað er meira af gasi sem mengar mun minna en orkugjafar eins og kol og olía. Reynt er nú að koma á auknu frelsi með orkusölu í ESB til að draga úr afskiptum ríkisstjórna af eigin orkumarkaði. Rússar hafa verið ósáttir við tillögur sem gera m.a. gasfyrirtæki þeirra, Gazprom, skylt að leyfa keppinautum að nota líka gasleiðslurnar. Þótt Rússar hafi í deilum við ESB-ríkin um við- skipti með olíu og gas oft hótað að beina fremur sjónum til Kína hefur lítið orðið úr þeim, ekki náðst samningar um verð. Og vegna fjar- lægðarinnar er mun ábatasamara fyrir Rússa að selja gasið til Evr- ópu. Er heppilegt fyrir ESB að vera svo háð Rússlandi sem reyndin er að verða? Hvað sem hagkvæmni líður óar mörgum við að hugsa til þess hvernig Pútín beitti gassöl- unni til að þvinga Úkraínumenn til hlýðni bæði 2005 og aftur 2009. Viðskiptin gætu orðið eins og hlekkir á utanríkisstefnu ESB. Peð í skák um mikla hagsmuni ÚKRAÍNUMENN HAFA Á SÍÐARI ÖLDUM NÆR ALLTAF LOT- IÐ STJÓRN RÚSSA. ÓVÍST ER HVORT FRELSI OG MANN- RÉTTINDI ÚKRAÍNUMANNA VERÐI NÚ AÐ OFAN Á ÞEGAR TEFLT ER UM VIÐSKIPTAHAGSMUNI STÓRVELDANNA. PÚTÍN FAÐMAÐUR? PútínSchröder Sjálfstæðistorgið í Kænugarði er eins og vígvöllur eftir mannskæð átök síðustu daga. Til hægri er fáni Evrópusambands- ins en margir Úkraínumenn hafa bundið vonir við að sambandið muni verða þeim skjól í slagnum við Rússa. AFP * Við munum halda áfram að vera háð samvinnuvið Rússland.Frank-Walter Steinmeyer, utanríkisráðherra Þýskalands.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN ÝRL NEWYOR a, Sameinuðu þjóðannstofnun oðar Palestínumönnum,til aðst mdi á miðvikudagfordæ gjuárásspren sem gerð var á fyrir flóttamenn í Sýrlandi.skóla llu, þ. á m. fimm bör18 fé DBRETLAN LONDON stök teymiSér einbelandamæravarða, um flsér gegn ólögleg með fólk, munu f verða á flugvöllu Er markmiðið ein berjas VENES CARACA Forseti Venesúela, Nicolas Maduro, hótaði í vi unni að re a fréttamenn CNN-sjó úr landi. Sakaði hann gegn sér í fréttum af stjórnvöldum. A KA rírÞ talíbana n félluAfganista ásvik nni í á em þeir ger 0 kmaldá skrifstofu stjó ta-austan við höfu nikosningar verð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.