Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Qupperneq 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Qupperneq 9
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 S aga Jónsdóttir, sem var í fyrsta leikarahópnum þegar Leikfélag Akur- eyrar varð atvinnu- mannafélag fyrir fjöru- tíu árum, stígur nú í fyrsta skipti í níu ár á svið. Sunna Borg lék í einni sýningu 2011 og annarri 2012 en hafði þar áður leikið í nærri ára- tug. Þeim líður vel í Rýminu þar sem Lísa og Lísa er sett upp; í „svörtum kassa“ umkringdar áhorf- endum sem horfa niður í stofuna á heimili þeirra. „Þetta er mjög mannlegt verk og fallegt. Það er spilað á ýmsar til- finningar og bæði hlegið og grátið,“ Saga. Lísa og Lísa segja frá því í verk- inu hvernig þær upp- götvuðu eigin samkyn- hneigð. Þær óttuðust að missa vinnuna ef sam- bandið yrði gert op- inbert og fóru því leynt með það í 28 ár þótt þær byggju saman. Verkið er írskt, eftir Amy Conroy sem leikur í því sjálf og hefur sýnt víða um heim, m.a. á Lókalhátíðinni í Reykjavík í fyrra. Aðrir hafa hins vegar ekki sett verkið upp fyrir en LA nú. Karl Ágúst Úlfsson þýddi það og stað- færði; Lísa og Lísa búa að þessu sinni á Akureyri. „Áhorfendur virðast mjög ánægðir, nógu mikið er að minnsta kosti hlegið,“ segir Sunna. „Og það hefur komið mér svolítið á óvart að karlar hafa ekki síður gaman af sýningunni en konur.“ Saga tekur undir það og bætir við: „Í gegnum tíðina hefur maður orðið dálítið var við að þegar tvær konur leika halda karlar stundum að það sé ekki spennandi sýning; einhvers konar kerlingakjaftæði!“ Raunin sé önnur nú. „Karlarnir hafa á orði að þetta sé bara alveg eins og hjá þeim og konunni; þær rífist eins og þau og margt annað sé sameiginlegt. Það virðist koma þeim á óvart.“ Þær samsinna því að verkið geti að þessu leyti verið mjög fróðlegt og upplýsandi, auk þess að draga úr fordómum. „Fólk sem hafði dá- litla fordóma gagnvart samkyn- hneigð en kom bara á sýninguna fyrir mig sagðist hafa séð hlutina í allt öðru ljósi en áður og hreinlega verða að éta allt ofan í sig sem það hefði haldið fram.“ „Við vorum svo heppnar að á æf- ingaferlinu komu til okkar samkyn- hneigðar konur og sátu fyrir svör- um; við þekkjum samfélag þeirra ekki nógu vel,“ segir Saga. Fordómar voru lengi miklir og eru enn fyrir hendi að því er virðist, en Saga segist telja að það hafi hjálpað til við að slá á fordóma hve margt þjóðþekkt fólk í samfélaginu sé samkyn- hneigt; „Hörður Torfa- son, Páll Óskar, Jó- hanna Sigurðardóttir og Jónína Leósdóttir, svo dæmi séu tekin. Ég held að það, hvernig þetta fólk kemur fram og tjáir sig, hafi hjálpað mörgum sem koma út úr skápnum.“ Þær segja alls ekki erfiðara fyrir leikara að setja sig í spor samkyn- hneigðra en annarra, eftir að hafa kynnt sér málin. „Ég verð að við- urkenna að það vafðist frekar fyrir mér að konurnar í verkinu eiga ekki að vera leikkonur; eru al- gjörlega óvanar því að vera á sviði og segja frá; það var erfiðara að koma því til skila og eins því að stokkið er fram og til baka í tíma. En að kyssa Sögu var allt í fína lagi. Ég hef aldrei kysst konu áður á ævinni en það var ekki eins ógn- vænlegt og ég hélt …“ segir Sunna og hlær. LÍSA OG LÍSA Ekkert mál að kyssa Sögu! LEIKKONURNAR SAGA JÓNSDÓTTIR OG SUNNA BORG LEIKA LÍSU OG LÍSU Í SAMNEFNDU VERKI HJÁ LEIKFÉLAGI AKUREYRAR; KONUR SEM KOMU ÚT ÚR SKÁPNUM Á FULL- ORÐINSALDRI EFTIR AÐ HAFA BÚIÐ SAMAN Í ÁRATUGI. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Saga Geirdal Jónsdóttir (t.v.) og Sunna Borg far með hlutverk Lísu og Lísu hjá Leikfélagi Akureyrar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson * Karlarhafaekki síður gaman af sýningunni en konur Konudagur, fyrsti dagur góu, er um helgina og á sunnudaginn skal fagna konunum í sínu lífi. Gjafir til kvenna, góður matur, blóm og morgunmatur í rúmið eru gjafir sem flestir þekkja á þessum degi. Í kringum 1950 var skrifað í blöðum að á þessum degi mætti ekki neita konum um neitt, allra síst lít- ilræði. Í Degi árið 1945 er því haldið til haga að húsfreyjur ættu að fagna góu með því að hoppa fáklæddar þrisvar kringum húsið og heilsa mánuðinum með því að fara með stöku um hann. Á árum áður var afar mikilvægt að eig- inmenn gleymdu ekki að kaupa blómin á laugardegi því í kringum til dæmis miðja síðustu öld voru blómabúðir ekki opnar á sunnudögum. Á sama tíma þótti ekki síður við hæfi að kaupa handa þeim svið og hangikjöt. Í dag þykir mörgum konudag- urinn tímaskekkja þar sem konan á jú ekki að vera sú eina sem stritar á heimilinu og eiga þennan eina frídag. En það má samt margt gera til að gleðja til yndisauka í hversdagsleikanum. Hér eru nokkrar ein- faldar hugmyndir:  Skoðaðu hvort það sé sniðugra að kaupa pottaplöntu í stað afskorinna blóma. Pot- taplantan lifir lengur, er eign til framtíðar og þær eru í tísku; sérstaklega gúmmí- plöntur og burknar. Frúarlauf er einkar fal- leg planta.  Lærðu að gera eitthvað sem þú hefur ekki kunnað áður. Ef þú hefur aldrei bakað brauð skaltu leggja á þig að finna góða upp- skrift og leggja eitthvað nýtt af mörkum á heimilinu. Til dæmis grófar morgunbollur með osti og marmelaði.  Hvað finnst konunni í alvörunni skemmtilegast að gera? Er það að fá blóm eða kannski frekar hasarmynd og popp eða útihlaup. Ekki kaupa blóm bara af því að það á að kaupa blóm, finndu út hvað myndi pottþétt falla í kramið.  Þrif eru vanmetin sem gleðigjafi. Þrífðu allt hátt og lágt, í skjóli nætur ef þarf, og kveiktu á ilmkerti í morgunsárið. Þetta er ódýrt og gott ráð fyrir þá sem þurfa að horfa í aurinn. KONUDAGURINN Dekur á degi kvenna Blóm eru klassísk gjöf en það eru til frumlegri gjaf- ir, svo sem þrif og bíóferð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.