Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Qupperneq 13
Refir í friðlandi Hornstranda vekja
sífellt meiri áhuga ferðafólks.
Nokkrir tugir koma á svæðið árlega,
mest útlendingar, og freista þess að
berja augum þetta eina, uppruna-
lega íslenska landspendýr, í villtu
umhverfi. Nokkrir hafa komið gagn-
gert til landsins í þeim tilgangi að
sjá ref, að sögn Esterar Rutar Unn-
steinsdóttur, forstöðukonu Mel-
rakkaseturs Íslands í Súðavík.
Í sumar hefur boðað komu sína
leiðangur frá breska ríkissjónvarp-
inu, BBC, sem vinnur að gerð nátt-
úrulífsmyndar, von er á tveimur öðr-
um kvikmyndaleiðöngrum og fjórir
þekktir, erlendir náttúrulífs-
ljósmyndarar hafa boðað komu sína í
sumar. Talið er að í Hornvík sé þétt-
asta refabyggð í Evrópu.
Ester Rut og samstarfsmenn
hennar hafa síðustu ár unnið að ým-
iskonar rannsóknum. Þær hafa leitt í
ljós að einkvæni er algengast; að
dýrin pari sig fyrir lífstíð en þó eru
dæmi um „framhjáhald“; að feður
séu fleiri en einn í sama goti.
HORNSTRANDIR
Melrakkinn
laðar að
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Hverju nýfæddu barni íGrundarfirði er fagnaðmeð lófataki við upphaf
næsta bæjarstjórnarfundar. Sig-
urborg Kr. Hannesdóttir, sem sett-
ist í bæjarstjórn eftir kosningarnar
2010 sem oddviti L-listans, og varð
forseti bæjarstjórnar, lagði þetta
til og það hefur mælst vel fyrir að
hennar sögn. Á fundum bæjar-
stjórnar er lát-
inna bæjarbúa
líka minnst.
„Eitt af því
sem togaði mig
inn í sveitar-
stjórnarmálin
var vitund mín
um þau verð-
mæti sem felast í
góðu samfélagi.
Þau birtast helst þegar fólk stend-
ur saman á miklum gleði- og sorg-
arstundum, en ég held við getum
almennt gert betur við að rækta
með okkur þá hugsun að þegar
hópur býr á sama stað eru örlög
allra að vissu leyti samofin. Þó að
við séum ólík, höfum misjafnar
skoðanir og eigum ekki endilega
samleið í öllum málum tengjumst
við og mér finnst að við mættum
almennt vera meðvitaðri um að
rækta þann þátt samfélagsins
meira en verið hefur,“ segir Sig-
urborg í samtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
Hugmyndina fékk Sigurborg
skömmu fyrir fyrsta fund bæj-
arstjórnar eftir kosningarnar 2010
og siðurinn var tekinn upp strax.
„Við fögnum nýjum Grundfirð-
ingum en minnumst líka genginna.
Hugsunin er sú að hver einstakl-
ingur er mikilvægur í samfélaginu
og þetta eykur vitund okkar um
hringrásina; líf slokknar og líf
kviknar. Ég var svolítið feimin við
þetta fyrst; smeyk um að fólki
þætti það skrýtið og kannski þykir
einhverjum það enn, en mér finnst
fólk almennt kunna að meta þetta.“
Áður en gengið er til dagskrár á
fundum rísa bæjarfulltrúar úr sæt-
um þegar genginna er minnst.
„Maður finnur samkennd, ekki síst
þegar ungir kveðja eða andlát er
sviplegt; mér finnst mikilvægt að
við sem forystumenn bæjarfélags-
ins gerum þetta því öll málefni
samfélagsins eru meira og minna
inni á okkar borði. Svo fögnum við
með lófataki þegar nýr Grundfirð-
ingur kemur í heiminn. Eftir að við
tókum upp þennan sið gerði ég
mér betur grein fyrir því hve íbúar
af erlendu bergi brotnir eru dug-
legir að fjölga Grundfirðingum.
Það hefur oft verið nokkuð skondið
þegar ég reyni að lesa upp nöfnin!“
Forseti tilkynnir að drengur eða
stúlka hafi fæðst og segir frá því
hverjir eru foreldrarnir. „Mér
finnst þetta mjög skemmtileg
venja. Þetta er einn af þessum litlu
hlutum sem láta kannski ekki mik-
ið yfir sér, en eru dýrmætir.“
GRUNDARFJÖRÐUR
Hverju nýfæddu barni fagnað
með lófataki í bæjarstjórn
SIGURBORG KR. HANN-
ESDÓTTIR, FORSETI
BÆJARSTJÓRNAR, KOM Á
SKEMMTILEGRI VENJU
Nokkrir Grundfirðingar fæddir í fyrra, frá vinstri og réttsælis: Ellen Alexandra Tómasdóttir, Jódís Kristín Jónsdóttir,
Harpa Emilía Shelagh Björnsdóttir, Benedikt Æsir Markússon, Hersir Steini Fannarsson og Thelma Dís Ásgeirsdóttir.
Ljósmynd/Tómas Freyr Kristjánsson
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir
Sigurður Bjarklind og Einar Hall-
dórsson eru miklir útivistarmenn,
hlaupa um og ganga á fjöll og hafa
t.d. farið 240 sinnum upp á Ystuvík-
urfjall í Eyjafirði, síðast á dögunum.
„Við fórum fyrst á fjallið 2002 og
ákváðum að fara a.m.k. einu sinni í
mánuði en gerðum gott betur og eitt
árið fórum við 32 ferðir,“ segir Sig-
urður við Sunnudagsblaðið.
„Margir eru hissa á því að við för-
um svona oft á sama stað, en ástæð-
ur eru fyrir því; þangað er stutt að
fara, túrinn tekur um tvo tíma og við
lítum á þetta sem góða æfingu. Við
hlupum mikið á malbiki á árum áður
en reynum nú að fara ótroðnar slóðir
því það fer miklu betur með okkur.
Svo er fjölbreytileikinn í fjallinu
óendanlegur og lífríkið ótrúlegt;
þarna er birkikjarr, fjalldrapi, einir
og berjalyng, klettar og klappir,
fjöldi mófugla, þrestir, auðnutitt-
lingur, rjúpa, fálki og fýll.“
Þeir fara á Ystuvíkurfjall allan
ársins hring, stundum er þar snjór
eða klaki, jafnvel nánast ófært en að
sumri eru stuttbuxur og bolur oft
nægur fatnaður. Þeir þræða kinda-
götur upp að sunnanverðu og fara
niður að norðan. „Útsýnið er dásam-
legt; við sjáum fram allan Eyjafjörð
og út Hvanndalabjörg.“ Þau eru
norðan við Ólafsfjörð.
EYJAFJÖRÐUR
Sigurður Bjarklind við vörðuna efst á Ystuvíkurfjalli í síðustu ferð.
240 ferðir á Ystuvíkurfjall
Allir starfsmenn í stjórnsýslu Garðabæjar munu á
árinu starfa um stund í þjónustuveri bæjarins; svara í
síma og aðstoða fólk sem þangað kemur. Gunnar
Einarsson bæjarstjóri reið á vaðið dag einn í vikunni.
Garðabær, góðan dag
Nýtt menningarhús í Vestmannaeyjum (í gamla Féló) verð-
ur kallað Kvika og er þar m.a. vísað í uppsprettulind, brim,
öldurót og bráðið berg. Eyjamenn lifa á hafinu, gosið 1973
er öllum í fersku minni og menningarlífið ætíð afar líflegt.
Kvika í Eyjum
Since 1921
Ég elska Weleda
andlitsvörurnar
Weleda vörurnar stuðla að heilbrigði húðarinnar.
Hver einasta vörulína inniheldur eina lækningajurt sem er kjarni viðkomandi línu
og er valin með tilliti til áhrifa hennar á húðina. Í samhljómi við mann og náttúru,
lesið meira um vörurnar á www.weleda.is
-Útsölustaðir Weleda eru heilsuverslanir og apótek.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland