Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Síða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Síða 36
MARY KIES VAR FYRSTA KONAN TIL AÐ FÁ EINKALEYFI FYRIR UPPFINNINGU 1809. SÍÐ- AN ERU LIÐIN MÖRG ÁR OG UPPFINN- INGAKONUR HAFA BÆTT HEIMINN MEÐ HUGMYNDUM SÍNUM OG GERT HANN ÖRUGGARI. NÚTÍMAUPP- FINNINGAMAÐUR FINNUR UPP ÖPP EÐA VEFSÍÐUR EN Í ÁRDAGA VORU FUNDNIR UPP HLUTIR SEM VIÐ GÆTUM VARLA VERIÐ ÁN. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is UPPFINNINGAR SEM BREYTTU HEIMINUM Fundið upp af konum Mynd J. Howard Miller af Geraldine Hoff Doyle hefur veitt konum inn- blástur í fjölda mörg ár. Helen Greiner er nútíma- uppfinningamaður en hún er ein af helstu hetjum Irobot- ryksugunnar sem fjölmörg heimili um allan heim nota. Greiner hefur einnig fundið upp sprengjuvélmenni sem lögregla og her notar til að aftengja sprengjur. Greiner útskrifaðist frá MIT-skólanum og stofnaði fyr- irtæki sem síðar gaf út hina heims- þekktu Roomba, Scooba og Verro sem er vélmenni sem þrífur sundlaugar. Stephanie Kwolek fann upp Kevlar-efnið sem meðal annars er notað í skotheld vesti og fékk einkaleyfi fyrir efninu 1966. Hún er ein allra mesta uppfinningakona samtímans og var tekin í frægð- arhöll uppfinningamanna eftir 40 ára starf, varð fjórða konan til að verða tekin þar inn. Kwolek varð níræð fyrir skemmstu en enn má sjá hana á göngum DuPont-stofnunnarinnar þar sem hún vann og fann upp hið ótrúlega Kevlar-efni. Kevlar-efnið Græjur og tækni AFP Snjalltannbursti á markað Franska fyrirtækið Kolibree hefur sett á markað snjall- tannbursta þar sem notendur fá greiningu á hverri tann- burstun, beint í snjallsímann. Séu notendur burstans ekki nógu góðir að bursta tennurnar kemur forritið með tillögur að úrbótum – hvernig sé betra að ná bæði Karíusi og Baktusi. Fyr- irtækið kynnti snjalltannburstann á stærstu raftækjasýningu heims og fékk góðar undirtektir. Svona stigar eru kannski ekki þekktir hér á landi en í Bandaríkjunum eru þeir alls staðar og oftar en ekki leika þeir mikilvægt hlutverk í spennu- myndum. Það var Anna Connelly sem fékk einkaleyfið 1897 fyrir þessu öryggistæki og var það sett í öryggiskröfur bygginga fljótlega á eftir og er þar enn. Brunastiginn Í upphafi síðustu aldar fór Mary And- erson, þá 37 ára, til New York í fyrsta sinn en hún fæddist og ólst upp í Alabama. Þar sá hún að bílar fyrirmenna þurftu að stoppa í hvert sinn sem rigndi eða snjóaði. Hún horfði og velti fyrir sér hvort það væri ekki til einfaldari leið en að stíga út úr bílnum með tusku og þrífa gluggann. Hún fór heim til Alabama með hugmynd í kollinum og lét smíða fyrstu rúðuþurrkuna. Fékk hún einkaleyfi fyrir hug- viti sínu 1903 til 17 ára en eftir að það rann út var bíla- markaðurinn orðinn svo stór að rúðuþurrkan var orðinn staðalbúnaður og hefur verið síðan 1922. Rúðu- þurrkan Irobot-ryksugan

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.