Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2014, Qupperneq 59
23.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Sjón hlaut eins og kunnugt er
Íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir hina frábæru skáldsögu
sína Mánasteinn – drengurinn
sem aldrei var til. Bókin fékk
frábæra dóma og fjölmargir
lesendur hafa á henni mikið dá-
læti. Bókin er nú komin út í
kilju og er vitanlega skyldulesn-
ing fyrir bókmenntaunnendur.
Árið er 1918 og það er
Kötlugos og svo tekur spánska
veikin við. Hinn sextána ára
samkynhneigði Máni Steinn lifir
og hrærist í heimi kvik-
myndanna. Frábær myndræn
skáldsaga og afar fallega skrif-
uð. Skáldsagan hefst á djörfum
upphafskafla og höfundur lokar
sögunni svo sérlega vel í síð-
ustu setningum verksins.
Verðlaunabók
Sjóns
Þríleikur skáldkonunnar
Hanne-Vibeke Holst
um konur og völd sem oft
er kenndur við Christians-
borg hefur vakið áhuga
margra gegnum árin – ekki
síst eftir fádæma vinsældir
dönsku sjónvarps-
seríunnar Borgen. Önn-
ur bókin í seríunni, Kon-
ungsmorðið, mun koma
út í mars hjá Forlaginu og
fylgir eftir Krónprinsess-
unni sem endurútgefin
var í fyrra. Sögusviðið er
meðal annars danska þing-
ið, baktjaldamakk í ýmsum
kreðsum samfélagsins og
heimilislíf stjórnamála-
mannanna þar sem ým-
islegt kraumar undir sett-
legu yfirborðinu.
Konungsmorðið, önnur bók Hanne-Vibeke Holst í þrí-
leik er væntanleg á íslensku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
DANSKA ÞINGIÐ OG
BAKTJALDAMAKK
Það telst alltaf til tíðinda þegar Þórarinn Eldjárn sendir frá
sér bók, en nú er einmitt að fara að líða að því. Von er á nýrri
ljóðabók eftir hann nú í apríl. Þórarinn sendi síðast frá sér
ljóðabókina Vísnafýsn árið 2010. Í nýju bókinni er ljóð af
ýmsum toga; háttbundin og óbundin, prósaljóð en einnig
þýðingar Þórarins á ljóðum sem verið hafa í „umferð“ en
aldrei birst á prenti fyrr. Þórarinn á sér fjölmarga aðdáendur,
enda frumlegur og skemmtilegur höfundur og sérlega orð-
fimur. Það er því sannarlega til mikils að hlakka.
NÝ LJÓÐ FRÁ ÞÓRARNI
Ný ljóðabók eftir Þórarin Eldjárn kemur út í apríl.
Ný bók eftir danska spennu-
sagnahöfundinn Jussi Adler Ol-
sen, Marco-áhrifin, er líkleg til
vinsælda. Bókin er spennandi,
eins og bækur Adler Olsens
eru allajafna, en höfuðkostur
bókarinnar er einkar áhuga-
verð aðalpersóna, unglings-
strákurinn Marco sem er bæði
á flótta undan glæpagengi og
lögreglunni. Höfundinum þykir
greinilega afar vænt um hina
ungu söguhetju sína og sagan
er því furðu hlý á köflum.
Ung og hug-
rökk söguhetja
á flótta
Verðlaunabók
Sjóns og dönsk
spenna
NÝJAR BÆKUR
HINN DANSKI JUSSI ADLER OLSEN Á SÉR FASTAN
LESENDAHÓP SEM HLÝTUR AÐ FAGNA NÝRRI
BÓK HANS SEM ER ANSI SPENNANDI OG TÍÐ-
INDAMIKIL. HIN FRÁBÆRA VERÐLAUNABÓK
SJÓNS, MÁNASTEINN, ER SVO KOMIN Í KILJU.
YNGSTU LESENDUR FÁ BÆKUR VIÐ SITT HÆFI
OG LÍFSSTÍLSFÓLK FÆR SÍNA HEILSUBÓK.
5:2 mataræðið eftir dr. Michael
Mosley og Mimi Spencer er bók um
það hvernig er hægt að grennast og
bæta heilsuna. Mosley gerði heim-
ildarþátt um 5: 2 mataræðið fyrir
BBC og sá þáttur var sýndur hér á
landi og vakti mikla athygli. Í bókinni
eru einfaldar uppskriftir með ná-
kvæmum útreikningum á hitaein-
ingum og ýmiss konar ráð og upp-
lýsingar.
Leið til að bæta
heilsuna
Bókaútgáfan Bókabeitan hefur endur-
útgefið þrjár barnabækur eftir Björn
Daníelsson, skólastjóra á Sauðárkróki, og er
útgáfan gerð í samvinnu við fjölskyldu Björns
og vini. Björn hafði einlægan áhuga á lestrarnámi
nemenda sinna og bækurnar, sem ætlaðar eru byrj-
endum í lestri, eru Puti í kexinu, Krummahöllin og
Strandið í ánni, allar skemmtilega myndskreyttar.
Bækur fyrir
byrjendur í lestri
*Margt fólk á heiðarleika sinn að þakkaþeirri staðreynd að það er heimskt.Fjodor Dostojevskí BÓKSALA 13.-19. FEBRÚAR
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
2 Marco áhrifinJussi Adler Olsen
3 HHhHLaurent Binet
4 Veistu hvað ég elska þig mikið ?Sam McBratney
5 5:2 MataræðiðMichael Mosley / Mimi Spencer
6 Skrifað í stjörnurnarJohn Green
7 ÓskalistinnGrégoire Delancourt
8 5:2 Mataræðið með Lukku í HappUnnur Guðrún Pálsdóttir
9 MánasteinnSjón
10 Iceland small world lítilSigurgeir Sigurjónsson
Vasabrotsbækur - skáldverk
1 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
2 Marco áhrifinJussi Adler Olsen
3 HHhHLaurent Binet
4 ÓskalistinnGrégoire Delacourt
5 SandmaðurinnLars Kepler
6 LygiYrsa Sigurðardóttir
7 ÓlæsinginnJonas Jonasson
8 MánasteinnSjón
9 SkuggasundArnaldur Indriðason
10 Korku sagaVilborg Davíðsdóttir
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst.
Ýmsir hafa áhuga
á draumum og
túlkunum á þeim.
Í byrjun mars er
væntanleg hjá
bókaforlaginu
Draumsýn bókin
Táknmál
drauma. Höf-
undur hennar er
Sigrún Gunn-
arsdóttir miðill
og reikimeistari,
en hún hefur í
vinnu sinni unnið
með drauma. Í bókinni fjallar Sigrún
meðal annars um eðli drauma og
táknmál þeirra. Hún fjallar sérstaklega
um þá drauma sem hún segir vera
guðlega leiðsögn og táknmál þeirra og
hvernig nota má það til að skilja
drauma.
LEYNDARDÓMAR
DRAUMANNA
Ný bók um táknmál
drauma er væntanleg
í næsta mánuði.