Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 14
Tvívegis eftir að Ísland byggðist
á níundu öld hefur orðið eldgos í
Öræfajökli. Fyrra gosið var 1362
og hið síðara 1728.
Árið 1362 varð í Öræfajökli
eitt mesta eldgos frá upphafi Ís-
landsbyggðar. Gosið varð senni-
lega í öskju eldkeilunnar og var
mjög kröftugt, súrt sprengigos
sem þeytti upp 10 ferkílómetr-
um af gjósku. Gosinu fylgdu jök-
ulhlaup undan Falljökli, Virkis-
jökli, Kotárjökli, Rótarfjallsjökli,
Svínafellsjökli og Kvíárjökli. Ekki
er vitað hversu stór hlaupin
voru.
Þegar gosið hófst var blómleg
byggð í Litla-Héraði eins og
Öræfi hétu áður. Í gosinu eydd-
ist öll byggð og liðu fjörutíu ár
þar til fólk settist að í Öræfum.
Engum sögum fer af því hvort
allir fórust, en víst er að eitt-
hvert mannfall varð.
Aftur gos 1727
Snemma í ágúst 1727 urðu
snarpir jarðskjálftar í Öræfum
sem enduðu með gosi í Öræfa-
jökli. Sprunga opnaðist ekki í
öskjunni sjálfri heldur neðar í
fjallinu, við rætur jökulsins upp
af Sandfellsfjalli. Öskufall var
mikið fyrstu þrjá daga gossins
en gosið var mun minna en árið
1362. Gosið stóð fram í apríl eða
maí 1728. Jökulhlaup komu und-
an Falljökli, Virkisjökli og Kot-
árjökli og fram úr Sigárgljúfri.
Ummerki hlaupsins eru greinileg
enn í dag þegar ekið er um
Öræfin. Þrjár manneskjur létu
lífið í þessum hamförum.
Öll byggð í Öræfasveit eyddist
í kröftugu gosi árið 1362
GOSIÐ HEFUR TVISVAR Í ÖRÆFAJÖKLI Á SÖGULEGUM TÍMA
Morgunblaðið/Ómar
Öræfajökull Stærsta eldfjall Íslands
og næststærsta virka eldfjall Evrópu.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 31. mars, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
H
ringurJóhannesson
H
ringurJóhannesson
Á uppboðinu verður gott úrval
verka samtímalistamanna svo
og fjöldi frábærra verka gömlu
meistaranna.
Verkin verða sýnd
laugard. 11–17, sunnud. 12–17,
mánud. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Við höfum stofnað lögmannsstofu undir nafninu:
VestNord lögmenn, Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikshúsinu), 101 Reykjavík,
sími: 533 3050, fax 533 3055, vestnord@vestnord.is
www.vestnord.is · facebook.com/ Vestnord
Eyjólfur Ármannsson hdl. og LL.M.
eyjolfur@vestnord.is
Farsími: 777 1710
Gísli Tryggvason hdl. og MBA
gt@vestnord.is
Farsími: 897 3314
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Ekki er hægt að útiloka að eldgos
brjótist út í Öræfajökli og jök-
ulhlaup í kjölfarið valdi búsifjum í
byggðum í nágrenninu. Það hefur
gerst tvívegis
áður eftir að
land byggðist.
Að undanförnu
hefur verið unn-
ið að hættumati
fyrir svæðið og
hafa fyrstu drög
þess verið kynnt
íbúum í ná-
grenninu.
Öræfajökull er
virk eldstöð, raunar stærsta eld-
fjall Íslands og næststærsta virka
eldfjall í Evrópu á eftir Etnu á
Sikiley. Greiningin á hættunni sem
stafar af því að eldgos verði þar að
nýju hefur verið unnin af Veð-
urstofu Íslands í samvinnu við
Jarðvísindastofnun Háskólans og
Almannavarnadeild Ríkislög-
reglustjóra.
„Það er mikilvægt fyrir Veð-
urstofu Íslands að miðla viðvör-
unum og spám um hugsanlega
náttúruvá þannig að hún komist til
skila til hagsmunaaðila og almenn-
ings. Stofnunin vinnur nú að því að
endurskoða miðlunarferlið og nýta
þær miðlunarleiðir sem í boði eru,
en eitt meginmarkmiðið er að
þetta svari hagsmunum samfélags-
ins,“ segir Sigrún Karlsdóttir nátt-
úruvárstjóri Veðurstofu Íslands.
Eitt fjögurra verkefna
Verkefnið sem nefnt er „For-
greining á áhættu vegna flóða
samfara eldgosum“ er eitt af fjór-
um í fyrsta áfanga eldgos-
ahættumats sem leitt er af Veð-
urstofunni og unnið í samvinnu við
fleiri opinberar stofnanir. Hin þrjú
verkefnin eru „Úttekt á þekkingu
á íslenskum eldstöðvum“, „For-
greining á sprengigosum á Ís-
landi“ og „Forgreining á eldgosum
sem valdið geta miklu eignatjóni
þ.e. eldgos nálægt þéttbýli og al-
þjóðlegum flugvöllum á Íslandi.“
Að sögn Sigrúnar hefur Öræfa-
jökuls-verkefnið gengið vel. Voru
fyrstu niðurstöður kynntar á íbúa-
fundi í Öræfum í desember 2013
og nú er unnið að gerð handbókar
um efnið þar sem finna megi allar
nauðsynlegar upplýsingar um
hættuna og viðbrögð við henni.
„Niðurstöður sem þessar nýtast
skipulagsyfirvöldum og við gerð
viðbragðsáætlana en sú vinna er
unnin í samvinnu viðkomandi al-
mannayfirvalda og Almannavarna-
deildar Ríkislögreglustjóra. Nú er
unnið að því að setja saman til-
lögur um næsta áfanga í eldgos-
ahættumatinu. Veðurstofan hefur
enn fremur lagt til við umhverfis-
og auðlindaráðuneytið að hafist
verði handa við gerð hættumats
vegna vatns- og sjávarflóða, en
niðurstöður um fjárveitingu til
þess verkefnis liggja ekki fyrir á
þessari stundu,“ sagði Sigrún.
Meta hættu af gosi í jöklinum
Öræfajökull er virk eldstöð Unnið að hættumati vegna jökulhlaups Samstarf Veðurstofu,
Jarðvísindastofnunar og Ríkislögreglustjóra Fundað hefur verið með íbúum í Öræfasveit
Öræfajökull Jökullinn er fjarska fagur. En hann er einnig stærsta eldfjall
Íslands og næststærsta virka eldfjall Evrópu á eftir Etnu á Sikiley.
Sigrún Karlsdóttir
Skeiðarárjökull
Lómagnúpur
Freysnes
Útbreiðsla flóðs í kjölfar eldgoss
Myndin sýnir útbreiðslu flóðs sem fékkst úr einum af 20 líkanareikningum. Þessi tiltekni líkanareikningur er vegna hamfaraflóðs,
um 100.000 rúmmetra á sekúndu, niður hlíðar Kotárjökuls fyrstu 8 klukkustundirnar eftir eldgos í öskju Öræfajökuls.
Mörk hermunarsvæðis
Upptakasvæði flóða
Flóðaútbreiðsla skv. hrýfistuðli
Manning n=0,10
Manning n=0,05
Heimild: veðurstofan