Morgunblaðið - 29.03.2014, Side 26

Morgunblaðið - 29.03.2014, Side 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 01/04/14 kl. 9 – 11 Hilton Reykjavík Nordica Markaðsstörf eru kjarninn í starfsemi nútíma fyrirtækja. Samvinna og verkaskiptingmilli markaðsdeilda og annarra deilda skiptamiklumáli fyrir velgengni ámarkaði. Mikill munur er á hvernig þessummálum er háttað hjámismunandi fyrirtækjum. Ráðstefnan er innlegg í uppbyggilega umræðu um ólíkar leiðir til árangurs. #imark Skráning á imark.is HVERRÆÐUR? Ráðstefnameð forstjórum nokkurra af fremstumarkaðsfyrirtækjum landsins Fundarstjóri: Dr. Friðrik Larsen, stjórnarformaður ÍMARK Gísli Steinar Ingólfsson, Capacent Birkir HólmGuðnason, forstjóri Icelandair Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS SigríðurMargrét Oddsdóttir, forstjóri Já Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands #imark STUTTAR FRÉTTIR ● Hreinar fjáreignir (peningar, lífeyr- isréttindi og verðbréf) heimila og fé- lagasamtaka jukust um 11,8% milli ára og voru 2.119 milljarðar króna í árslok 2012 sem jafngildir 124,7% af vergri landsframleiðslu. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands. Virði hlutabréfaeignar heimila og fé- lagasamtaka jókst um 17,4% á milli ár- anna 2011 og 2012. Nánar á mbl.is Eiga 2.119 milljarða ● Jón Sigurðsson, einn eigenda fjár- málafyrirtækisins GAMMA og fyrrver- andi forstjóri FL Group, dró framboð sitt til stjórnar N1 til baka. Hann segir að ástæðan sé sú að Kauphöllin hafi til- kynnt að hún efaðist um hæfi hans til að gegna stjórnarstörfum í skráðu fé- lagi. Nánar á mbl.is Dró framboð sitt til stjórnar N1 til baka Helgi Vífill Júlíusson helgivifll@mbl.is Fjárfestingarsjóðurinn Brú II á veg- um Thule Investments sem sérhæfir sig í nýjum fyrirtækjum og viðmæl- endur fréttaskýringarþáttarins Kastljóss í Ríkissjónvarpinu gagn- rýndu síðastliðið haust starfar í öll- um meginatriðum samkvæmt reglum og samþykktum hans, að mati KPMG sem gerði úttekt á starf- seminni. „Úttekt KPMG staðfestir að við höfum farið eftir öllum þeim reglum og samþykktum sem eru í gildi og að reksturinn sé með eðlilegum hætti jafnvel þótt hann hafi verið gerður tortryggilegur í fjölmiðlum,“ segir dr. Gísli Hjálmtýsson, framkvæmda- stjóri Thule Investments, í samtali við Morgunblaðið. Lífeyrissjóðir og Nýsköpunar- sjóður atvinnulífsins eru meðal helstu hluthafa sjóðsins sem starfar á sviði áhættufjárfestinga (e. vent- ure capital). Tekjur Thule byggjast einkum á því hve vel fjárfestingarnar takast. Á síðasta ári kom fram gagn- rýni á sjóðinn þar sem meðal annars var bent á að verðmat tveggja stærstu eigna sjóðsins árið 2011 hafi byggst á reikningum sem ekki voru endurskoðaðir, sagt að verðmat á út- gerðarfélaginu Blue Wave sem stundar veiðar við vesturströnd Afr- íku, þar sem hátt lán komi á móti stórlækkun hlutafjár, sé umhugsun- arvert og upplýsingagjöf hafi í ein- hverjum tilfellum verið ábótavant. Gagnrýnin varð til þess að ákveðið var að óháður þriðji aðili yrði fenginn til að gera úttekt á fjárfestingum Brúar II, framkvæmd þeirra, eftir- liti, skattgreiðslum, hæfi stjórnenda, þóknunum og umbunum. Niðurstað- an varð svo sú að í meginatriðum væri farið eftir öllum samningum og samþykktum og ekki væri ástæða til frekari skoðunar á stöðu félagsins. Í úttektinni er gagnrýnt að ársreikn- ingur ársins 2012 liggi ekki fyrir og að ekki komi fram í fundargerðum að öldungaráð hafi staðfest verðmat eigna líkt og reglur sjóðsins kveði á um. Verðmat á eignunum sé rýnt af sjóðsstjóra, fjárhaldsmanni (e. cu- stodian), endurskoðanda og staðfest af stjórn. „Við tökum allar ábendingar um það sem betur mætti fara til greina og lagfærum. Ein helsta athuga- semdin var sú að ársreikningi hefði ekki verið skilað á réttum tíma. Það er sannarlega óásættanlegt og við erum að gera viðeigandi ráðstafanir. Seinkunin helgast m.a. af því að skipt var um endurskoðendateymi og að við erum lítið fyrirtæki sem er í eft- irlitsskyldri starfsemi. Skriffinnskan hefur aukist alls staðar í heiminum eftir hrun,“ segir Gísli. KPMG segir að Thule hafi farið eftir settum reglum  Viðmælendur Kastljóss gagnrýndu í haust rekstur sjóðs á vegum Thule Thule Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Thule Investments, segir að út- tekt KPMG staðfesti að reksturinn hafi verið með eðlilegum hætti. Morgunblaðið/Kristinn Komið að 60 íslenskum sprotum » Thule Investments rekur fagfjárfestasjóði, þar á meðal Brú 2, sem sérhæfa sig í nýjum fyrirtækjum. » Fyrirtækið hefur komið að um 60 íslenskum sprotafyrir- tækjum, þar á meðal CCP, Caoz og Betware. ● Íslenski samfélagsleikurinn betXit verður kynntur á Seed Forum í London í næstu viku, en þar er frumkvöðlum gefinn kostur á að kynna verkefni sín fjárfestum. Að hámarki er átta verkefnum boðin þátttaka á ráðstefnunni og er betXit þeirra, en það sérhæfir sig í svokölluðum „tipp“-leikjum. Kynning betXit fer fram þriðjudaginn 1. apríl og verður óskað eftir 190 milljónum króna frá fjárfestum til að koma leiknum á alþjóðlegan markað og til að kynna nýjan leik sem byggist á heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í Brasilíu. Áætlað er að markaður fyrir samfélagsleiki nemi nú um 32 milljörðum doll- ara, eða um 3.600 milljörðum króna, og þar af sé umfang veð- málaleikja um 190 milljarðar króna. Markaðurinn fyrir slíka leiki stækkar hratt og er gert ráð fyrir að hann muni margfaldast á næstu 12 mánuðum. „Í dag erum við að þróa leikinn með því að hafa fjórar fótboltadeildir opnar en á næstu mánuðum munum við fjölga íþróttum og leikjum sem allir geta tippað á,“ segir Arnar F. Reynisson, einn af eigendum betXit. „Við eigum í viðræðum við nokkra fjárfesta um að taka þátt í þessu með okkur en ekkert er staðfest né eitt- hvað sem má uppljóstra, að svo stöddu.“ Íslenskir frumkvöðlar á Seed Forum í London Arnar F. Reynisson                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-.. +/.-0/ +1,-,/ ,1-.,/ +/-..2 +.-0/2 +,3-45 +-+1+5 +.0-43 +52-.4 ++0-12 +/.-/2 +1,-5/ ,1-./4 +/-/,4 +.-205 +,.-0 +-+12. +.2-2/ +55-,, ,13-13,5 ++0-0+ +//-0 +1,-// ,1-/5 +/-//2 +.-2/3 +,.-35 +-+1.4 +.5 +55-35 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hlutabréfaverð þeirra níu félaga sem virkasta verðmyndun hafa á innlendum hlutabréfamarkaði hefur frá áramótum í flestum tilfellum lækkað. Undantekningarnar eru Reginn, Hagar og Vodafone. Miðað við K-90 vísitöluna sem greiningar- deild Íslandsbanka gefur út hefur lækkunin numið um 5,5%, en hún er þó mismikil eftir félögum. Þetta kom fram í greiningu bankans í gær. Gengisþróun hlutabréfa tveggja fé- laga skýrir þá lækkun að mestu, Marel með áhrif til lækkunar upp á rúmlega 9 stig og Eimskip sem veld- ur um 2,4 stiga lækkun vísitölunnar. Önnur félög hafa minni áhrif á vísi- töluna en áhrifin eru ýmist til hækk- unar eða lækkunar. Samtals hefur vísitalan lækkað um 9,13 stig frá ára- mótum. Nánar á mbl.is Morgunblaðið/Ómar Lækkun Verðlækkun á bréfum Marels og Eimskips veldur mestu um það að hlutabréf hafa fallið um 5,5% í verði að meðaltali frá áramótum. Hlutabréfaverð hefur lækkað um 5,5%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.