Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 29

Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 Kuala Lumpur. AFP. | Grunnt er á því góða milli Malasíu og Kína. Kín- verjar hafa gagnrýnt Malasíumenn harðlega út af farþegavél flugfélags- ins Malaysia Airlines, sem hvarf 8. mars með 239 manns um borð, og kallað þá þjóð vanhæfra lygara og morðingja þegar verst hefur látið. Nú eru Malasíumenn farnir að svara fyrir sig. Meirihluti farþeganna um borð í vélinni voru kínverskir ríkisborgar- ar og daglega hafa ættingjar þeirra hellt úr skálum reiði sinnar yfir yf- irvöld og flugfélagið. Þar við bætast óbótaskammir í kínverskum fjöl- miðlum og áskoranir kínverskra stjórnvalda, sem ekki eru þekkt fyr- ir opna stjórnsýslu, um meira gagnsæi í rannsókn málsins. Í Malasíu hafa menn að mestu haldið aftur af sér, enda er Kína helsti viðskiptavinur landsins, en nú er að verða breyting þar á. Svaraði í sömu mynt Hishammuddin Hussein, sem hef- ur hamið sig á erfiðum blaðamanna- fundum, stóðst þó ekki mátið þegar kínverskur blaðamaður spurði hann á þriðjudag um tafir og misvísandi skilaboð malasískra stjórnvalda í upphafi og skaut til baka. Hann sagði að tími hefði farið í súginn í upphafi vegna þess að kínverskar gervihnattamyndir hefðu í upphafi sýnt að brak úr vélinni væri að finna í Suður-Kínahafi. Kínverjar viður- kenndu síðar að myndirnar stæðust ekki og nú er leitað í Indlandshafi. „Sagan mun dæma okkur vel,“ sagði hann daginn eftir og bætti við að 50 malasískir ríkisborgarar hefðu verið um borð. „Kínversku fjölskyldurnar hér verða að skilja að við í Malasíu misstum einnig fólk, sem stendur okkur nærri.“ Yfirlýsingar malasískra stjórn- valda hafa hins vegar verið misvís- andi og ruglingslegar, sérstaklega varðandi atburðarásina í flugstjórn- arklefanum áður en vélin beygði af leið. Þá hefur herinn í Malasíu verið gagnrýndur fyrir að fljúga ekki í veg fyrir vélina þegar hún birtist á ratsjám hans utan flugleiðar. Leyfðu mótmæli í Peking Þessi mistök hafa ýtt undir reiði. Á þriðjudag leyfðu yfirvöld í Pek- ing, sem allajafna gefa borgurunum ekki mikið færi á opinberum mót- mælum, tugum kínverskra ættingja farþega í vélinni að mótmæla fyrir utan sendiráð Malasíu í Peking. „Morðingjar,“ hrópuðu mótmælend- ur og daginn eftir kölluðu ættingjar sendiherrann „lygara“ og „þrjót“. Jahabar Sadiq, sem er ritstjóri óháðrar vefgáttar, Malaysian Insi- der, sagði gagnrýni Kínverja ósann- gjarna og benti á að þeim hefði ekki tekist að finna vélina heldur þrátt fyrir yfirburði til leitar í lofti og legi. „Kínverjar krefjast alls sannleik- ans og fulls gagnsæis vegna hraps vélarinnar. Hvernig væri að þeir segðu allt um Torg hins himneska friðar?“ sagði bloggari á malasísk- um samskiptavef og vísaði til blóð- baðsins vegna mótmælanna 1989. Malasía sendir Kína tóninn  Hörð gagnrýni vegna vélarinnar sem hvarf vekur viðbrögð og sárindi AFP Reiði „Morðingjar,“ hrópuðu ættingjar kínverskra farþega um borð í far- þegavélinni, sem hvarf, þegar þeir mótmæltu við sendiráð Malasíu í Peking. Leitinni að braki úr malasísku far- þegavélinni, sem hvarf 8. mars, var í gær beint 1100 km norðaustur af þeim slóðum, sem leitað hefur ver- ið á undanfarna viku, eftir að „trú- verðugar nýjar vísbendingar“ komu fram. Var ferð skipa og flug- véla hraðað á hið nýja leitarsvæði þar sem Ástralska sjávar- öryggisstofnunin, AMSA, sagði að „margir hlutir“ hefðu sést á floti. Ekki var búist við að skip kæmist á þessar slóðir fyrr en í dag. Nýja leitarsvæðið er að sögn samgönguráðherra Malasíu ekki jafn stórt og hið fyrra, en þó um- fangsmikið, og leitarskilyrði betri en áður, en þó erfið. Nýja leit- arsvæðið mun vera á stærð við Noreg. Það er nær landi en hið fyrra þann- ig að ekki þarf að fljúga jafn langt eftir elds- neyti. Svarti kassinn í flugvélinni sendir aðeins frá sér merki í 30 daga. Bandaríski sjóherinn hefur flutt búnað til að finna svarta kassa til Perth í Ástralíu og verður haldið til leitar um leið og hægt er að segja með einhverri vissu hvar vélin hefur farið í sjóinn. Nýjar vísbendingar koma fram NÝTT LEITARSVÆÐI Á STÆRÐ VIÐ NOREG Brak á floti á nýja leitarsvæðinu. Tilkynnt var í gær að Jens Stol- tenberg, fyrrver- andi forsætisráð- herra Noregs, yrði næsti fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins. Þetta var til- kynnt í gær að loknum fundi sendiherra aðildar- ríkjanna 28. Stoltenberg tekur við 1. október og lætur Anders Fogh Rasmussen frá Danmörku þá af embættinu. Stoltenberg kvaðst á blaðamanna- fundi í gær mundu láta af forustu Verkamannaflokksins. Jonas Gar Støre, sem talið er að muni taka við forustu flokksins, ósk- aði honum til hamingju. Leynd hvílir yfir valinu á fram- kvæmdastjóra NATO, en undan- farnar vikur hefur fiskisagan flogið. 18. mars birtist frétt í ítalska blaðinu La Repubblica um að Stoltenberg yrði líklega fyrir valinu. Síðan kom í ljós að hann nyti stuðnings fjögurra öflugustu ríkjanna í NATO, Banda- ríkjanna, Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Samkvæmt fréttastof- unni NTB lagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, til að Stolten- berg yrði ráðinn og studdu Banda- ríkjamenn það strax. Athygli vekur að Norðurlandabúi víkur fyrir Norðurlandabúa úr stóli framkvæmdastjóra. Heyrðust radd- ir um að nú ætti hann að koma frá aðildarríki í Suður-Evrópu. Stoltenberg er 55 ára gamall og var á sínum tíma andstæðingur NATO. Hann var forsætisráðherra 2000 til 2001 og 2005 til 2013. NOREGUR Stoltenberg fram- kvæmdastjóri NATO Jens Stoltenberg. Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is NÝTT!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.