Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 30

Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ámorgun,hinn 30.mars, verða liðin 65 ár frá því að Alþingi Íslendinga sam- þykkti að Ísland skyldi verða stofnaðili að Atl- antshafsbandalaginu. Þessa dags er einkum minnst hér á landi fyrir þau ósköp að fyrir utan þinghúsið stóð æstur múgur, sem hafði fallið fyrir óvæginni áróðursherferð Sósí- alistaflokksins, og kastaði grjóti á þinghúsið, til þess að knýja fram með ofbeldi aðra niðurstöðu en þá sem meiri- hluti þingsins vildi. Voru nán- ast allar rúður á framhlið þinghússins brotnar mélinu smærra, þar til lögreglan og varalið skakkaði leikinn með kylfum og táragasi. Sagan síðan þá hefur sýnt að þeir 37 þingmenn hins unga lýðveldis, sem stóðu í lapp- irnar gagnvart grjóthríðinni, höfðu rétt fyrir sér. Atlants- hafsbandalagið varð, öllum öðrum fremur, það afl í Evr- ópu sem tryggði að friðurinn hélst í álfunni þó að oft mætti litlu muna. Og með þátttöku Íslands í þeim samtökum varð landið höfuðvígið í vörnum bandalagsins á Atlantshafi gegn þeirri hernaðarvá sem Sovétríkin voru lýðræðisríkj- unum. Án Atlantshafsbanda- lagsins er víst að ríki Vestur- Evrópu hefðu ekki getað varið sig til lengdar gegn yfirgangi Sovétríkjanna. Án efa hefði það verið miklu auð- veldari lausn og átakaminni fyrir þingmenn hins löglega kjörna meirihluta að láta undan ofbeldinu og draga ályktunina til baka. Sú lausn hefði hins vegar verið röng frá öllum hliðum séð. Án Íslands innan vébanda NATO hefðu varnir Vestur-Evrópu orðið miklu veikari gegn ásókn Rauða hersins. Jafnframt hefði þingheimur þar með sett það fordæmi að með yfirgangi mætti kúga þingmenn til þess að greiða atkvæði gegn sann- færingu sinni, og væri þá lítið eftir af þingræðinu. Í lýðræðisríkjum á að taka tillit til óska minnihlutans ef þess er kostur. En minnihlut- inn getur ekki fengið allt sitt fram á kostnað meirihlutans. Þetta á meðal annars við, en þó ekki eingöngu, ef á bak við kröfu minnihlutans eru ofbeld- isaðgerðir áþekkar þeim sem sáust á Austurvelli 30. mars 1949. Atburðir þann dag hafa lifað lengi með þjóðinni, sem skiptist í hópa, með og á móti varnarbandalaginu og með og á móti varnarliðinu. Báðir hópar vísuðu í atburði dagsins málflutningi sínum til stuðn- ings. En þegar til kastanna kom var það gæfa Íslands og Evrópu, að traustur meirihluti þingmanna hafði rétt fyrir sér og stóð með sannfæringu sinni andspænis grjótkastinu. Aðild Íslands að Atlantshafs- bandalaginu reyndist gæfuspor} Þeir stóðu fastir fyrir og höfðu rétt fyrir sér Því verður varttrúað – en þó er erfitt að varast þá hugsun – að bú- seta frambjóðenda og borgarfulltrúa ráði mestu um af- stöðu þeirra til skipulags- og umferðarmála borgarinnar. Í athugun Morgunblaðsins í vik- unni kom fram að allir fimm efstu frambjóðendur Bjartrar framtíðar í borginni byggju í póstnúmeri 101 og hið sama mætti segja um fjóra af fimm efstu hjá Samfylkingu. Í efstu sætum meirihlutaflokkanna er því aðeins einn frambjóðandi sem ekki býr í þessu eina póst- númeri. Dreifingin er heldur meiri hjá hinum flokkunum sem eiga fulltrúa í borgarstjórn, en á heildina litið er sláandi hversu stór hluti frambjóðenda í efstu sætum á heima vestast í Reykjavík. Nú er vitaskuld ekkert við það að athuga að búa vestast í borg- inni og almennt á það engin áhrif að hafa á afstöðu borgarfulltrúa eða frambjóðenda, sem vilja borginni vel, hvar þeir búa. En ástæðan fyrir því að þessi samantekt á búsetu vekur athygli eru þær áherslur sem borgaryfirvöld, einkum í tíð núverandi meiri- hluta, hafa haft á uppbyggingu í vesturhluta borgarinnar á kostnað austurhluta hennar. Ennfremur sú áhersla sem lögð hefur verið á samgöngur sem henta best þeim sem búa í þægilegu göngufæri við alla þjónustu og geta frekar en aðrir búið við takmarkaða notkun einkabílsins. Getur verið að helstu áhyggjur kjósenda í komandi borgarstjórnarkosningum þurfi að vera búseta frambjóð- enda? Nær allir efstu fram- bjóðendur meiri- hlutans búa í sama póstnúmeri } Eru áherslurnar tilviljun? L íffræðingurinn og trúleysinginn Richard Dawkins hefur farið fremstur í flokki þeirra sem telja það út í hött að tala um kristið barn eða múslímskt barn. Hann segir barnið ekki hafa þroska til að taka trúar- lega afstöðu, ekkert frekar en heimspekilega eða pólitíska afstöðu, og því sé nær að tala um barn kristinna foreldra eða barn múslímskra foreldra. Þá bendir hann á að með því að segja við barn að það sé barn foreldra af ákveðnum trúarbrögðum gefi það barninu til kynna að trúarbrögð séu valkostur, sem það getur þá annaðhvort gengið að eða hafnað. Dawkins olli nokkru fjaðrafoki þegar hann setti hugmyndir sínar fram í bókinni The God Delusion, sem kom út árið 2006, og sitt sýnd- ist hverjum. Sú spurning sem dómstólar og al- menningur í Bandaríkjunum standa frammi fyrir um þessar mundir er ekki síður umdeilanleg en hún snýr ekki að því hvort börn geti aðhyllst trúarbrögð heldur hvort fyrirtæki geti haft trúarsannfæringu. Hæstiréttur Bandaríkjanna mun í júní næstkomandi dæma í máli tveggja fjölskyldurekinna fyrirtækja sem hafa höfðað mál vegna sjúkratryggingalöggjafar Bar- acks Obama. Ákvæði hennar skuldbindur fyrirtæki sem rekin eru í gróðaskyni til að greiða fyrir getnaðarvarnir starfsmanna sinna en fyrirtækin tvö, ásamt um fímmtíu öðrum sem einnig hafa leitað til dómstóla, hafa farið fram á að vera undanþegin því að greiða fyrir getn- aðarvarnir sem þeir telja stangast á við þá trúarsannfæringu sem fyrirtækin byggjast á. Þar er um að ræða daginn-eftir-pillurnar ella og Plan B og tvær tegundir lykkja en eig- endur fyrirtækjanna telja notkun þeirra jafn- gilda fóstureyðingu. Annað fyrirtækið, Hobby Lobby, fór með sigur af hólmi fyrir áfrýjunardómstól í Den- ver en hitt fyrirtækið, Conestoga Wood, laut í lægra haldi fyrir áfrýjunardómstól í Phila- delphiu. Eitt af þeim álitamálum sem hæsti- réttur þarf að skera úr um er hvort fyrirtæki geti talist ákveðinnar trúar og þannig notið verndar stjórnarskrárinnar og/eða laga um trúfrelsi. Það sem er undir er meðal annars réttur kvenna til að velja þá getnaðarvörn sem hent- ar þeim best, meðal annars út frá heilsufars- legum ástæðum. Þá gæti dómur fyrirtækjunum í hag skapað hættulegt fordæmi, því líkt og hæstaréttardóm- ararnir Elena Kagan og Sonia Sotomayor bentu á við flutning málsins á þriðjudag eru ýmsar læknismeðferðir bannaðar í hinum og þessum trúarbrögðum og því hætt við að fyrirtæki settu sig einnig upp á móti því að greiða fyrir blóðgjafir, bólusetningar og aðgerðir þar sem not- ast er við vefi úr dýrum, svo dæmi séu tekin. Aðgerða- sinnar óttast einnig að dómurinn muni jafnvel hafa enn víðtækara fordæmisgildi og gera eigendum fyrirtækja kleift að mismuna til dæmis samkynhneigðum á grund- velli trúarskoðana fyrirtækisins. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Geta fyrirtæki verið trúuð? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þetta kom okkur að óvörum.Það rigndi gríðarlega þenn-an sólarhring. Myndasthöfðu hengjur í því vonda veðri sem var þarna. Það kom okkur á óvart hversu hratt þetta gerðist og hversu stórt þetta var,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Blá- fjalla, um snjó- flóðið sem féll á skíðasvæðinu að- faranótt fimmtu- dags. Hann segir að málið sé litið al- varlegum augum en bendir á að skíðasvæðið sé ekki á lista yfir þau svæði þar sem mest snjó- flóðahætta þykir vera samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Flóðið féll á milli Tvíburalyftu og Gosa á suðursvæði Bláfjalla. Svæðið umhverfis skíðaskálann er ekki á hættusvæði. Unnið að hættumati Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að unnið hafi verið að skíða- svæðahættumati á síðustu árum en vinnu er einungis lokið við hættumat í Hlíðarfjalli á Akureyri og á skíða- svæðinu í Oddsskarði á Austurlandi. Þar segir jafnframt að undirbúnings- vinna sé komin af stað fyrir flest þeirra níu skíðasvæða sem einnig eru til skoðunar. Í framhaldinu verður snjóflóðahætta metin á minni skíða- svæðum. Þegar snjóflóðahætta er metin á skíðasvæðum er landsvæðið skoðað í meiri smáatriðum en á þéttbýlis- svæðum vegna þess að hugsanleg upptakasvæði eru í mörgum tilfellum nálægt skíðaleiðum eða skíðalyftum. Til viðbótar við hættu á snjóflóðum af náttúrulegum orsökum þarf að hafa í huga hættuna á því að skíðamenn eða vinnutæki setji af stað snjóflóð í bröttum brekkum. Tvenns konar hættumat Auður Kjartansdóttir hjá Veður- stofunni segir að hættumati á skíða- svæðum megi skipta í tvennt. Annars vegar hættumat B og hins vegar hættumat C. Til glöggvunar er hættumat A notað yfir snjóflóða- hættu í þéttbýli. Samkvæmt snjó- flóðahættumati B er óheimilt að stað- setja skála sem gist er í að næturlagi, hafa upphafssvæði skíðalyftu á barna- og byrjendasvæði, eða raða- svæði á barna- og byrjendasvæði ef hætta er á snjóflóði. Samkvæmt hættumati C er óheimilt að hafa byggingar þar sem gera má ráð fyrir viðveru fólks að næturlagi, þar sem upphafssvæði er fyrir skíðalyftu, þar sem fólk safnast saman og á barna- og byrjendasvæði. Starfsfólk metur hættuna Magnús segir að dagsdaglega sé mat á snjóflóðahættu alfarið í hönd- um starfsmanna skíðasvæðanna. „Við ýtum reglulega niður snjóflóðum. Við komumst með troðara að ofanverðu til þess að ýta niður hengjunum. Ef það er einhver minnsti vafi á því að hengjur séu fyrir ofan lyftur þá lok- um við þeim,“ segir Magnús en grípa hefur þurft til þess sex sinnum á síð- ustu tveimur árum. Hann segir að Veðurstofan telji almennt ekki mikla snjóflóðahættu í Bláfjöllum þó vissu- lega sé hættan til staðar. „Ein af þeim kröfum sem munu koma er sú að það verði sérþekking á snjóflóða- hættu inni á skíðasvæðunum. Svo vill til að Samtök skíðasvæðanna eru í samvinnu við Veðurstofuna og nú stendur til að starfsfólk fari á nám- skeið um snjóflóðahættu. Það hefst á mánudaginn og þar verða ein- staklingar frá flestum skíðasvæðum á landinu,“ segir Magnús. Snjóflóðið í Bláfjöll- um kom að óvörum Magnús Árnason Á vef Veðurstofu Íslands segir að skíðalyftur og skíðaleiðir megi liggja um snjóflóða-hættusvæði en gerð er krafa um daglegt eftirlit og að möstur stólalyftna og kláfa standist reiknaðan ástreymisþrýsting. Aftur á móti er gerð krafa um að upphafsstöðvar lyftna og tilheyrandi raða- svæði séu á sæmilega öruggum svæðum sem og önnur safnsvæði og skíðaskálar. Sérstaklega strangar kröfur eru gerðar fyrir svæði þar sem börn safnast saman. Fyrir þau skíðasvæði sem standast ekki viðmiðin skal viðkomandi sveitarstjórn gera áætlun um úrbætur. Staðsetningu nýrra mannvirkja á skíðasvæðum skal skipuleggja frá upphafi með tilliti til snjóflóðahættu. Mega vera á hættusvæði SKÍÐALEIÐIR Ljósmynd/Einar Bjarnason Snjóflóð Þrír ljósastaurar brotnuðu en engar skemmdir urðu á lyftubún- aði þegar snjóflóð féll í Bláfjöllum aðfaranótt fimmtudags.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.